Staða faraldursins og erlendir listar hafa ekki haft mikil áhrif: „Sjö, níu, þrettán“

Þegar ný bylgja kór­ónu­veirusmita var að rísa lýstu tals­menn fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu yfir áhyggjum af því að Ísland færð­ist inn á „rauða lista“ erlendis. Áhrifin af því hafa verið hverf­andi, þó enn sé „spurn­ing hvernig Amer­ík­an­inn bregst við“.

Það hefur ekki verið mikið um afbókanir erlendra ferðamanna eftir að smitum tók að fjölga innanlands.
Það hefur ekki verið mikið um afbók­anir erlendra ferða­manna eftir að smitum tók að fjölga inn­an­lands. Mynd: Pexels

Full­trúar fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu, sem nýlega lýstu yfir miklum áhyggjum af því að Ísland yrði „rautt land“ með til­liti til stöðu far­ald­urs­ins inn­an­lands, segja við Kjarnann nú þegar Ísland er orðið rautt á korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu og komið á lista yfir lönd sem banda­ríska sótt­varna­stofn­unin mælir gegn ferða­lögum til, að áhrifin af vexti far­ald­urs­ins inn­an­lands á vilja ferða­manna til að koma hingað séu enn sem komið er hverf­andi.

„Sjö, níu, þrettán,“ segir Stein­grímur Birg­is­son fram­kvæmda­stjóri Bíla­leigu Akur­eyrar og Hölds. Hann sagði við Morg­un­blaðið fyrir rúmum tveimur vikum að ef Ísland yrði „allt í einu rautt“ og talið háá­hættu­svæði myndi það hafa miklar afleið­ingar.[links]

Að hans sögn ber ekki mikið á þeim enn, utan þess að ferða­menn frá Ísrael hafi verið að afbóka bíla­leigu­bíla. Á morgun bæt­ist Ísland nefni­lega á lista yfir háá­hættu­svæði í Ísrael og þá munu allir þurfa að fara í sótt­kví eftir að þeir koma til Ísrael eftir Íslands­ferð, jafnt bólu­settir sem óbólu­settir.

Banda­ríkja­menn hafa verið meiri­hluti erlendri ferða­manna sem til lands­ins koma það sem af er ári og nú mælir sótt­varna­stofn­unin þar í landi gegn ferða­lögum til Íslands, bæði fyrir bólu­setta og óbólu­setta. Það á eftir að koma í ljós hvaða áhrifi þessi til­mæli munu hafa, en þau má kalla sam­bæri­leg við þau sem emb­ætti sótt­varna­læknis hefur gefið út hér á landi. Samkvæmt til­mæl­unum hér­lendis er heim­ur­inn allur, utan reyndar Græn­lands, skil­greindur sem áhættu­svæði.

Stein­grímur segir að allir í grein­inni hafi haft áhyggjur af því að staða far­ald­urs­ins á Íslandi gæti orðið enn eitt áfallið fyrir ferða­þjón­ust­una, sem hafi tekið á sig ítrekuð högg það sem af er far­aldr­inum. „Af reynslu und­an­far­ins árs þá eru menn alltaf stress­aður og hræddir,“ segir fram­kvæmda­stjór­inn.

„Það er smá titringur“

Davíð Torfi Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela, stærstu hót­el­keðju lands­ins, segir að áhrifin af risi far­ald­urs­ins hér­lendis eigi ef til vill eftir að koma í ljós, en í sam­tali við Morg­un­blaðið þann 24. júlí sagði hann að það væri lita­kóð­inn sem þetta allt sner­ist um í raun og veru, staða far­ald­urs­ins á Íslandi væri áhyggju­efni fyrir ferða­þjón­ust­una.

„Það hefur ekki verið að koma hrina af afbók­unum yfir okkur,“ segir Davíð, en nefnir þó að það hafi hægst á bók­unum und­an­farnar vikur, eftir að bók­anir inn í haustið og vetur hafi áður verið komnar á gott skrið.

[adspot]

„Það er smá titr­ingur,“ segir Davíð og nefnir að stærri verk­efni sem verið hafi verið fyr­ir­huguð hér á landi, til dæmis kvik­mynda­verk­efni og fleira slíkt, séu mögu­lega í óvissu. Fólk sé að velta fyrir sér hlut­unum, en ekki búið að afbóka.

Davíð seg­ist telja að ferða­skrif­stofur séu dug­legar að upp­lýsa sína við­skipta­vini um að bólu­setn­ing sé útbreidd á Íslandi og er von­góður um að ferða­menn sem hafa verið að koma til lands­ins und­an­farna mán­uði haldi áfram að skila sér. Þannig sé Ísland til dæmis enn „grænt“ í bókum Bret­lands og þaðan muni ferða­menn koma, sömu­leiðis frá Þýska­landi og víðar að úr Evrópu, auk Banda­ríkj­anna. Asíu­mark­að­ur­inn er hins vegar alveg í frosti og ólík­legt að það breyt­ist fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári, að sögn Davíðs.

Fleira gæti komið til en bara staða faraldursins innanlands

Snorri Pétur Egg­erts­son, fram­kvæmda­stjóri sölu- og mark­aðs­sviðs Kea­hót­ela, sagði Mogganum fyrir rúmum tveimur vikum að hann teldi það gera Ísland að væn­legum áfanga­stað að landið væri búið að vera „grænt“ og hefði verið það í langan tíma.

Hann segir núna í sam­tali við Kjarnann að það sé ljóst að frá því að fréttir af delta-afbrigði veirunnar fóru að taka meira pláss í umræð­unni hafi eitt­hvað verið um afbók­anir og hægst hafi á sölu.

Þó sé ekki alveg ljóst hvað sé að valda því að það hægist á bók­unum, ann­ars vegar gæti delta-afbrigðið og staðan hér inn­an­lands og raunar á erlendum mark­aðs­svæðum líka verið að hafa áhrif. Hins vegar sé komið fram í enda sum­ars, hót­elin séu orðin nokkuð vel bókuð og verðið aðeins orðið hærra, sem hafi líka áhrif.

Hann seg­ist merkja að afbók­anir séu algeng­ari á þriggja stjörnu hót­elum en þeim sem eru með fleiri stjörnur og að svo virð­ist sem ein­stak­lingar séu fremur að halda sínum ferða­á­ætl­unum til streitu en hópar í skipu­lögðum ferðum. Hann segir þessa til­gátu þó byggja á frekar tak­mörk­uðum gögnum.

Snorri segir ferða­menn frá Evrópu hafa verið að halda sig við sínar bók­anir að mestu þrátt fyrir að breytta stöðu Íslands á evr­ópska sótt­varna­kort­inu. „Svo er spurn­ing hvernig Amer­ík­an­inn bregst við þegar við erum komin í efsta þrep hjá þeim.“

Hann segir að nú séu þess merki að fólk sé að bóka ferðir með skömmum fyr­ir­vara, kannski tveimum vikum fyrir kom­una til lands­ins eða jafn­vel skemmri fyr­ir­vara. Dregið hafi úr bók­unum fram í tím­ann, sem juk­ust tölu­vert í sumar.

„Fólk er ekki að bóka fram í tím­ann og kannski þorir því ekki,“ segir Snorri, sem segir þó flestar bók­anir Kea­hót­ela þannig að þær séu sveigj­an­legar fyrir kúnn­ann og end­ur­greið­an­legar að fullu fram á síð­ustu stundu. Fáir kjósi að greiða ein­hverjum þús­und­köllum minna fyrir gist­ing­una ef það þýði að hún fáist ekki end­ur­greidd.

Hann segir þetta hald­ast í hendur við það sem flug­fé­lögin sem fljúga til lands­ins séu að gera, þau bjóði upp á sveigj­an­lega skil­mála og leyfi fólki að fresta flug­inu sínu eftir henti­semi.

„Þá ertu að taka þessa pressu af fólki og það er ekki að tapa pen­ingnum. Það er engum greiði gerður með að vera harður,“ segir Snorri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár