Moranbong: Vinsælasta stúlknasveitin í Norður-Kóreu hvarf í skyndingu frá Kína

Mor­an­bong er ein allra vin­sælasta hljóm­sveitin í Norður-Kóreu, og hún skaust á ný í sviðs­ljós vest­rænna fjöl­miðla í gær þegar sagt var frá því að fyr­ir­hug­aðri tón­leika­ferð Mor­an­bong í Kína hefði verið aflýst á síð­ustu stundu. 

Hljóm­sveitin, sem er ein­göngu skipuð konum, var mætt til Peking og hafði verið þar í nokkra daga, og meðal ann­ars æft fyrir tón­leik­ana. Með í för var rík­is­kór N-Kóreu. Svo allt í einu sáust með­limir hljóm­sveit­ar­innar stíga út úr rútu á flug­velli í Peking í gær, og flugu aftur til Pjongj­ang. Þetta var nokkrum klukku­stundum áður en fyrstu tón­leikar þeirra á erlendri grundu áttu að fara fram.

Áætlunin var að halda þrenna tón­leika í Kína í því skyni að bæta tengslin á milli ríkj­anna tveggja. Vin­áttu­tón­leikar áttu þetta að vera. Þær voru kvaddar með form­legum hætti af hátt­settum ráða­mönnum og sendi­herra Kína.

Breskir og banda­rískir fjöl­miðlar hafa kallað ferða­lagið Spice Girls alþjóða­sam­skipti, með til­vísun í bresku stúlkna­sveit­ina frægu. Rík­is­fjöl­mið­ill­inn í Norður-Kóreu, KCNA, greindi frá ferða­lagi hljóm­sveit­ar­innar og kórs­ins og sagði heim­inn nú ein­blína á heim­sókn­ina til Kína. Það var kannski helst til sterkt til orða tekið, en það er alveg rétt að fjöl­margir fjöl­miðlar sýndu ferða­lag­inu áhuga.

Kína hefur löngum verið eini banda­maður Norður-Kóreu, en tengslin á milli hafa verið stirð und­an­farin ár. Ekki síst hefur það átt við eftir kjarn­orku­til­raunir Norður-Kóreu­manna und­an­farin ár.

Þykja jafnvel vestrænar - og klæða sig á íhaldssaman, kynþokkafullan hátt

Sagan segir að Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, hafi sjálfur hand­valið með­limi hljóm­sveit­ar­innar. Þær spila allar á hljóð­færi, venju­lega er sveitin með 12 hljóð­færi, auk þess sem þær syngja.

Hljóm­sveitin þykir vest­ræn að sumu leyti, að minnsta kosti í sam­an­burð­inum. Hægt er að horfa á flesta slag­ara þeirra á Youtube, þær eru með Facebook-síðu, og þær hafa spilað vest­ræna tón­list í bland við hefð­bundna kóreska tón­list og áróð­urs­söngva. Það er til að mynda frægt að þær spil­uðu þema­lagið úr Rocky á einum tón­leikum, eins og sjá má hér að neðan.

Þá hafa með­lim­irnir þótt nokkuð ögrandi, með hár­greiðslur sem eru óhefð­bundnar í N-Kóreu og í stuttum pilsum. Fjöl­miðlar hafa kallað klæða­burð­inn íhalds­samt kyn­þokka­fullan. Þær eru af mörgum taldar tísku­fyr­ir­myndir í Pjongj­ang, en þessir þættir hafa hins vegar verið tón­aðir niður und­an­farið.

Sögusagnir um hvarf

Eins og oft í Norður-Kóreu fóru á sveim háværar sögur þegar svo virt­ist sem að stúlkna­bandið hefði horfið af yfir­borði jarðar í sumar. Því var velt upp hvort hljóm­sveitin, sem Kim Jong-un hafði haldið svo mikið upp á, hefði fallið úr náð­inni. Í tvo mán­uði var mikið rætt um það hvar þær væru, og hvort þær hefðu hrein­lega verið hreins­aðar burt, teknar af lífi. Svo allt í einu, í byrjun sept­em­ber, komu þær á stórum tón­leikum í Pjongj­ang. Og þær höfðu hreint ekki fallið úr náð­inni hjá Kim, sem var mættur á tón­leika með sendi­nefnd frá Kúbu með sér.

Og nú hurfu þær frá Kína

Engin skýr­ing var gefin á þessum óvæntu breyt­ingum. Tel­egraph segir að kín­verskur blaða­maður hafi velt því upp að hljóm­sveitin hafi neitað að koma fram eftir að hafa verið beðin um að breyta söng­textum. Engin opin­ber skýr­ing er þó komin fram. DPA frétta­stofan segir að ein kenn­ingin sé að stjórn­völd í Norður-Kóreu hafi móðg­ast yfir fréttum í fjöl­miðlum um að aðal­sprautan í band­inu, Hyon Song Wol, sé fyrr­ver­andi kærasta leið­tog­ans Kim. NK News segir það ljóst að með þessu muni van­traust kín­verskra stjórn­valda í garð kollega sinna í N-Kóreu aukast. En svo er auð­vitað spurn­ingin hversu miklu máli þessi „Spice Girls alþjóða­sam­skipti“ skiptu í raun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár