Álagning á bensín hefur aukist um 19% og á dísel um 50%

Íslendingar borguðu um 4 til 4,5 milljörðum of mikið í bensínkostnað á síðasta ári, segir Samkeppniseftirlitið.
Íslend­ingar borg­uðu um 4 til 4,5 millj­örðum of mikið í bens­ín­kostnað á síð­asta ári, segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið.

Háttsemi olíu­fyr­ir­tækj­anna á Íslandi tak­markar eða hefur skað­leg áhrif á sam­keppni á olíu­mark­aði „með alvar­legum hætti“ sem veldur alvar­legum sam­keppn­is­hömlum að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Þetta er ekki bara skað­legt sam­keppni heldur einnig fyrir neyt­endur. Álagning á elds­neyti til ein­stak­linga er núna sam­bæri­leg eða jafn­vel hærri en var á sam­ráðs­tíma­bil­inu, og það styrkir kenn­ingar um að þessar skað­legu aðstæður séu fyrir hendi.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér skýrslu í dag þar sem fyrsti hluti mark­aðs­rann­sóknar þess er kynntur. Það er svo­kallað frum­mat á rann­sókn­inni. Talin er ástæða til þess að kanna frekar marga þætti á mark­aði með bensín til ein­stak­linga. Kallað hefur verið eftir sjón­ar­miðum hags­muna­að­ila í mál­inu og hald­inn verður opinn fundur um málið.

Hegða sér öll á sama hátt

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur sjö atriði benda til þess að olíu­fé­lögin stundi sam­hæfða hegðun eða hafi aukið mögu­leika til sam­hæfðrar hegð­unar þegar kemur að því að selja ein­stak­lingum bensín.

Í fyrsta lagi skilar lægra inn­kaupa­verð á bens­íni sér ekki eins vel út í verð­lagið og verð­hækk­anir gera. Næstum því öll hækkun á inn­kaupa­verði fer út í verð­lagið á fimm vikum, en aðeins 80% af verð­lækk­unum.

Þá eru í öðru lagi verð­leið­togar á mark­aðnum, það er, Olís, Skelj­ungur og N1 leiða öll verð­hækk­anir en N1 leiðir verð­lækk­anir. Verð­leið­togar á mark­aði eru vís­bend­ing um sam­hæfða hegðun. Í þriðja lagi eru litlar sveiflur á mark­aðs­hlut­deild og álagn­ingu í bens­ín­sölu. Hvert fyr­ir­tæki fyrir sig er með mjög stöðugan hlut í mark­aðnum og ekki miklar sveiflur á álagn­ing­unni.

Í fjórða lagi er stöð­ug­leiki í verð­á­kvörð­unum, eftir að olíu­fyr­ir­tækin tóku upp þá stefnu að bjóða sama verðið um allt land. Þá komst á stöð­ug­leiki við verð­á­kvarð­anir og óvissa fyr­ir­tækj­anna um hegðun hinna minnk­aði tals­vert. Það virð­ist líka ríkja friður um það á mark­aðnum að Orkan sé næstum alltaf með lægsta bens­ín­verðið.

Fimmta atriðið sem bendir til sam­hæfðrar hegð­unar er það að á tíma­bil­inu 2005 til 2014 hefur álagn­ing á bensín auk­ist um 19% og á dísel um 50%. Vís­bend­ingar eru um það að fyr­ir­tækin við­haldi fyr­ir­fram ákveð­inni álagn­ingu. Með eins inn­kaupa­fyr­ir­komu­lagi og fáum verð­breyt­ingum er auð­velt fyrir keppi­naut­ana að átta sig á álagn­ing­unni hjá hinum. Þá segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið að verð­sam­ráðið milli olíu­fé­lag­anna á árum áður hafi líka þýð­ingu.

Í sjötta lagi kaupa öll fyr­ir­tækin bensín af sama birgj­anum, Statoil í Noregi, og það leiðir til eins­leit­ari inn­kaupa­kjara. Í sjö­unda og síð­asta lagi er van­virk sam­keppni að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem birt­ist í því að þættir sem ættu að hafa áhrif á verð, eins og fjöldi keppi­nauta og mis­mik­ill kostn­aður, gera það ekki. Einnig hafa olíu­fé­lögin ekki brugð­ist við minni sölu á bens­íni með því að fækka bens­ín­stöðvum, og það eru litlar vís­bend­ingar um að sam­drætti í sölu hafi verið mætt með lækkun álagn­ingar til þess að laða að við­skipta­vini.

Hafa öll hag af því að torvelda aðgang annarra að markaðnum

Félögin telj­ast líka öll vera lóð­rétt sam­þætt því þau starfa á öllum stigum mark­að­ar­ins. Þau eru í inn­flutn­ingi, birgða­haldi, dreif­ingu, heild­sölu og smá­sölu, og njóta svo mark­aðs­styrks ýmist hvert um sig eða í sam­ein­ingu. Þau hafa líka öll bæði hvata og getu til þess að úti­loka nýja keppi­nauta með því að neita þeim um bensín í heild­sölu eða um aðgang að birgða­rými. Allt þetta verður til þess að hindra inn­komu nýrra fyr­ir­tækja á mark­að­inn, en tekið er fram í skýrsl­unni að bandríska fyr­ir­tækið Costco ætlar sér að selja bensín við verslun sína sem á að opna í Garðabæ um mitt næsta ár.

Regluverkið hefur líka slæm áhrif - sérstaklega hjá borginni

Aðgerðir stjórn­valda hafa líka haft skað­leg áhrif á sam­keppni á mark­aðnum. Skipu­lags­lög tryggja ekki nægi­lega að tekið sé til­lit til sam­keppn­is­sjón­ar­miða við skipu­lags­gerð hjá sveit­ar­fé­lögum að mati eft­ir­lits­ins og það er ekki heldur tryggt að sveit­ar­fé­lögin líti til sam­keppn­is­sjón­ar­miða við úthlutun lóða til nýrra eða smærri keppi­nauta. „Skaðlegu áhrif þessa fyrir elds­neyt­is­mark­að­inn end­ur­spegl­ast hvað þyngst í núver­andi stefnu Reykja­vík­ur­borg­arar sem snýr að því að tak­marka fjölda lóða undir elds­neyt­is­stöðvar í sveit­ar­fé­lag­inu en það tor­veldar aðgang nýrra keppi­nauta að mark­aðnum,“ segir orð­rétt í skýrsl­unni.

Þá er miðlun Flutn­ings­jöfn­un­ar­sjóðs olíu­vara til þess fallin að hafa skað­leg áhrif á sam­keppni, en sjóð­ur­inn miðlar nákvæmum upp­lýs­ingum um mark­aðs­hlut­deild til félag­anna.

Veldur allt skaða fyrir neytendur

Það er almenn­ingur sem ber tjónið af þessu öllu saman, vegna þess að bens­ín­verðið er hærra en það væri ef virk sam­keppni væri á mark­aðnum. Þetta hefur líka afleidd áhrif vegna þess að verðið hefur áhrif á verð­lag ann­arra fyr­ir­tækja á sinni vöru og þjón­ustu, og líka á vísi­tölu neyslu­verðs.

Samkvæmt útreikn­ingum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er beint tjón þannig að álagn­ing á bif­reiða­elds­neyti hefur verið óeðli­lega há, sem nemur allt að 18 krónum á lítr­ann af bens­íni og 20 krónum af dísil. Þannig hafi neyt­endur hafi borgað 4 til 4,5 millj­örðum of mikið fyrir elds­neytið í fyrra, og þegar litið er til tíma­bils­ins frá 2005 til 2014 nemi þessi upp­hæð 21 tiil 34 millj­örðum króna með virð­is­auka­skatti.

Álagning á bens­íni hefur hækkað nán­ast stöðugt frá árinu 1996 til 2014, nema á árunum 2003 til 2005, þegar álagn­ing lækk­aði. Sam­keppn­is­eft­ir­litið vekur athygli á því að þau ár var sam­ráðs­mál olíu­fé­lag­anna til með­ferðar hjá sam­keppn­is­yf­ir­völdum og mikil umræða var um verð­lagn­ingu, auk þess sem Atl­ants­olía hóf starf­semi.

N1 einu sem hafa brugðist við

N1, stærsta fyr­ir­tækið á olíu­mark­aðnum, er það eina sem hefur brugð­ist við frum­mats­skýrsl­unni í dag. Það er kannski eðli­legt í ljósi þess að fyr­ir­tækið er líka skráð á markað, og það hefur lækkað tals­vert í við­skiptum dags­ins í dag.

N1 tekur fram að hags­muna­að­ilum hafi ekki verið gef­inn kostur á að koma á fram­færi sínum sjón­ar­miðum. Það geti haft áhrif á nið­ur­stöð­urnar. „Þá telur N1 einnig mik­il­vægt að áretta að ekki er um að ræða rann­sókn á meintum brotum gegn sam­keppn­is­lögum enda kemur fram í frum­mats­skýrsl­unni að á þeim tæp­lega 30 mán­uðum sem rann­sóknin hefur staðið hafa engar vís­bend­ingar komið fram um brot íslenskra olíu­fé­laga á sam­keppn­is­reglum,“ segir í athuga­semdum Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar for­stjóra fyr­ir­tæks­is­ins.

Hann segir einnig að fyr­ir­tækið telji skýrsl­una stað­festa að virk og heil­brigð sam­keppni ríki á elds­neyt­is­mark­aði, og að for­sendur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir því að verðið sé óeðli­lega hátt séu rangar. „Ef elds­neyt­is­verð á Íslandi (án opin­berra gjalda) væri 14-16 krónum lægra, líkt og Sam­keppn­is­eft­ir­litið virð­ist telja eðli­legt, væri það lægra eða svipað með­al­verði bens­íns í OECD löndum, til dæmis lægra en í Danmörku og á sama reki og í Svíþjóð. Það er því miður ekki raun­hæft enda ljóst að land­fræði­leg staða Íslands, smæð mark­að­ar­ins, hár hlut­falls­legur flutn­ings- og dreif­ing­ar­kostn­aður og hár fjár­magns­kostn­aður hefur óhjá­kvæmi­lega í för með sér að verð á elds­neyti sé nokkuð hærra hér á landi en í flestum OECD löndum.“ Fyr­ir­tækið ætlar sér að koma á fram­færi frek­ari sjón­ar­miðum á næst­unni, og seg­ist vilja hafa frum­kvæði að úrbótum þar sem þeirra er þörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár