Kópavogsbær má semja við ISS um matseld fyrir grunnskóla

Kæru­nefnd útboðs­mála aflétti í gær stöðvun samn­ings­gerðar á milli Kópa­vogs­bæjar og ISS. FSG átti lægsta til­boðið í útboði Kópa­vogs­bæjar en til­boð þeirra var metið ógilt, og var sú ákvörðun kærð til kæru­nefndar útboðs­mála. Ræstinga- og veit­inga­fyr­ir­tækið ISS Ísland hefur und­an­farið tekið yfir mat­reiðslu mál­tíða fyrir leik­skóla- og grunn­skóla­börn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Marg­vís­legar athuga­semdir hafa verið gerðar af heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu vegna hrein­lætis, rekj­an­leika og innra eft­ir­lits í eld­húsi ISS, meðal ann­ars vegna myglu.

Samið um mat fyrir grunnskóla
Samið um mat fyrir grunn­skóla Haraldur Líndal Har­alds­son, bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, og Guð­mundur Guð­munds­son, for­stjóri ISS, kynna samn­ing um mat­reiðslu ISS fyrir grunn­skóla og leik­skóla í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Mynd: ISS Ísland

Kæru­nefnd útboðs­mála ákvað í gær að aflétta stöðvun samn­ings­gerðar milli Kópa­vogs­bæjar og ISS Ísland. Bæjarráð Kópavogs ákvað þann 15. júní síð­ast­lið­inn að semja við ISS um matseld fyrir tvo grunn­skóla, Kópa­vogs­skóla og Smára­skóla, til næstu þriggja ára. Sölu­fé­lag garð­yrkju­manna kærði útboðið, en félagið átti lægsta til­boðið.  Tilboð þeirra var hins vegar metið ógilt vegna skorts á gögnum. Gunn­laugur Karlsson, fram­kvæmd­stjóri SFG, segir nið­ur­stöð­una vera von­brigði.

Tilboð SFG í útboð­inu nam um 54,7 millj­ónum króna og var örlítið lægra en til­boð ISS sem nam um 55,1 millj­ónum króna. Þar sem afrit af rekstr­ar­leyfum, skrá yfir sam­bæri­leg verk og yfir­lýs­ing frá við­skipta­banka fylgdu ekki lægra til­boð­inu var það metið ógilt af Kópa­vogsbæ. SFG kærði útboðið til kæru­nefndar útboðs­mála og krafð­ist þess að það yrði ógilt í heild sinni. Auk þess sem óskað var álits á skaða­bóta­skyldu Kópa­vogs­bæjar. Kæru­nefnd féllst ekki á kröfur SFG.

Ekki tekið mark á skýringum FSG

Í nið­ur­stöðu kæru­nefnd­ar­innar segir að Kópa­vogs­bær hefði átt að gefa SFG kost á að skýra til­boð sitt og leggja fram frek­ari gögn áður en ákvörðun var tekin um að meta til­boðið ógilt. „Það var ekki gert og okkur reynd­ist mjög erfitt að ná í full­trúa Kópa­vogs­bæjar. Um leið og við fengum upp­lýs­ingar um að við hefðum átt lægsta til­boðið reyndum við ítrekað að ná sam­bandi við þá, en það tók okkur rúman mánuð að fá svör,“ segir Gunn­laugur.

Gunn­laugur Karlsson, fram­kvæmda­stjóri FSGTelur ljóst að Kópa­vogs­bær hafi ekki haft áhuga á að semja við FSG.

Gunn­laugur telur nokkuð ljóst að Kópa­vogs­bær hafi ekki haft áhuga á að vinna með SFG. „Þegar við fréttum að Kópa­vogs­bær hygð­ist hafna til­boði okkar höfðum við strax sam­band við bæj­ar­stjór­ann og for­seta bæj­ar­stjórnar til að koma okkar sjón­ar­miðum á fram­færi. Á það var hins vegar ekki hlustað og það kom okkur virki­lega á óvart.“

Þrátt fyrir að Kópa­vogs­bær hafi ekki gefið SFG færi á að skýra til­boð sitt frekar og leggja fram þau gögn sem á vant­aði var nið­ur­staða kæru­nefnd­ar­innar sú að hafna kröfum SFG. Byggði úrskurð­ur­inn á því að í útboðs­gögn­unum var gerð krafa um að með til­boði skyldi leggja fram skrá yfir helstu sam­bæri­leg verk sem bjóð­andi hefði unnið að. Af þeirri skyldu dró kæru­nefndin þá ályktun að kraf­ist væri ein­hverrar reynslu af sam­bæri­legu verki.

„Ég á erfitt með að skilja þessa kröfu Kópa­vogs­bæjar. Við réðum til verks­ins fólk með tíu ára reynslu í þessum geira. Mér þykir merki­legt að ekki hafi verið litið til þess. Að ein­ungis hafi verið litið til starfs­reynslu kenni­tölu fyr­ir­tæk­is­ins en ekki til starfs­reynslu og mennt­unar fólks­ins sem starfar hjá fyr­ir­tæk­inu,“ segir Gunn­laugur. Hann telur að sjón­ar­miðin sem Kópa­vogs­bær líti til séu sam­keppn­is­hamlandi.

„Við ætl­uðum aðeins að bjóða upp á besta fáan­lega hrá­efnið, íslenskt græn­meti og íslensk mat­væli.“

Þá gagn­rýnir Gunn­laugur sjón­ar­mið bæj­ar­ins um að meta til­boðin aðeins eftir verði. „Þetta kom okkur mjög á óvart og voru mikil von­brigði. Við lögðum gríð­ar­legan metnað í und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins og við ætl­uðum aðeins að bjóða upp á besta fáan­lega hrá­efnið, íslenskt græn­meti og íslensk mat­væli. Höf­uð­á­herslan hjá okkur var að vinna allt úr upp­runa­hrá­efnum, ekki að bjóða til dæmis upp á kart­öflumús úr dufti. En það virð­ist eins og útboðið hafi aðeins mið­ast við verð. Það var ekki litið til þjón­ustu- og hrá­efn­is­gæða og val á mat­vöru úr nærum­hverfi til að taka­marka kolefn­is­fót­spor.“

Gunn­laugur seg­ist ætla að læra af reynsl­unni og væntir þess að SFG kom­ist í gott sam­starf við skóla og leik­skóla á land­inu. Hann segir íslenska garð­yrkju­bændur hafa gríð­ar­lega mik­inn áhuga á verk­efn­inu og mikið hafi verið fjár­fest í verk­efn­inu.

Heilbrigðiseftirlitið gert margvíslegar athugasemdir vegna matreiðslu ISS fyrir skólabörn

Stundin greindi frá því í síð­asta tölu­blaði að heil­brigð­is­eft­ir­litið hefði gert marg­vís­legar athuga­semdir vegna hrein­lætis, rekj­an­leika og innra eft­ir­lits, meðal ann­ars vegna myglu, í eld­húsi ræst­inga- og veit­inga­fyr­ir­tæks­ins ISS Íslands. Tugir frá­vika greindust í eft­ir­liti heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur í jan­úar síð­ast­liðnum og höfðu mörg þeirra verið greind strax í apríl 2016. Daginn eftir að ákvörðun bæj­ar­ráðs Kópavogs var tekin, þann 16. júní síð­ast­lið­inn, fór heil­brigð­is­eft­ir­lit aftur í vett­vangs­rann­sókn hjá ISS og komst að því að lítið hafði verið um úrbætur. Hálfu ári eftir að heil­brigð­is­eft­ir­litið gerði marg­vís­legar athuga­semdir hafði engin úrbóta­á­ætlun verið færð fram af fyr­ir­tæk­inu og auk þess greind­ist „alvar­legt frá­vik“ frá starfs­leyfi vegna slæms ástands, hita, raka­skemmda, „skor­dýra­á­lags“ og fleira í upp­þvotta­rými.

Þess ber að geta að algengt er að gerðar séu athuga­semdir eftir eft­ir­lits­ferðir hjá mat­væla­fyr­ir­tækjum. Ekkert mat­væla­fyr­ir­tæki kemst full­kom­lega athuga­semda­laust í gegnum skoðun eft­ir­lits­ins, en þar sem ISS eldar fyrir við­kvæma hópa og í miklu magni eru gerðar sér­stakar kröfur um verk­lag, sem ISS hefur ekki náð að upp­fylla þrátt fyrir áskor­anir heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins.

Þá var félagið ISS Ísland selt til hóps fjár­festa í maí síð­ast­liðnum, meðal ann­ars Patrick De Muynck, Peter Nilsson og svo Einars og Bene­dikts Sveins­sonar. ISS Ísland er því komið í hóp fyr­ir­tækja sem tengj­ast við­skipta­veldi ætt­ingja Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem skiptir við ríki og sveit­ar­fé­lög. Kaupandi að ISS Íslandi er ISS World Services A/S. „Fjár­festa­hóp­ur­inn sam­anstendur af erlendum aðilum með mikla reynslu af rekstri og stjórnun þjón­ustu­fyr­ir­tækja á heims­vísu, inn­lendum fjár­festum og núver­andi stjórn­endum ISS Ísland,“ sagði í til­kynn­ingu frá ISS í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár