Arion banki braut lög með sölu á hlutabréfum í Högum

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sektað Arion banka um 30 millj­ónir króna fyrir að hafa brotið gegn lögum um verð­bréfa­við­skipti. Það gerði bank­inn með því að selja hluta­bréf sín í Högum hf. á sama tíma og bank­inn bjó yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum um Haga. Arion banki seg­ist sann­færður um að hafa farið að lögum.

Í ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kemur fram að hlut­hafi í Högum hafi óskað eftir því við Arion í febr­úar í fyrra að bank­inn leit­aði að kaup­endum fyrir 3 til 6 pró­senta hlut í félag­inu. Hlut­haf­inn var fjár­hags­lega tengdur frum­inn­herjum í fyr­ir­tæk­inu. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var þarna um að ræða félagið Haga­melur ehf., félag í eigu fjár­fest­anna Árna Hauks­sonar, Hall­björns Karls­sonar og Sig­ur­björns Þor­kels­sonar. Þeir seldu 6,6 pró­senta hlut í Högum á þessum tíma. Með söl­unni inn­leystu þeir 2,3 millj­arða króna hreinan hagnað á fjár­fest­ingu sinni í félag­inu, sem var mesti hagn­aður sem einka­fjár­festir hafði inn­leyst frá hruni vegna hluta­bréfa­við­skipta. Kjarninn greindi ítar­lega frá við­skipt­unum þegar þau áttu sér stað.

Bankinn hafði sam­band við líf­eyr­is­sjóði og í ljós kom að tals­verð eft­ir­spurn var eftir hluta­bréfum og bank­inn ákvað í kjöl­far þess að bjóða öðrum hlut­höfum að selja hluti í Högum á sama gengi og sömu­leiðis bank­anum sjálfum. Bankinn seldi hlut í Högum fjórum dögum eftir að hlut­haf­inn kom til bank­ans.

Fjár­mála­eft­ir­litið telur að upp­lýs­ingar um fyr­ir­hug­aða sölu fjár­hags­lega tengds aðila á stórum hlut í Högum hafi verið inn­herj­a­upp­lýs­ingar, sem hafi verið nægj­an­lega til­greindar og lík­legar til að hafa mark­tæk áhrif á mark­aðs­verð hluta­bréf­anna ef þær væru opin­berar.

Í fyrsta lagi hafi umtals­verður hlutur verið seldur í einu lagi á skömmum tíma og því hafi mynd­ast skyndi­lega mikið fram­boð af bréfum, sem líkur stóðu til að myndi leiða til lækk­unar á verði. „Slíkar verð­breyt­ingar eru þó alla jafna skamm­vinnar ef ekki eru fólgnar frek­ari upp­lýs­ingar í við­skipt­unum, enda fælust for­sendur verð­lækk­un­ar­innar þá ekki í und­ir­liggj­andi rekstri eða fram­tíð­ar­vænt­ingum um gang félags­ins. Engu að síður hefði verið unnt að hagn­ast á verð­hreyf­ing­unni.“

Og í öðru lagi hafi verið fólgnar ákveðnar upp­lýs­ingar í við­skipt­unum, stór og leið­andi hlut­hafi var að selja stærstan hlut sinn í félag­inu. „Almennt hefur brott­hvarf kjöl­festu­fjár­festis úr hlut­hafa­hópi nei­kvæð áhrif á hluta­bréfa­verð við­kom­andi félags, í það minnsta til skemmri tíma. Það sem veldur hinum nei­kvæðu áhrifum er að þegar þeir aðilar sem almennt eru taldir búa yfir mestu yfir­sýn­inni og bestu upp­lýs­ing­unum um rekstur félags­ins sjá ekki lengur hag sinn í því að binda fjár­muni í félag­inu gefa þeir með söl­unni vís­bend­ingu um að verð bréf­anna sé orðið of hátt metið og því ættu aðrir fjár­festar að fylgja í kjöl­farið og reyna að selja sín bréf. Því mátti fyr­ir­fram draga þá ályktun að salan kynni að hafa mark­tæk áhrif á skráð hluta­bréfa­verð Haga hf.“

Viðskiptin fóru fram í gegnum óhljóðritaða síma

Arion banki and­mælti ekki því mati Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á að um inn­herj­a­upp­lýs­ingar hafi verið að ræða, sam­kvæmt því sem fram kemur í ákvörðun eft­ir­lits­ins. Bankinn við­ur­kennir í yfir­lýs­ingu í dag að ágallar hafi verið á fram­kvæmd­inni við sölu bréf­anna, en seg­ist sann­færður um að hafa farið að lögum í umræddum við­skiptum. Ágall­arnir hafi verið þeir að ekki hafi verið farið að verk­lags­reglum hvað varðar rekj­an­leika sam­skipta og þess vegna hafi bank­inn ekki getað fært fullar sönnur á að rétt hafi verið staðið að málum.

Bankinn segir að það sé miður að fram­kvæmdin hafi ekki verið eins og best verði á kosið. Til að mynda hafi við­skiptin að mestu farið fram í gegnum óhljóð­rit­aða síma. Fram kemur í ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að haft hafi verið sam­band við fjár­festa eftir lokun mark­aða og yfir helgi.

„Arion banki telur að í umræddum við­skiptum, þegar bank­inn undir lok febr­úar 2014 seldi um 1% í Högum, hafi verið farið að lögum þar sem allir aðilar við­skipt­anna hafi búið yfir sömu upp­lýs­ingum. Upp­lýs­ing­arnar sem um ræðir snúa að því að hlut­hafi sem var fjár­hags­lega tengdur frum­inn­herjum í Högum hafði, fyrir milli­göngu mark­aðsvið­skipta bank­ans, selt hluta­bréf í félag­inu. Afstaða bank­ans er að ekki geti verið um brot á inn­herja­reglum að ræða þegar aðilar við­skipta hafa sömu upp­lýs­ingar og bygg­ist sú afstaða á Evr­óputil­skip­un­inni sem íslensku verð­bréfa­við­skipta­lögin grund­vall­ast á, lög­skýr­ing­ar­gögnum, lög­fræði­á­litum og dómafor­dæmum frá Evr­ópu­dóm­stólnum. Um þetta hefur ágrein­ingur bank­ans við Fjár­mála­eft­ir­litið snú­ist,“ segir bank­inn í til­kynn­ingu.

„Í kjöl­far við­skipt­anna hefur verk­lag innan bank­ans verið skerpt þannig að alltaf verði unnt að færa sönnur á fram­kvæmd við­skipta. Arion banki hefur engu að síður þá stað­föstu trú að aðilar þess­ara til­teknu við­skipta hafi verið jafn­settir og að lög um verð­bréfa­við­skipti hafi ekki verið brotin.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár