Þróunarsamvinnustofnun og allt starfsfólk hennar gagnrýnir fyrirætlanir utanríkisráðherra

Allir íslenskir starfs­menn Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar Íslands, fyrir utan fram­kvæmda­stjór­ann Eng­il­bert Guð­munds­son, mót­mæla fyr­ir­ætl­unum Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra um að leggja stofn­un­ina niður og færa starf­semi hennar inn í ráðu­neytið. Þetta kemur fram í umsögn starfs­fólks­ins um frum­varp Gunnars Braga sem var send utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis í dag.

Eng­il­bert skrifar svo aðra umsögn fyrir hönd stofn­un­ar­innar sjálfrar, þar sem fram kemur að stofn­unin telji „enn sem fyrr lík­legra að til­vera fag­stofn­unar sé ákjós­an­leg­asti skipu­lags­kost­ur­inn til að stuðla að slíkri upp­bygg­ingu á fag­legri getu.“ Þetta sé ekki síst í ljósi þess að stjórn­völd hafa talað um aukin fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu á næstu árum, og því verði mikil þörf á því að auka umfang og dýpt fag­þekk­ingar í þró­un­ar­sam­vinnu.

Þá seg­ist Þró­un­ar­sam­vinnu­stofnun harma það að ekki skuli hafa tek­ist að ná fag­legri og póli­tískri sam­sötðu allra þeirra sem beri hag fátæks fólks í sam­starfs­löndum Íslands fyrir brjósti. Þá segir að í skýrslu sem meðal ann­ars hefur verið lögð til grund­vallar ákvörðun um að leggja niður stofn­un­ina sé að finna vill­andi stað­hæf­ingar sem sýni djúp­stæðan mis­skiln­ing á því hvað fram­kvæmd feli í sér í nútíma þró­un­ar­sam­vinnu.

Stað­hæf­ing­arnar feli í sér að stofn­unin vinni ekki í fram­kvæmd þró­un­ar­sam­vinnu heldur fyrst og fremst í eft­ir­liti. „Skýrslan leggur nokkuð að jöfnu gæða­eft­ir­lit utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins með alþjóða­stofn­unum sem Ísland styður og gæða­eft­ir­lit ÞSSÍ með fram­gangi til­tek­inna verk­efna, en það virð­ist svipað og að leggja að jöfnu eft­ir­lit eig­enda með afkomu fyr­ir­tækis og eft­ir­lit tækni­deildar með gæðum fram­leiðsl­unnar. Hvorttveggja er nauð­syn­legt en mjög ólíkt. Þarna er á ferð mis­skiln­ingur sem vænt­an­lega hefði mátt útrýma með betri umfjöllun á fyrri stigum og þannig tryggja að ráð­herra fengi sem bestan grunn til ákvarð­ana­töku.“

Í bréfi starfs­fólks­ins kemur fram að það taki undir athuga­semdir og and­mæli sem komið hafi fram í umsögnum Þró­un­ar­sam­vinnu­stofn­unar sjálfrar. „Und­ir­rituð telja þvert á móti að æski­legt væri að færa fleiri verk­efni á sviði þró­un­ar­sam­vinnu yfir til ÞSSÍ og efla mála­flokk­inn á þann hátt, enda eru fyrir því fjöl­mörg rök. Við leggjum því ein­dregið til að Alþingi standi við fyr­ir­heit um aukin fram­lög til þró­un­ar­sam­vinnu og styðji þá stofnun sem býr yfir mestum fag­legum styrk á því sviði á Íslandi.“

Gunnar Bragi hefur lagt fram á nýjan leik frum­varp sitt sem miðar að því að leggja niður stofn­un­ina og flytja starf­semi hennar inn í ráðu­neytið. Gefið hefur verið út að allir starfs­menn fái áfram vinnu inni í ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár