Brottfarir erlendra farþega ekki fleiri í einum mánuði síðan fyrir faraldur

Nálega helm­ingur þeirra erlendu far­þega sem fór um Kefla­vík­ur­flug­völl í júlí voru frá Banda­ríkj­unum. Þrátt fyrir mikla fjölgun far­þega um flug­völl­inn var fjöldi brott­fara erlendra ferða­manna í júlí innan við helm­ingur þess sem hann var í sama mán­uði 2019.

Frá áramótum hafa um 184 þúsund erlendir farþegar farið um Keflavíkurflugvöll.
Frá ára­mótum hafa um 184 þús­und erlendir far­þegar farið um Kefla­vík­ur­flug­völl. Mynd: ISAVIA

Fjöldi brott­fara erlendra far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli var 110 þús­und í júlí­mán­uði sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu og Isavia. Fjölg­unin er umtals­verð á milli ára, far­þeg­arnir voru tæp­lega 46 þús­und í sama mán­uði í fyrra svo aukn­ingin nemur 141 pró­senti. Fram kemur í til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu að leita þurfi allt aftur til febr­ú­ar­mán­aðar árið 2020 til þess að sjá álíka fjölda far­þega í einum og sama mán­uð­inum. Fjöldinn eru engu að síður innan við helm­ingur þess sem hann var í júlí árið 2019.

Fjölg­unin er einnig mikil á milli mán­aða. Erlendir far­þegar voru um 42.600 í júní síð­ast­liðnum. Þrátt fyrir þessa miklu aukn­ingu gætir áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins enn í tölum yfir far­þega­fjölda. „Frá ára­mótum hafa um 184 þús­und erlendir far­þegar farið frá Íslandi sem er um 52% fækkun miðað við sama tíma­bil í fyrra en þá voru brott­farir erlendra far­þega tæp­lega 387 þús­und,“ segir á vef Ferða­mála­stofu.

Ferðalög Íslend­inga hafa einnig auk­ist en í júlí voru brott­farir Íslend­inga frá Kefla­vík­ur­flug­velli um 31 þús­und tals­ins. Þær hafa ekki mælst svo margar síðan í febr­úar í fyrra þegar þær voru um 34 þús­und. Engu að síður hefur brott­förum á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins fækkað um 41,3 pró­sent frá því á sama tíma í fyrra, fjöldi þeirra á þessu ári eru um 63.500.

Ísland komið á rauðan lista hjá Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna

Banda­ríkja­menn voru nálega helm­ingur þeirra erlendu far­þega sem fór um Kefla­vík­ur­flug­völl í liðnum mán­uði, fjöldi þeirra var rúm­lega 51 þús­und. Banda­ríkja­menn áttu 46,6 pró­sent erlendra brott­fara í júlí. Næst á eftir komu Pól­verjar með 10,2 pró­sent og svo Þjóð­verjar með 7,9 pró­sent.

Í gær lenti Ísland á rauðum lista Sótt­varna­stofn­unar Banda­ríkj­anna sem þýðir að Banda­ríkja­mönnum er nú ráðið frá því að ferð­ast til lands­ins nema brýna nauð­syn beri til. Hvaða áhrif það kann að hafa á ferða­vilja Banda­ríkja­manna og ferða­lög þeirra til lands­ins á eftir að koma í ljós en breyt­ingin mun ekki hafa áhrif á ferða­tak­mark­anir milli Íslands og Banda­ríkj­anna. Eftir sem áður geta Íslend­ingar ekki ferð­ast til Banda­ríkj­anna, líkt og aðrir þegnar í löndum innan Schengen, nema með sér­stakri und­an­þágu.

Ísland fékk rauðan lit á korti sótt­varna­stofn­unar Evrópu (ECDC) í síð­ustu viku. Lönd þar sem nýgengi smita er á bil­inu 200 til 500 fá rauðan lit á korti ECDC. Fari nýgengi smita yfir 500 fá lönd hins vegar dökk­rauðan lit. Nýgengi smita hér inn­an­lands er í dag 411.

Gistinætur á hótelum fjölgar í takt við komu erlendra ferðamanna

Sú fjölgun sem orðið hefur á komum ferða­manna sést einnig í tölum um gistinætur á hót­elum en Hag­stofan birti í morgun bráða­birgða­tölur um gistinætur ferða­manna. Hag­stofan áætlar að gistinætur á hót­elum í júlí hafi verið um 364.100 tals­ins (95% örygg­is­mörk 349.900-378.300). Þar af voru gistinætur Íslend­inga tæp­lega 110 þús­und og gistinætur útlend­inga 254.500.

Þetta er tölu­verð aukn­ing miðað við sama mánuð í fyrra, þá sér­stak­lega þegar horft er til gistin­átta útlend­inga. Alls varð 61 pró­senta aukn­ing í gistin­óttum í júlí­mán­uði milli ára, þær voru 226.400 í mán­uð­inum í fyrra. Gistinætur útlend­inga fjölgar um 170 pró­sent milli ára en gistin­óttum Íslend­inga fjölgar um 17 pró­sent. Þrátt fyrir þessa miklu aukn­ingu var fjöldi gistin­átta í nýaf­stöðnum júlí langtum minni en í sama mán­uði árið 2019, fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur. Í júlí árið 2019 var fjöldi gistin­átta á hót­elum 507.800 en þar af voru gistinætur útlend­inga 468.200.

Í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni segir að taka beri þessar bráða­birgða­tölur með sér­stökum fyr­ir­vara, enda eigi sér stað miklar breyt­ingar á fram­boði á hót­el­rýmum. Sú fram­boðs­breyt­ing eykur mjög á óvissu í bráða­birgða­mati á fjölda gistin­átta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár