Fyrri einkavæðing bankanna: Sendu bréf og fengu að kaupa Landsbanka Íslands

Síðari einka­væð­ing rík­is­banka hófst í fyrra, þegar byrjað var að selja hluti í Íslands­banka. Því ferli var svo haldið áfram í mars þegar umdeilt lokað útboð fór fram. Síðasta einka­væð­ing fjár­mála­fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu hófst skömmu fyrir ald­ar­mót.

Fyrir einka­væð­ing­ar­ferlið sem hófst 2002 átti íslenska ríkið rúm­lega 48 pró­sent hlut í Lands­bank­anum og 55 pró­sent í Bún­að­ar­bank­anum. Fyr­ir­komu­lag á einka­væð­ingu rík­is­fyr­ir­tækja, þar á meðal bank­anna var á þessum árum tölu­vert frá­brugðið því sem það er nú. Einka­væð­ingin sjálf var á ábyrgð svo­kall­aðrar ráð­herra­nefndar um einka­væð­ingu. Í henni sátu fjórir valda­mestu ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar. Þegar Lands­bank­inn og Bún­að­ar­bank­inn voru seldir sátu í nefnd­inni Davíð Oddsson, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Geir H. Haarde, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Halldór Ásgríms­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, og Val­gerður Sverr­is­dóttir, þáver­andi við­skipta- og banka­mála­ráð­herra.

Undir ráð­herra­nefnd­inni starf­aði síðan fram­kvæmda­nefnd um einka­væð­ingu. Í henni sátu fjórir menn. Hver og einn þeirra var full­trúi eins af ofan­greindum ráð­herrum. Þegar banka­salan hófst sátu í fram­kvæmda­nefnd­inni, sem einnig er ein­fald­lega kölluð einka­væð­ing­ar­nefnd, þeir Ólafur Dav­íðs­son, sem var for­maður hennar, Stein­grímur Ari Arason, Jón Sveins­son og Sævar Þór Sig­ur­geirs­son. Auk þess hafði nefndin tvo starfs­menn, þá Skarp­héð­inn Berg Stein­ars­son, sem nokkrum árum síðar var einn æðsti stjórn­andi Baugs-sam­steypunnar sál­ugu, og Guð­mundur Ólason, sem síðar varð for­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Milestone.

Þetta fyr­ir­komu­lag á sölu rík­is­eigna er nokkuð frá­brugðið því fyr­ir­komu­lagi sem á nú að gilda um það. Nú er til sér­stök stofnun sem heitir Banka­sýsla rík­is­ins sem sér um sölu rík­is­ins á eign­ar­hlutum í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Yfir henni er þriggja manna stjórn sem í sitja full­trúar sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra skipar. Banka­sýslan á síðan að skila fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til­lögu um sölu á eign­ar­hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Þá til­lögu á í kjöl­farið að leggja fyrir fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis. Ráð­herr­ann tekur síðan ákvörðun um hvort sölu­með­ferð eign­ar­hlut­ar­ins haldi áfram og á end­anum hvort að til­boðum skuli hafnað eða þau sam­þykkt.

Reyndu að selja erlendum banka

Sala Lands­bank­ans árið 2002 átti sér nokkurn aðdrag­anda. Upp­haf­lega stóð til að reyna að selja bank­ann til erlendra banka eftir að hug­myndir um dreifða eign­ar­að­ild höfðu skyndi­lega verið lagðar á hill­una. Til boða stóð að minnsta kosti þriðj­ungs­hlutur.

Rík­is­stjórn Íslands sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu árið 2001 þar sem aug­lýst var eftir áhuga­sömum fjár­festi. Ísland setti aug­lýs­ingar víða vegna þessa, meðal ann­ars í hinu virta blaði Financial Times. Til við­bótar hafði ráð­gjafi íslenskra stjórn­valda, hinn breski HSBC, sam­band við 24 banka víðs vegar að og bauð þeim að bjóða í Lands­bank­ann. Í árs­lok 2001 lýstu tveir erlendir bankar, Den Norske Bank (DnB) og Wachovia, yfir áhuga á að eign­ast kjöl­festu­hlut í Lands­banka Íslands. Nið­ur­staðan þótti mikil von­brigði.

Í bréfi sem Edward Williams, ráð­gjafi hjá HSBC, sendi ráð­gjaf­ar­nefnd um einka­væð­ingu seint á árinu 2001 lýsir hann yfir von­brigðum sínum með nið­ur­stöð­una og segir hana meðal ann­ars orsakast af erf­iðri stöðu á alþjóða­mörk­uðum. Í bréf­inu kemur einnig í ljós að báðir aðil­arnir sem eftir stóðu að loknu for­vali voru með nokkuð flókin til­boð. DnB var til dæmis í 47 pró­senta eigu norska rík­is­ins á þessum tíma en einka­væð­inga­nefnd hafði sér­stak­lega lýst því yfir að hún hefði fyr­ir­vara gegn því að selja Lands­bank­ann til aðila í eigu ann­arra rík­is­stjórna. Lands­bank­inn hefði enda verið að stórum hluta í eigu norska rík­is­ins ef salan hefði gengið eftir.

Þegar líða fór að árs­lokum 2001 var orðið nokkuð ljóst að ekki myndi takast að semja við bank­ana tvo um kaup á Lands­bank­anum. Daginn eftir að DnB gaf afsvar 20. des­em­ber 2001 var send út frétta­til­kynn­ing um að sala á hluta­bréfum í Lands­bank­anum myndi frest­ast.

Síðan gerð­ist ekk­ert í nokkra mán­uði.

Söluferlið saltað

Sumarið 2002 virt­ust menn orðnir þreyttir á því að bíða og þá var ákveðið að hætta að ein­blína á erlenda fjár­festa sem mögu­lega kaup­endur að hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum. Skýr vilji stóð þó til þess að erlent fjár­mála­fyr­ir­tæki yrði á meðal þeirra sem myndu standa að til­boði í hlut­inn.

Ljóst er þó á fund­ar­gerðum einka­væð­ing­ar­nefndar að nefnd­ar­menn voru ekki bjart­sýnir á að til tíð­inda myndi draga sum­arið 2002, enda væru fjár­mála­mark­aðir dofnir á þeim tíma að mati þeirra. Jón Sveins­son, full­trúi Halldórs Ásgríms­sonar þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, lét bóka á fundi einka­væð­ing­ar­nefndar að hann teldi „skyn­sam­legt að bíða og forð­ast óða­got. Skipti máli að móta næstu skref bæði í Bún­að­ar­bank­anum og Lands­bank­anum.“

Davíð Oddsson var forsætisráðherra þegar ríkisbankarnir voru seldir. Hann er í dag ritstjóri Morgunblaðsins.
Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra þegar rík­is­bank­arnir voru seldir. Hann er í dag rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Einka­væð­ing­ar­nefnd forð­að­ist ekki óða­gotið lengi. Tveimur dögum eftir fund­inn, 27. júní 2002, þar sem Jón bók­aði ofan­greinda skoðun sína barst nefnd­inni bréf. Það var frá fjár­festa­hópi sem síðar tók upp nafnið Samson. Hópurinn sam­an­stóð af Björgólfi Guð­munds­syni, syni hans Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni og Magnúsi Þor­steins­syni. Þre­menn­ing­arnir höfðu þá nýverið hagn­ast gíf­ur­lega á að selja bjór­verk­smiðju í Rúss­landi til Heineken.

Í bréf­inu var óskað eftir við­ræðum um kaup á kjöl­festu­hlut í Lands­banka Íslands þar sem hóp­ur­inn teldi að hann væri „álit­legur kostur fyrir selj­anda“. Síðan voru lagðar fram 13 for­sendur sem áttu að vera til grund­vallar í við­ræðum Samson við einka­væð­ing­ar­nefnd.

Ákveðið að hefja viðræður við Samson-hópinn

Einka­væð­ing­ar­nefnd fund­aði dag­inn eftir að bréfið barst og á þeim fundi var m.a. lögð fram drög að minn­is­blaði vegna mögu­legrar sölu á Lands­bank­anum í sept­em­ber 2002. Minn­is­blaðið var sent til Val­gerðar Sverr­is­dóttur við­skipta­ráð­herra tveimur dögum síðar. Þegar hún sendi minn­is­blaðið til baka til nefnd­ar­innar hafði það tekið nokkrum breyt­ingum. Í sam­an­tekt sem fylgdi breyttu minn­is­blað­inu kom skýrt fram að Val­gerður taldi Samson-hóp­inn ekki upp­fylla þær kröfur sem kjöl­festu­fjár­festir í Lands­bank­anum átti að búa yfir. Þar segir orð­rétt að „hóp­ur­inn [hefur] enga reynslu af banka­rekstri og því vand­séð við fyrstu sýn að þeir geti aukið sam­keppn­is­hæfni bank­ans með líkum hætti og erlendur banki gæti gert.“

Björgólfur Thor Björgólfsson, ríkasti Íslendingurinn, myndaði Samson-hópinn ásamt föður sínum og Magnúsi Þorsteinssyni. Mynd: Aðsend
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, rík­asti Íslend­ing­ur­inn, mynd­aði Samson-hóp­inn ásamt föður sínum og Magnúsi Þor­steins­syni. Mynd: Aðsend

Þessar mót­bárur Val­gerðar skiptu þó litlu. Á fundi einka­væð­ing­ar­nefndar sem haldin var 5. júlí 2002 var til­boð Samson form­lega tekið fyrir. Í fund­ar­gerð er bókað eftir Ólafi Dav­íðs­syni, for­manni nefnd­ar­innar, að „í við­ræðum við ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu hefði komið fram áhugi á að taka upp við­ræður á þeim grunni sem skil­greindur var í bréf­inu en þó þannig að tryggt væri að verk­lags­reglum um einka­væð­ingu væri fram­fylgt.“

Það voru því stjórn­mála­menn­irnir sem tóku ákvörðun um að hefja við­ræður við Samson þrátt fyrir að fjár­festa­hóp­ur­inn upp­fyllti ekki upp­runa­leg skil­yrði og hefði enga reynslu af því að eiga eða reka banka.

Sama hver vilji stjórn­mála­mann­anna um hver ætti að eign­ast bank­ann þá var ljóst að það þyrfti að minnsta kosti að aug­lýsa kjöl­festu­hlut­inn í Lands­bank­anum til sölu svo öðrum gæf­ist kostur á að bjóða líka. Þann 10. júlí, tveimur vikum eftir að það virt­ist ekk­ert standa til að hefja neitt sölu­ferli og tæpum tveimur vikum eftir að bréf Samson barst einka­væð­ing­ar­nefnd, var kjöl­festu­hlutur í báðum rík­is­bönk­unum, Bún­að­ar­banka og Lands­banka, aug­lýstur til sölu. Áhuga­samir höfðu 15 daga til að skila inn til­boðum.

Þrír hópar bitust um bankana

Fimm hópar skil­uðu inn til­kynn­ingu og lýstu áhuga á að eign­ast hlut í öðrum hvorum bank­anum. Tveir þeirra, Samson og Kald­bakur, fjár­fest­inga­fé­lag Samherja, lýstu yfir meiri áhuga á Lands­bank­anum en hinir þrír vildu frekar eign­ast Bún­að­ar­bank­ann. Þeir voru Íslands­banki (siðar Glitnir), hópur kenndur við Þórð Magn­ús­son (nú stjórn­ar­for­maður Eyris Invest), og hinn svo­kall­aði S-hópur sem leiddur var af Ólafi Ólafs­syni og Finni Ing­ólfs­syni, fyrrum vara­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins og við­skipta­ráð­herra. Finnur hafði verið skip­aður seðla­banka­stjóri árið 2000 en hann lét af þeim störfum í sept­em­ber 2002 og tók við starfi for­stjóri trygg­inga­fé­lags­ins VÍS, sem tók síðan þátt í kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum.

Einka­væð­ing­ar­nefnd úti­lok­aði Íslands­banka frá við­ræðum um kaup á hlut í Lands­bank­anum vegna sam­keppn­is­sjón­ar­miða og ýtti hópi Þórðar Magn­ús­sonar einnig til hliðar þar sem hann þótti „vera lítið skil­greindur og óljós“. Viðræður fóru því fram við hina þrjá hópanna.

Snemma í sept­em­ber 2002 dró til tíð­inda. Á fundum sem haldnir voru 8. og 9. sept­em­ber var ákveðið að ganga til við­ræðna við Samson um kaup á hlut í Lands­bank­anum, þrátt fyrir að hóp­ur­inn hafi ekki átt hæsta til­boðið. Raunar var til­boð Samson lægra en til­boð bæði Kaldbaks og S-hóps­ins. Engin áreið­an­leika­könnun hafði farið fram á Samson þegar þessi ákvörðun var tekin. Á fund­ar­gerðum einka­væð­ing­ar­nefndar er nokkuð ljóst að alls engin ein­ing var á meðal nefnd­ar­manna um þessa ákvörðun.

Daginn eftir síð­ari fund­inn sagði Stein­grímur Ari Arason sig úr einka­væð­ing­ar­nefnd með bréfi til Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Í bréf­inu stóð m.a. að ástæðan væri „þau vinnu­brögð sem við­höfð hafa verið í aðdrag­anda þess­arar ákvörð­unar og hafa nú leitt til þess að aðrir áhuga­samir kaup­endur eru snið­gengnir þrátt fyrir hag­stæð­ari til­boð fyrir rík­is­sjóð á alla hefð­bundna mæli­kvarða. Ég[...]aldrei kynnst öðrum eins vinnu­brögðum.“

Síðar var rík­is­end­ur­skoðun fengin til að gera grein­ar­gerð sem byggði vegna ásak­ana Stein­gríms Ara. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að gagn­rýni hans hafi aðal­lega snú­ist um tvö atriði: Annars vegar hafi reglur um hvernig til­boðin voru metin verið óljósar og í „veiga­miklum atriðum ákveðnar eftir að til­boð lágu fyrir.“ Einka­væð­ing­ar­nefnd hafi ekki haft ákveðið vægi og ein­kunn­ar­gjöf fyrir ein­staka ákvörð­un­ar­þætti áður en að upp­lýs­ing­anna var aflað. Því hafi henni í raun verið gert ómögu­legt að gera grein fyrir mat­inu með hlut­lægum eða gegn­sæjum hætti. „Þegar hér var komið sögu hafi nið­ur­staðan óhjá­kvæmi­lega byggst á hug­lægu mati og var þar með spurn­ing um póli­tíska ákvörðun.“

Hitt sem Stein­grímur Ari gagn­rýndi var það sem hann taldi mik­il­væg atriði sem hefðu verið ófrá­gengin þegar sam­þykkt var að ganga til einka­við­ræðna við Samson um kaup á hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum. Meðal ann­ars hefðu hug­myndir um ásætt­an­legt verð verið óljósar. Hann taldi því ekki að stjórn­völd hefðu haft önnur til­búin mark­mið en að selja bank­ann þegar þau sett­ust niður til við­ræðna við Samson. Ekkert hafi legið ljóst fyrir um hvað stjórn­völd vildu fá út úr þeirri sölu.

Gagnrýni Stein­gríms Ara fær aukið vægi þegar tölvu­póst­sam­skipti tengd sölu Lands­bank­ans eru skoðuð. Þar er meðal ann­ars að finna póst frá Edward Williams, sem starf­aði hjá breska bank­anum HSBC og var einn helsti ráð­gjafi íslenskra stjórn­valda við söl­una, sem er dag­settur 29. ágúst 2002, nokkrum dögum áður en ákveðið var að selja Lands­bank­ann til Samson. Í tölvu­póst­inum leggur hann fram til­lögur um hvernig ætti mögu­lega að meta bjóð­endur í hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum. Þar segir Williams frá nýlegu mati sem HSBC hafði komið að varð­andi sölu á fjár­mála­stofnun. Þar hafði vægi fjár­hags­lega þáttar til­boðs­ins, sem er fyrst og fremst verð, verið 40 pró­sent en þrír aðrir þættir metnir 20 pró­sent hver. Í nið­ur­lagi pósts­ins frá Williams segir síðan að „með því að skil­greina við­mið og vega þau vand­lega, þá er mögu­legt að kom­ast að „réttri“ nið­ur­stöðu við að velja þann aðila sem þykir ákjós­an­leg­astur, en á sama tíma vera með hálf-vís­inda­lega (semi-scientific) rétt­læt­ingu fyrir ákvörð­un­inni sem myndi stand­ast utan­að­kom­andi gagn­rýni.“

Matið á bjóð­endum í hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum var síðan unnið þannig að rætt var við hópanna. Þann 6. sept­em­ber 2002 ræddi Williams við Björgólf Thor Björg­ólfs­son. Um hálf­tíma eftir að sam­tali þeirra lauk sendi hann einka­væð­ing­ar­nefnd póst og sagði frá því að hann hafi upp­lifað Björgólf Thor sem alvar­legan og stað­fastan fjár­festi. Hann ræddi líka í tölvu­póst­inum að breska fjár­mála­eft­ir­litið muni þurfa að sam­þykkja alla kjöl­festu­fjár­festa í Lands­bank­anum vegna eignar bank­ans í breska Herita­ble-bank­anum. Williams segir frá því að hann hafi fengið þau svör að slíkur ein­stak­lingur þyrfti að vera „fit and proper.“ Að mati Williams er slíkt mat hug­lægt, en bygg­ist helst á því að „ein­stak­ling­arnir séu með hámarks sið­ferði og að þeir hafi ekki gert neitt sem kasti rýrð á getu þeirra til að reka banka.“

Rík­is­end­ur­skoðun komst að þeirri nið­ur­stöðu eftir skoðun sína á ferl­inu, þrátt fyrir ofan­greindar aðfinnslur Stein­gríms Ara og önnur fyr­ir­liggj­andi gögn, að einka­væð­ing bank­anna hefði verið í lagi og í sam­ræmi við verk­lags­reglur. Þeir sem komu að einka­væð­ing­ar­ferl­inu vísa oft í þá nið­ur­stöðu Rík­is­end­ur­skoð­unar sem vott um að eðli­lega hafi verið staðið að sölu bank­anna.

Vildu kaupa meira en þriðjung

Í gögnum einka­væð­ing­ar­nefndar kemur þó skýrt fram að ekki var ein­ing á milli stjórn­ar­flokk­anna um hvernig sala Lands­bank­ans ætti að fara fram. Í minnis­p­unktum Skarp­héð­ins Bergs Stein­ars­sonar, starfs­manns nefnd­ar­innar, kemur til að mynda fram að „nokkur and­staða er hjá Fram­sókn­ar­mönnum við að Samson kaupi meira en 33,3%.“

Samson vildi hins vegar kaupa 45,8 pró­sent hlut og Björgólfur Thor var alls ekki sáttur með að hlut­ur­inn yrði tak­mark­aður. Hann sendi bréf til Val­gerðar Sverr­is­dóttur þar sem hann sagði m.a. að „til að geta talist kjöl­festu­fjár­festir í Lands­bank­anum er 33% eign­ar­hlutur ekki nægj­an­legur í ljósi þeirra miklu fjár­muna sem Samson hefur lýst yfir áhuga á að koma með inn í íslenska hag­kerfið.“

Björgólfur Thor sendi líka bréf til Ólafs Dav­íðs­sonar, for­manns einka­væð­ing­ar­nefndar, þar sem hann hót­aði að slíta við­ræðum um kaup á Lands­bank­anum ef ekki yrði gengið að óskum hans. Björgólfur Thor gaf stjórn­völdum einn dag til að svara.

Daginn eftir að svar­frest­ur­inn rann út, þann 18. októ­ber 2002, var skrifað undir sam­komu­lag um að selja Samson 45,8 pró­sent hlut íslenska rík­is­ins í Lands­bank­anum. Fyrir þennan hlut greiddi Samson-hóp­ur­inn á end­anum 11,2 millj­arða króna. Upp­runlega stóð til að Samson-hóp­ur­inn myndi taka lán fyrir 70 pró­sent af kaup­verð­inu en þegar upp var staðið var alls 65 pró­sent af kaup­verð­inu greitt með eigin fé en restin með láni frá Bún­að­ar­banka Íslands. Form­legur kaup­samn­ingur var síðan und­ir­rit­aður á gaml­árs­dag 2002 og nýju eig­end­urnir tóku við bank­anum á aðal­fundi Lands­bank­ans í febr­úar 2003. Björgólfur Guð­munds­son sett­ist þá í stól stjórn­ar­for­manns bank­ans og sat í honum þar til Lands­bank­inn og íslenskt banka­kerfi hrundi í októ­ber 2008.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár