Faraldurinn í hámarki í Ísrael

Þrátt fyrir að beita „ofur­vopn­unum“ tveimur; hraðri bólu­setn­ingu og hörðum aðgerðum, hefur þriðja bylgja far­ald­urs­ins í Ísrael nú náð miklum hæðum. Fjórð­ungur dauðs­falla vegna COVID-19 frá upp­hafi hafa orðið í jan­úar.

Tæpleag þrjár milljónir Ísraela hafa þegar fengið fyrri skammtinn af bóluefni Pfizer.
Tæpleag þrjár millj­ónir Ísraela hafa þegar fengið fyrri skammt­inn af bólu­efni Pfizer. Mynd: EPA

Smit af kór­ónu­veirunni eru nú mun útbreidd­ara í Ísrael en áður en bólu­setn­ingar hófust í land­inu fyrir fimm vikum. Viku eftir að bólu­setn­ing­ar­her­ferðin hófst voru sam­komu- og ferða­tak­mark­anir hertar. Staðan í Ísrael er til marks um þá löngu og ströngu veg­ferð sem heims­byggðin á fyrir höndum áður en hjarð­ó­næmi næst og hægt verður að láta af þeim fjöl­þættu aðgerðum sem gripið hefur verið til vegna far­ald­urs­ins.

Allra augu bein­ast nú að Ísrael því vegna sér­staks samn­ings við lyfja­fram­leið­and­ann Pfizer hafa þegar yfir þrjá­tíu pró­sent þjóð­ar­innar fengið fyrri skammt bólu­efnis fyr­ir­tæk­is­ins gegn COVID-19 og meira en 15 pró­sent báða skammt­ana.

[adspot]

Heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins greindi fyrr í vik­unni frá inni­haldi samn­ings­ins sem felur í grunn­inn í sér bólu­efni í skiptum fyrir rann­sókn­ar­gögn. Kostir þess að fram­kvæma rann­sókn sem þessa í Ísrael eru m.a. sagðir þeir að heil­brigð­is­kerfið er háþróað, þjóðin nokkuð fámenn og skipu­lag bólu­setn­inga, með aðstoð hers­ins, ítar­legt.

Greint var frá fyrstu nið­ur­stöðum úr for­rann­sóknum tengdum bólu­setn­ingum í Ísrael á mánu­dag og sam­kvæmt þeim minnkar hættan af sýk­ingu af völdum kór­ónu­veirunnar mikið þegar eftir fyrri skammt bólu­efn­is­ins og báðir skammt­arnir, þ.e. full bólu­setn­ing, veitir betri vörn en búist hafði verið við. Af þeim 428 þús­und manns sem fengið höfðu báða skammt­ana höfðu 63 sýkst af veirunni viku síðar eða 0,014 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum.

En þrátt fyrir yfir­burða­stöðu Ísraela í bólu­setn­ingum á heims­vísu hefur þriðja bylgja far­ald­urs­ins skollið á af krafti. 8. jan­úar, aðeins viku eftir að her­ferðin hófst, voru því settar á harðar tak­mark­anir á ferða­lög og sam­komur fólks.

„Ofur­vopnið“ í bar­átt­unni við COVID-19, eins og hin umfangs­mikla bólu­setn­inga­her­ferð Ísraela hefur verið kölluð, á að tryggja hjarð­ó­næmið eft­ir­sótta á met­tíma og von­ast stjórn­völd til að jákvæð áhrif á efna­hags­lífið verði farin að sýna sig þegar í byrjun mars.

Fleiri alvarlega veikir

Enn sem komið er hafa þó ofur­vopnin tvö, bólu­efni og harðar aðgerðir, ekki dugað til að sveigja þriðju bylgj­una niður og staðan á far­aldr­inum er verri en stjórn­völd höfðu von­ast til. Í fyrra­dag greindust tæp­lega 8.000 manns með veiruna, um 9,6 pró­sent allra sem fóru í sýna­töku þann dag­inn. Margir mán­uðir eru síðan slíkur fjöldi smita greind­ist dag­lega í land­inu. Fólki með virkt smit hefur því haldið áfram að fjölga síð­ustu daga og álagið á sjúkra­hús er einnig mjög mikið. Fjöldi alvar­lega veikra er að nálg­ast 1.200 og deildir á sumum sjúkra­húsum orðnar fullar.

Í gær voru 393 á gjör­gæslu með COVID-19, þar af 311 í önd­un­ar­vél. Rúmlega 4.500 manns hafa lát­ist vegna sjúk­dóms­ins í Ísrael frá upp­hafi far­ald­urs­ins og hefur fjórð­ungur dauðs­falla verið nú í jan­úar.

Hinar hörðu tak­mark­anir í land­inu sem fel­ast m.a. í lokun allra skóla og versl­unar- og þjón­ustu sem ekki er talin nauð­syn­leg, áttu að vera í gildi fram á sunnu­dag. Stjórn­völd vilja nú hins vegar fram­lengja þeim og segja ísra­elskir fjöl­miðlar að eng­inn hafi átt von á því að staða far­ald­urs­ins væri jafn slæm á þessum tíma­punkti og hún er.

Er hinar hörðu aðgerðir voru kynntar á fyrstu dögum jan­úar var talað um að þær væru „brúin“ inn í fram­tíð­ina – þær síð­ustu sem þyrfti að fara í til að hafa betur gegn kór­ónu­veirunni. En svo kom breska afbrigðið. Afbrigði veirunnar sem er meira smit­andi en önnur og er þegar orðið það sem oft­ast grein­ist í Ísrael þessa dag­ana.

Farsóttarþreyta í bland við bjartsýni?

En skýr­ing­arnar á upp­sveifl­unni í far­aldr­inum eru fleiri. Talið er að hin svo­kall­aða far­sótt­ar­þreyta sem margir jarð­ar­búar finna fyrir hafi orðið til þess að Ísraelar fylgja ekki sótt­varna­reglum jafn ítar­lega og áður. Aðrir þættir gætu einnig spilað inn í, svo sem mikil bjart­sýni í tengslum við bólu­setn­inga­her­ferð­ina miklu. Enn fleira gæti mögu­lega skýrt hina snörpu þriðju bylgju í Ísrael, atriði sem spálíkön tóku ekki til­lit til.

Líklegt er talið að far­ald­ur­inn væri á enn verri stað í land­inu ef bólu­setn­ing væri ekki hafin af krafti. Sömu­leiðis má leiða líkum að því að bylgjan væri enn svæsnari ef ekki hefði verið gripið til hinna hörðu aðgerða í byrjun jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár