Hlutur ríkissjóðs í umfram eigin fé bankanna 120 milljarðar

Nokkrir stjórn­mála­flokkar ætla sér að auka arð­greiðslur úr bönk­unum til að standa undir skulda­nið­ur­greiðslum eða inn­viða­fjár­fest­ingum. Banka­sýslan segir að hlutur rík­is­sjóðs í umfram eigin fé bank­anna sé 120 millj­arðar.

Stjórnmálaflokkar vilja brjóta sparibaukinn sem er umfram eigið fé bankanna og nota í hin ýmsu verkefni.
Stjórn­mála­flokkar vilja brjóta spari­b­auk­inn sem er umfram eigið fé bank­anna og nota í hin ýmsu verk­efni. Mynd: 123rf.com

Að mati Banka­sýslu rík­is­ins er hlutur rík­is­sjóðs í umfram eigin fé Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka um 120 millj­arðar króna. Ríkið á tvo fyrr­nefndu bank­anna að öllu leyti en 13 pró­sent hlut í Arion banka. Þetta kemur fram í minn­is­blaði sem Banka­sýslan hefur tekið saman um arð­greiðslu­getu við­skipta­bank­anna þriggja sem rík­is­sjóður á hlut í árin 2018-2020.

Nokkrir flokkar hafa boðað það í aðdrag­anda kosn­inga að þeir ætli sér að auka arð­greiðslur úr bönk­unum og „tappa“ þannig af eigin fé þeirra sem er umfram það sem Fjár­mála­eft­ir­litið gerir kröfu um. Slíkt er til að mynda hluti af stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins auk þess sem Vinstri græn hafa boðað slíkar arð­greiðslur einnig.

Í frétt á vef ráðu­neyt­is­ins segir að sam­kvæmt mat­inu sé mis­munur á eigin fé bank­anna og þeim eig­in­fjár­kröfum sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur sett alls um 253 millj­arðar króna. Sé tekið til­lit til þess að óvar­legt þykir að mæta aðeins lág­marks­kröfum um eigið fé er gert ráð fyrir að áætlað umfram eigið fé nemi aldrei lægra hlut­falli en þrjú pró­sent yfir til­skildu lág­marki. Það svarar til um 183 millj­örðum króna. Með hlið­sjón af hlut­falls­legu eign­ar­haldi rík­is­sjóðs á við­skipta­bönk­unum megi því ætla að hlutur rík­is­sjóðs í umfram eigin fé, sem skil­greint er með þessum hætti, geti numið um 120 millj­örðum króna.

Í frétt­inni stendur enn fremur: „Banka­sýslan bendir á að mik­il­vægt sé að halda því til haga að það er á for­ræði stjórna bank­anna, en ekki hlut­hafa, að leggja fram til­lögur um arð­greiðslur. Mat á arð­greiðslu­getu til fram­tíðar er vit­an­lega háð marg­vís­legum fyr­ir­vörum, svo sem um að heil­brigt efna­hags­á­stand verði hér næstu árin, að reglu­verk hald­ist óbreytt og að fjár­mála­mark­aðir verði opnir fyrir víkj­andi lánum til bank­anna. Sömu­leiðis er bent á þá stað­reynd að lækkun eigin fjár í bönk­unum leiðir til lækk­unar á arð­greiðslu­getu síðar.[...]Jafn­framt skal minnt á að í fjár­mála­á­ætlun 2018-2022, sem sam­þykkt var á Alþingi sl. vor, er gert ráð fyrir 140 ma.kr. óreglu­legum tekjum rík­is­sjóðs á gild­is­tíma áætl­un­ar­innar. Var þar eink­an­lega horft til arð­greiðslna frá bönk­unum. Má því segja að þegar sé búið að gera ráð fyrir ráð­stöfun veru­legs hluta af vænt­an­legum arð­greiðslum við­skipta­banka í eigu rík­is­ins í tekju­á­ætl­unum fyrir rík­is­sjóð á kom­andi árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár