Leiðtogar í valdavímu þurfa „sífellt stærri skammta“ og geta þróað með sér fíkn í völd

Efna­fræði­legt sam­band virð­ist vera á milli valda og hroka, skrifar tauga­læknir á Land­spít­al­anum. Tak­mörkun á valda­tíma leið­toga getur verið leið til að sporna við vald­hroka og spill­ingu.

Bæði ein­ræð­is­herrar sem sitja lengi á valda­stóli og lýð­ræð­is­lega kjörnir stjórn­mála­leið­togar, fjár­mála­menn og aðrir valda­menn geta orðið valda­fíkn og spill­ingu að bráð, og það virð­ist vera að það sé hægt að finna efna­fræði­legt sam­hengi á milli valda og hroka.

Þetta kemur fram í grein um völd og valda­fíkn sem Torfi Magn­ús­son, tauga­læknir á Land­spít­al­anum, skrifar í nýjasta tölu­blað Lækna­blaðs­ins.

Torfi segir að breyt­ingar sem verða á hegðun margra sem öðl­ast áhrif og völd hafi lengi verið mönnum hug­leiknar. Þær rann­sóknir sem gerðar hafi verið á efna­fræði­legu sam­hengi valda og hroka hafi einkum tengst karl­horm­ón­inu testó­steróni og vellíð­unar- eða vímu­horm­ón­inu dópamíni.

Þótt dópamín sé efni vellíð­unar teng­ist það líka mjög spennu og fíkn og efna­fræði­leg breyt­ing geti orðið hjá vellukk­uðum valda­manni og sig­ur­veg­ara. Það getur orsakað valda­vímu. „Eins og með aðra vímu getur mynd­ast þol og sífellt stærri skammta og fleiri sigra þarf þá til að ná sömu áhrifum. Auk valda­vímunnar getur þró­ast valda­fíkn. Hvort úr verður hreinn vald­hroki ræðst af fleiri þáttum, meðal ann­ars tíma­lengd valda og valda­þörf ein­stak­lings­ins,“ skrifar Torfi.

Valda­víma geti verið mik­il­væg og jafn­vel nauð­syn­leg fyrir leið­toga undir miklu álagi. „Hins vegar getur valda­víman leitt leið­tog­ann inn í víta­hring. Til að við­halda vellíð­an­inni þarf síend­ur­tekið flæði testó­steróns og dópamíns og það kallar á sífellt nýja sigra. Úr verður fíkn, valda­fíkn. Hitti valda­fíknin á sjálf­mið­aðan ein­stak­ling með mikla þörf fyrir per­sónu­tengd völd sprettur upp vald­hroki. Vald­hrok­anum fylgir spill­ing og fleiri lestir.“

Góður leið­togi þurfi þannig að vera fremstur meðal jafn­ingja og vilja hafa völd og sig­ur­vilja, en sig­ur­vilj­inn þurfi „að vera fyrir „okkur“ en ekki fyrst og fremst fyrir „mig.““ Þannig sé valda­mik­ill leið­togi, fullur vald­hroka, heim­inum hættu­legur. „Lýðræði var inn­leitt í Grikk­landi sem svar við vald­hroka og spill­ingu og til að tak­marka valda­tíma leið­toga. Stjórn­ar­skrár­bundin tak­mörkun á valda­tíma leið­toga nútím­ans getur stutt við sama mark­mið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár