Stíf fundahöld vegna Grikklands - evruríkin vilja „alvöru og trúverðugar“ tillögur

Grikkir þurfa að koma með „alvöru og trú­verð­ugar“ til­lögur á neyð­ar­fund hjá leið­togum Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna í dag ef þeir vilja halda áfram í mynt­sam­starf­inu. Kanslari Þýska­lands, Angela Merkel, og for­seti Frakk­lands, Francois Hollande, hafa sent frá sér frétta­til­kynn­ingar þar sem þetta kemur fram.

Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra og Euclid Tsaka­lotos nýr fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands eru nú komnir til Brussel, en fundur fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, evru­hóps­ins svo­kall­aða, hefst klukkan 11 á íslenskum tíma. Sá fundur er und­ir­bún­ingur fyrir fund Evr­ópu­sam­bands­leið­tog­anna, sem hefst klukkan fjögur að íslenskum tíma.

Vonir manna um að stórra frétta verði að vænta eftir fund­ina í dag hafa dvínað. Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði í Evr­ópu­þing­inu í morgun að lausn á mál­inu kæmi ekki fram á einni nóttu. „Það sem við gerum í dag er að tala saman og koma reglu á hlut­ina,“ sagði hann. Hann sagði Grikki verða að koma með til­lögur, það hefðu verið þeir sem gengu burt frá samn­inga­við­ræðum.

Gert er ráð fyrir því að Tsiprsas og Tsaka­lotos muni kynna nýjar til­lögur að lausn á vand­anum, en meðal þess sem búist er við að komi þar fram sé að allt að 30 pró­sent skulda Grikkja verði afskrif­aðar. Til­lög­urnar eru taldar líkar til­lögum lán­ar­drottn­anna sem var hafnað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni á sunnu­dag.

Flestir grein­endur telja enn að lík­leg­ast sé að Grikkir fari úr evru­sam­starf­inu. Mats­fyr­ir­tækið Fitch gerir ekki einu sinni ráð fyrir því að sam­komu­lag náist fyrir 20. júlí næst­kom­andi, en þá þurfa Grikkir að standa skil á 3,5 millj­arða greiðslu til Seðla­banka Evrópu. Ef Grikkir ná ekki að greiða þá greiðslu er talið lík­legt að bank­inn loki á alla neyð­ar­að­stoð og lýsi grísku bank­anna gjald­þrota.

Grískir bankar eru áfram lok­aðir í dag og á morgun, en ekki er víst að hægt verði að opna á fimmtu­dag þrátt fyrir áætl­anir þar um. Lausafé er af mjög skornum skammti og Seðla­banki Evrópu ákvað í gær að hækka ekki neyð­ar­að­stoð sína við grísku bank­ana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár