Fríhöfnin segir upp 62 starfsmönnum

Dótt­ur­fé­lag Isavia hefur sagt upp 62 starfs­mönnum. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að mikil óvissa sé framundan og að staðan verði end­ur­skoðuð reglu­lega.

Vegna mik­ils sam­dráttar í rekstri og óvissu vegna áhrifa COVID-19 heims­far­ald­urs­ins hefur Frí­höfnin ehf, dótt­ur­fé­lag Isavia ohf, sagt upp 62 starfs­mönnum í dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Isavia í dag.

„Frá því áhrifa far­ald­urs­ins fór að gæta hér á landi hefur stöðu­gildum hjá fyr­ir­tæk­inu fækkað um tæp 60 pró­sent og gripið hefur verið til ýmissa ann­arra hag­ræð­ing­ar­að­gerða sem snerta öll svið Frí­hafn­ar­innar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Þor­gerður Þrá­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Frí­hafn­ar­innar, segir að því miður sé staðan þannig að fækkun starfs­fólks sé óhjá­kvæmi­leg. „Útlit er fyrir að ferða­menn sem koma til lands­ins verði afar fáir næstu miss­erin og erfitt að spá fyrir um hvenær fer að horfa til betri vegar. Við hjá Frí­höfn­inni höfum gripið til ýmissa hag­ræð­ing­ar­að­gerða frá því að heims­far­ald­ur­inn hófst en því miður er staðan og útlitið verra en spáð var á fyrstu stigum.“

Þor­gerður segir að mikil óvissa sé framundan og að staðan verði end­ur­skoðuð reglu­lega.

Isa­via greindi frá því á föstu­dag­inn fyrir helgi að fyr­ir­tækið hefði sagt upp 133 starfs­mönnum og sett tólf til við­bótar í lægra starfs­hlut­fall. Aðgerð­irnar koma til við­bótar því að 101 starfs­manni var sagt upp í lok mars. Isa­via, sem rekur meðal ann­ars Kefla­vík­ur­flug­völl, hefur því sagt upp 234 manns frá því að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á Íslandi. Frá því far­ald­ur­inn hófst hefur stöðu­gildum hjá móð­ur­fé­lagi Isa­via nú fækkað um 40 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár