Viðreisn með 5,5 prósent – Björt framtíð með 3,4 prósent

Einungis 31,4 pró­sent lands­manna styðja rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna mælist 34,1 pró­sent.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins í nýrri könnun MMR. Fylgi flokks­ins er nú 25,6 pró­sent. Það er mjög svipað fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í lok apríl. Vinstri græn mæl­ast sem fyrr næst stærsti flokkur lands­ins en 21,4 pró­sent kjós­enda segja að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Það er tveimur pró­sentu­stigum minna fylgi en flokk­ur­inn var með fyrir mán­uði síðan.

Þeir tveir flokkar sem sitja með Sjálf­stæð­is­flokki í rík­is­stjórn, Viðreisn og Björt fram­tíð, halda áfram að mæl­ast með fylgi sem skilar þeim annað hvort rétt svo, eða alls ekki, mönnum á þing ef kosið yrði í dag. Viðreisn mælist með 5,5 pró­sent fylgi sem er svipað og flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með á und­an­förnum mán­uðum. Viðreisn, sem bauð í fyrsta sinn fram í síð­ustu kosn­ingum, fékk 10,5 pró­sent atkvæða þegar talið var upp úr kjör­köss­unum þá, og sjö þing­menn. Björt fram­tíð mælist nú með 3,4 pró­sent fylgi, sem er ekki nægj­an­legt til að skila flokknum manni á þing ef kosið yrði í dag. Fylgi Bjartrar fram­tíðar er nú á pari við fylgi Flokks fólks­ins, sem mælist með 3,2 pró­sent fylgi.

Píratar bæta lít­il­lega við sig á milli mán­aða og eru nú með 14 pró­sent fylgi. Framsókn mælist með 12,2 pró­sent og Sam­fylk­ing með 9,3 pró­sent.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur áfram að vera mjög lít­ill. Annan mán­uð­inn í röð mælist hann ein­ungis 31,4 pró­sent. Hann hefur mest mælst 37,9 pró­sent í febr­úar. Til sam­an­burðar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar 59,9 pró­sent skömmu eftir að hún tók við völdum árið 2013 og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur mæld­ist 56,1 pró­sent snemma árs 2009.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja, sem fengu minni­hluta atkvæða í síð­ustu kosn­ingum en samt eins manns meiri­hluta í þing­inu vegna áhrifa kjör­dæma­skip­an­innar, mælist nú 34,1 pró­sent. Þeir fengu sam­tals 46,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár