Félagið Ísland-Palestína efndi til mótmæla á Austurvelli kl. 14 í dag. Tilefni mótmælanna er opinber heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, til Íslands og aðgerðarleysi stjórnvalda. Von der Leyen er væntanleg til landsins á fimmtudaginn næstkomandi. Þá mun hún funda með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.
Mótmælin sóttu um sjötíu manns og fóru friðsamlega fram. Lögreglan var með viðbúnað á Austurvelli og Alþingishúsið girt af.

Sveinn Rúnar Hauksson, fyrrum formaður Félagsins Ísland-Palestínu og heiðursborgari í Palestínu sagði „Ísrael hefur ekkert staðið eitt í þessu þjóðarmorði. Það hefur haft Bandaríkin við hlið sér. Helmingur sprengjanna hefur komið frá Evrópu.“ Hann segir Evrópusambandið hafa stutt Ísrael í stríðsglæpum á alla kanta. Hann segir mótmælendur líka saman komna til að minna ríkistjórn Íslands …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Þakka ykkur innilega fyrir að mótmæla þessum hryllingi Ísraela sem engu eira
þó þeir hafi aldrei átt neitt í Palestínsku landi.