Trump sér eftir ýmsu í kosningabaráttunni

Donald Trump seg­ist sjá eftir ýmsu í kosn­inga­bar­áttu sinni til þess að verða for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins. Engu að síður segir hann að ef hann hefði ekki komið fram eins og hann gerði, þá hefði hann lík­lega ekki kom­ist svona langt, en fátt getur komið í veg fyrir að hann verði fram­bjóð­andi flokks­ins.

Þetta var meðal þess sem kom fram í við­tali Megyn Kelly á Fox News við Trump í gær­kvöldi. Kelly og Trump hafa átt í miklum deilum und­an­farna mán­uði. Deil­urnar hófust eftir að Kelly stjórn­aði umræðum í kapp­ræðum milli fram­bjóð­enda í ágúst síð­ast­liðnum. Þá spurði hún hann um ummæli sín um konur og í kjöl­farið sagði hann að hún hefði ekki verið sann­gjörn gagn­vart honum. „Það sást að það kom blóð út úr aug­unum á henni, blóð kom út úr henni – hvar sem er.“

Einnig end­ur­deildi Trump ummælum um Kelly á Twitter, þar sem hún var kölluð bimbo, sem á íslensku merkir gála. Kelly spurði Trump hvers vegna hann hefði gert það og hann svar­aði: „Gerði ég það? Ó. Afsakaðu mig.“ Hann bætti því svo við að Kelly hlyti þó að hafa verið kölluð mun verri nöfnum.

Trump sagði í við­tal­inu að hann hefði vissu­lega getað gert ýmis­legt öðru­vísi en hann gerði í þess­ari níu mán­aða kosn­inga­bar­áttu. „Ég hefði getað notað öðru­vísi orða­lag, en yfir það heila verð ég að vera mjög ánægður með nið­ur­stöð­una.“

Hann vildi ekki segja frá því hvaða hlutum hann sæi eftir í bar­átt­unni. „Ef ég hefði ekki hagað mér með þeim hætti sem ég hef gert, þá held ég að ég hefði ekki náð árangri.“ Jafn­framt sagði hann að ef hann nær ekki kjöri sem for­seti Banda­ríkj­anna muni hann líta svo á að ferlið hafi verið „algjör og full­komin sóun á tíma, orku og pen­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár