Ingibjörg breytti ekki skráningu 365 - Um mistök að ræða

Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir var sögð skráð fyrir 77,8 pró­senta hlut í fjöl­miðla­sam­steyp­unni 365 í gagna­grunni Creditinfo í morgun. Áður var Ingi­björg skráð fyrir sama hlut í fyr­ir­tæk­inu, en það var í gegn um íslenskt félag og tvö félög sem henni tengd­ust í Lux­emburg. Breyt­ingin var gerð í gær og mbl.is greindi frá. Um mis­tök var að ræða og hefur Creditinfo sent frá sér til­kynn­ingu þess efnis. Í til­kynn­ingu vegna fréttar mbl.is segir: „Fyr­ir mis­tök voru upp­lýs­ing­ar um hlut­hafa í 365 miðlum hf. rang­lega slegn­ar inn við yf­ir­ferð hjá Cred­it­in­fo þann 20. apríl 2016. Þar var hlut­ur Ingi­bjarg­ar Stef­an­íu Pálma­dótt­ur skráður 77,8%. Hið rétta er að sam­an­lagður hlut­ur Ingi­bjarg­ar og fé­laga í henn­ar eigu er 77,8% eins og fram kem­ur í árs­skýrslu fé­lags­ins frá 2014, en það eru nýj­ustu upp­lýs­ing­ar frá fé­lag­inu um hlut­hafa. Cred­it­in­fo biðst vel­v­irð­ing­ar á þess­um mis­tök­um og hafa þau verið leið­rétt.“

Í frétt mbl.is sagði að félagið Moon Capital S.á.r.l., sem er í eigu Ingi­bjargar í Lúx­emburg, hafi átt 55% hlut í 365 miðlum. Fé­lagið ML 102 ehf., dótt­ur­fé­lag Moon Capital S.á.r.l., átti 12,8% hlut, og IP Studi­um ehf., líka í eigu Ingi­bjarg­ar, átti 10,1% hlut í 365. Sam­an­lagt átti Ingi­björg tæp­lega 80 pró­senta hlut í 365 í gegn um þessi félög, en með nýju skrán­ing­unni hef­ur hlut­ur Moon Capital og ML 102 verið færður und­ir hana beint. Tölurnar byggðu á upp­lýs­ingum frá fjöl­miðla­nefnd og Creditinfo. Um mis­tök var að ræða.

Fréttin var upp­færð klukkan 14:50 í kjöl­far yfir­lýs­ingar Creditinfo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár