Norður-Kórea: Flugskeytin yfir Japan aðeins þau fyrstu

Stjórn­völd í Norður-Kóreu segj­ast ætla að halda áfram að skjóta flug­skeytum yfir jap­anskt yfir­ráða­svæði og Kyrrahaf.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu.
Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu. Mynd: EPA

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur harð­lega gagn­rýnt og for­dæmt flug­skeyta­send­ingar Norður-Kóreu yfir jap­anskt yfir­ráða­svæði, en stjórn­völd í Norður-Kóreu segja þau aðeins upp­hafið af frek­ari skotum yfir jap­anskt yfir­ráða­svæði og Kyrrahaf. Við­vör­un­ar­kerfi fór í gang í Japan, þar sem flug­skeytin flugu yfir áður en þau lentu í Kyrra­hafi, og voru íbúar beðnir um að leita skjóls, helst í kjöll­urum húsa.

Frá þessu greinir breska rík­is­út­varpið BBC. Samstaða náð­ist í örygg­is­ráð­inu um að for­dæma Norður-Kóreu og var Kína með í þeirri sam­stöðu, en oftar en ekki hefur landið haldið hlífi­skildi yfir Norður-Kóreu á vett­vangi örygg­is­ráðs­ins.

Stjórn­völd í Kína segja nú að þau muni taka þátt í aðgerðum ann­arra ríkja í ör­ygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna vegna eld­flauga­skots Norður-Kór­eu yfir Jap­an. Þetta kom fram í máli ut­an­rík­is­ráð­herra Kína, Wang Yi, eft­ir að ör­ygg­is­ráðið hafði ein­róma for­dæmt eld­flauga­skotið.

Full­trúi Jap­ans í ör­ygg­is­ráð­inu hef­ur lagt til að nýj­ar refsi­að­gerðir verði lagðar á N-Kór­eu.

Að sögn Wang mun Kína, sem er eini stóri banda­maður Norður-Kór­eu, taka þátt með öðrum ríkj­um ör­ygg­is­ráðs­ins í aðgerðum gegn Norður-Kór­eu. Brugðist verði við og gripið til nauð­syn­legra aðgerða vegna eld­flauga­skots­ins.

Sér­stak­lega hefur nú spennan á Kóreu­skaga beinst að Guam, þar sem Banda­ríkja­her er með her­stöð. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur sagt að „allt sé til reiðu“ ef það þarf að beita her­valdi vegna ógn­ar­innar frá Norður-Kóreu.

Stjórn­völd í Japan hafa kraf­ist þess að alþjóða­sam­fé­lagið grípi fastar í taumana. Það örygg­is­leysi sem íbúar í Japan finni fyrir sé ólíð­andi, og eitt­hvað sem ekki sé hægt að sætta sig við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár