Teva greiðir á sjötta hundrað milljarða í sátt vegna máls sem tengist Actavis

Lyfja­fyr­ir­tækið Teva hefur nú náð sam­komu­lagi í fjölda dóms­mála sem höfðuð hafa verið gegn því í kjöl­far ópíóða­far­ald­urs­ins í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið keypti Actavis árið 2016 en Actavis hefur verið stór fram­leið­andi ópíóða­lyfja fyrir Banda­rískan markað.

Um hálf milljón Bandaríkjamanna hafa látist í ópíóðafaraldrinum á síðastliðnum tveimur áratugum.
Um hálf milljón Banda­ríkja­manna hafa lát­ist í ópíóða­far­aldr­inum á síð­ast­liðnum tveimur ára­tugum. Mynd: Unsplash/James Yarema

Ísra­elski lyfja­fram­leið­and­inn Teva hefur náð sam­komu­lagi um 4,25 millj­arða Banda­ríkja­dala sátt­ar­greiðslu vegna sölu fyr­ir­tæk­is­ins á ópíóðum í Banda­ríkj­unum. Upphæðin sam­svarar um 584 millj­örðum króna. Teva keypti íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis árið 2016 en Actavis var meðal þeirra lyfja­fyr­ir­tækja sem seldu hve mest af ópíóða­lyfjum í Banda­ríkj­unum árunum 2006 til 2014.

Sagt er frá því á vef New York Times að sam­komu­lagið feli í sér að fyr­ir­tækið greiði stjórn­völdum og sam­fé­lögum frum­byggja í Banda­ríkj­unum bætur á þrettán ára tíma­bili. Fjár­mun­irnir sem fyr­ir­tækið mun þurfa að greiða eru, líkt og áður segir, 4,25 millj­arðar dala en inni í þeirri tölu eru bætur að fjár­hæð tæp­lega 550 milljón dala, um 75 millj­arða króna, sem fyr­ir­tækið hafði áður fall­ist á að greiða stjórn­völdum í San Fransisco, Florida, West Virginia, Texas, Louisiana og Rhode Island.

„Þrátt fyrir að í sam­komu­lag­inu felist ekki við­ur­kenn­ing á mis­gerðum, þá er það í hag fyr­ir­tæk­is­ins að ljúka þessum málum og ein­beita sér þess í stað að þeim sjúk­lingum sem við þjón­ustum á degi hverjum,“ segir í yfir­lýs­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Árið 2016 keypti Teva íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis af Allergan en til þess að hægt sé að ljúka málum Teva, þarf Allergan einnig að ganga frá sam­komu­lagi um sátta­greiðslur. Von er á að þeim við­ræðum ljúki fljót­lega.

Markaðshlutdeild Actavis í sölu ópíóða 32 prósent

Í grein­ingu Washington Post frá því árið 2019 sem fjallar um ópíóða­far­ald­ur­inn sem unnin var upp úr gögnum banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins kemur fram að Actavis hafi verið næst stærsti fram­leið­andi ópíóða­lyfja á banda­rískum mark­aði á árunum 2006 til 2014. Á þessu tíma­bili nam mark­aðs­hlut­deild Actavis 32 pró­sentum en félagið seldi 32 millj­arða pilla á tíma­bil­inu. Fyrr á þessu árið fjall­aði Stundin sér­stak­lega um hlut Actavis í ópíóða­far­aldr­inum.

Í frétt Reuters um sam­komu­lagið segir um ópíóða­far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­unum að hann hafi dregið í það minnsta hálfa milljón Banda­ríkja­manna til dauða á síð­ast­liðnum tveimur ára­tugum. Þar af lét­ust 80 þús­und vegna notk­unar ópíóða­lyfja árið 2021 þar í landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár