Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei verið minni en nú

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 30,7 pró­sent í nýj­ustu könnun MMR og hefur aldrei verið minni en nú. Fram að þessu var minnsti stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 33 pró­sent í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Í síð­ustu könnun MMR, frá því í byrjun apríl, mæld­ist rík­is­stjórnin með 35,3 pró­senta fylgi. Í byrjun kjör­tíma­bils­ins mæld­ist rík­is­stjórnin með tæp­lega 60 pró­senta fylgi.

Þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna fór frá völdum mæld­ist hún með meira fylgi en núver­andi rík­is­stjórn gerir, eða 31,5 pró­senta fylgi. Fylgi þeirrar rík­is­stjórnar fór þó á tíma­bili lægra en hjá núver­andi rík­is­stjórn. Minnst var ánægjan með störf þeirrar rík­is­stjórnar í októ­ber 2010, 22,5 pró­sent. Þá voru Icesave-deil­urnar í algleym­ingi á Íslandi.


Í könn­unum MMR á fylgi stjórn­mála­flokka er spurt hvort við­kom­andi styðji rík­is­stjórn­ina. 83,6 pró­sent tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar, en hafa verður í huga að vik­mörk í könn­unum sem þessum geta verið allt að 3,1 pró­sent.

Mælast úr takti við almenning og fáir telja þá heiðarlega


Þetta er önnur könn­unin frá MMR sem birt er á skömmum tíma sem kemur illa út fyrir stjórn­ar­flokk­anna og for­ystu­menn hennar. Í síð­ustu viku birt­ist könnun þar sem spurt var út í ýmsa per­sónu­eig­in­leika stjórn­mála­leið­toga. Þar kom meðal ann­ars fram að fimm pró­sent aðspurðra telja að for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son, séu í tengslum við almenn­ing.

Aðeins níu pró­sent aðspurðra telja Sigmund Davíð vera heið­ar­legan, og tíu pró­sent telja Bjarna heið­ar­legan. Þá segja átta pró­sent að Bjarni standi vörð um hags­muni almenn­ings, og 11 pró­sent telja að Sig­mundur Davíð geri það. Fimm pró­sent telja að Sig­mundur virði skoð­anir ann­arra og átta pró­sent telja að það geri Bjarni.

Helm­ingur aðspurðra sagði að Sig­mundur Davíð væri ekki gæddur neinum þeim per­sónu­eig­in­leikum sem spurt var um. 40 pró­sent sögðu það sama um Bjarna.

Einum af hverjum fimm þykir Bjarni Bene­dikts­son vera gæddur per­sónu­töfrum, en fimm pró­sent segja það sama um Sigmund Davíð. Sig­mundur mælist hærri en Bjarni þegar kemur að því hvort fólk telji þá standa við eigin sann­fær­ingu – 21 pró­sent telja það gilda um Sigmund og 19 pró­sent um Bjarna.

18 pró­sent telja Bjarna vera sterkan og ell­efu pró­sent Sigmund. Þá telja þrettán pró­sent að Bjarni sé fæddur leið­togi en fimm pró­sent telja að for­sæt­is­ráð­herr­ann sé fæddur leið­togi. 27 pró­sent sögðu Bjarna vera ákveð­inn, 15 pró­sent telja hann vinna vel undir álagi og 16 pró­sent segja hann skila árangri. Rétt rúm­lega fimmt­ungur (22 pró­sent) segja Sigmund vera ákveð­inn, átta pró­sent að hann vinni vel undir álagi og 15 pró­sent telja hann skila árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár