Icelandair gerir ekki ráð fyrir viðbótaráhrifum vegna hertra aðgerða

Upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair segir félagið ekki gera ráð fyrir að hinar nýju og hertu sótt­varna­að­gerðir muni hafa mikil við­bót­ar­á­hrif á bók­anir. Hún minnir á að far­ald­ur­inn hafi „auð­vitað haft mikil áhrif á okkar starf­semi“.

„Það er of snemmt að segja til um áhrif á bók­anir en við gerum ekki ráð fyrir að þessar sótt­varn­ar­að­gerðir muni hafa mikil við­bót­ar­á­hrif en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur auð­vitað haft mikil áhrif á okkar starf­semi,“ segir Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Icelandair, spurð hvort þær hertu sótt­varn­ar­að­gerðir sem tóku gildi á hádegi í dag hafi þegar haft ein­hver áhrif á bók­anir flug­sæta til og frá land­inu.

Ásdís segir að áhersla félags­ins núna sé á að upp­lýsa far­þega um stöð­una og aðlaga þjón­ust­una að þessum breyt­ingum þar sem þörf krefur, svo sem í inn­an­lands­flug­inu. Samkvæmt nýjum sótt­varna­regl­unum þarf að bera grímur í flugi inn­an­lands þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga.

Einnig hafa verið gerðar ákveðnar breyt­ingar á landamæra­skimun. Sótt­varna­læknir mælir nú með að tvö­föld sýna­taka, við komu og á degi 4-6 ef fyrra sýnið er nei­kvætt, verði útvíkkuð til allra sem hingað koma frá áhættu­svæðum og dvelja hér 10 daga eða lengur með ráð­stöf­unum í sam­ræmi við það sem nefnt hefur verið heim­komusmit­gát þar til nei­kvæð nið­ur­staða fæst úr seinni sýna­töku.

Ef þessi ráð­stöfun ber ekki árangur og inn­lend smit koma upp tengd komu­far­þegum þrátt fyrir beit­ingu ofan­greindra ráð­staf­ana þarf að mati sótt­varna­læknis hugs­an­lega að efla aðgerðir á landa­mærum enn frekar.

Spurð hvort þessar hertu aðgerðir hafi ein­hver áhrif til breyt­inga á leiða­kerfi Icelandair svarar Ásdís Ýr að stöðugt sé verið að meta stöð­una í takti við aðstæður á öllum mörk­uðum flug­fé­lags­ins – bæði hvað varði ferða­tak­mark­anir og þróun eft­ir­spurnar. „Við leggjum áherslu á sveigj­an­leika í okkar starf­semi og áætl­anir okkar miða að því að geta brugð­ist hratt við breyt­ingum sem þessum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár