Trump segir frekara samtal er ekki lausnin við Norður-Kóreu

Forseti Banda­ríkj­anna hefur úti­lokað diplómat­ískar lausnir, í ber­högg við varn­ar­mála- og utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í símanum.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, í sím­anum. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefur úti­lokað þá mögu­leika sem fela í sér frek­ari diplómat­ískar við­ræður gagn­vart auk­inni ógn frá Norður-Kóreu. Í gær sagði Trump alla kosti koma til álita í mál­efnum Norður-Kóreu en lýsti nýrri skoðun sinni á Twitter í dag.

„Banda­ríkin hafa verið að ræða við Norður-Kóreu og fjár­kúgað stjórn­völd þar í 25 ár. Frekara sam­tal er ekki svarið!“ skrif­aði for­set­inn í færslu á Twitter.

[links]Trump hefur heitið því að leyfa norð­ur­kóreskum stjórn­völdum ekki að kom­ast upp með þróun vopna sem drífa á meg­in­land Norður-Ameríku. Í gær gerði Norður-Kórea svo til­raun með með­al­drægar eld­flaugar sem flugu yfir jap­anskar eyjar og lenti í Kyrra­haf­inu handan Japan, með þeim afleið­ingum að almanna­varn­ar­bjöllur gullu í japönskum borgum.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa for­dæmt þessa „sví­virði­legu“ til­raunir Norður-Kóreu og farið fram á að ríkið hætti öllum vopna­þró­un­ar­á­ætl­unum sínum. Þó var ekki ráð­ist í frek­ari við­skipta­þving­anir.

Skrif for­set­ans á Twitter eru í and­stöðu við það sem utan­rík­is­ráð­herra og varn­ar­mála­ráð­herra hans hafa sagt, en þar segj­ast ráða­menn róa öllum árum að diplómat­ískri lausn á norð­ur­kóreska vanda­mál­inu. Fyrr í þessum mán­uði sagði Jim Mattis varn­ar­mála­ráð­herra að til­raunir Banda­ríkj­anna væru „af diplómat­ískum toga. Þær væru reknar af diplómötum. Þær eru að fram­kalla diplómat­ískar lausnir.“

[adspot]

Þingmenn í Banda­ríkja­þingi hafa gagn­rýnt for­set­ann fyrir óheflaða fram­komu á Twitter-reikn­ingi sínum og sagt Trump verða að gæta orða sinna. „Þetta er hugs­an­lega það allra hættu­leg­asta, ábyrgð­ar­laus­asta tvít for­seta­dóms hans. Millj­ónir manns­lífa eru að veði – þetta er eng­inn leikur,“ skrif­aði Öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Chris Murphy á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár