Norður-Kórea sendi flugskeyti yfir Japan

Við­vör­un­ar­kerfi á svæð­inu þar sem flug­skeyti flugu yfir fór í gang. Íbúar brugð­ust við vegna þessa.

Her Norður-Kóreu skaut í kvöld flug­skeytum á loft sem flugu yfir Japan. Við­vör­un­ar­kerfi fór í gang og voru íbúar beðnir um að bregð­ast taf­ar­laust við og fylgja áætl­unum eins og um raun­veru­lega flug­skeyta­árás væri að ræða.

Skeytin lentu ekki í Japan, heldur á hafi úti, nánar til­tekið í norð­an­verðu Kyrra­hafi. Flug­skeytin fór um 2.700 kíló­metra leið og flugu yfir land­svæði sem til­heyrir eynni Hokkaido, að sögn BBC. Nú þegar hafa stjórn­völd í Japan for­dæmt flug­skeyta­skotin og varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefur stað­fest að þau hafi átt sér stað.

Mikil spenna er nú á Kóreu­skaga og hafa stjórn­völd í Suður-Kóreu og Japan þegar sent frá sér yfir­lýs­ingar, þar sem skot Norður-Kóreu eru for­dæmd og þess kraf­ist að alþjóða­sam­fé­lagið grípi taf­ar­laust inn í.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur sagt, að Norður-Kórea muni fá að finna fyrir því ef her lands­ins hættir ekki flug­skeyta­árásum sínum. Kim Jung Un, hinn óút­reikn­an­legi leið­togi Norður-Kóreu, hefur þó ekki látið af hót­unum sínum í garð Banda­ríkj­anna, og ef eitt­hvað er, þá hefur hann frekar bætt í yfir­lýs­ing­arnar að und­an­förnu.

[adspot]

Hann hefur marg­ít­rekað hótað Banda­ríkj­unum, Suður-Kóreu og Japan flug­skeyta­árásum, og segir að Norður-Kórea muni verj­ast öllum hern­að­ar­til­burðum „and­stæð­inga“ af hörku.

Boris Johnson, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, hefur nú þegar tjáð sig um flug­skeyta­skot Norður-Kóreu og segir þau „brjál­æð­is­leg“ og með öllu ólíð­andi.

Ekki liggur fyrir hvernig Sam­ein­uðu þjóð­irnar hyggj­ast bregð­ast við árás­unum, en örygg­is­ráð Suður-Kóreu hefur þegar verið kallað saman, að sögn BBC.

Uppfært 05:49: Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann krefst þess að örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­ann fundi taf­ar­laust vegna flug­skeyta­skots Norður-Kóreu. Hann segir atburð­inn vera alvar­lega ógn við heims­frið.

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur verið kallað saman á fund, síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár