Þurfa að taka smálán til að vera með í happdrætti

Leikur smá­lána­fyr­ir­tæk­is­ins Kredia, vegna þátt­töku Íslands á HM, gerir það að skil­yrði að þátt­tak­endur skuld­setji sig. Skuldir ung­menna vegna smá­lána hafa hækkað umtals­vert síð­ast­liðin ár. Lög­fræð­ingur Neyt­enda­sam­tak­anna segir að á meðan smá­lána­fyr­ir­tækin fái að starfa á laga­legu gráu svæði sé þeim þetta heim­ilt.

Smálánafyrirtækið Kredia
Smá­lána­fyr­ir­tækið Kredia

„Ef að þetta væri leyf­is­skyld starfs­semi, sem að vonir standa til um að þetta verði í nán­ustu fram­tíð, þá væri þessum fyr­ir­tækjum örugg­lega ekki heim­ilt að haga sér með þessum hætti. En á meðan fyr­ir­tækin starfa á laga­legu grái svæði er í raun og veru ekk­ert sem bannar þetta,“ segir Hrannar Már Gunn­ars­son, lög­fræð­ingur hjá Neyt­enda­sam­tök­unum.

Smá­lána­fyr­ir­tækið Kredia stendur fyrir sam­keppni vegna leiks Íslands við Nígeríu á HM í dag. Til þess að taka þátt þurfa þátt­tak­endur að taka smá­lán og giska á úrslit leiks­ins en einn þátt­tak­andi mun svo vera dreg­inn út og vinna sjón­varps­tæki. Kredia er í eigu Ecommerce 2020 sem er félag skráð í Danmörku.

Leikur Kredia.Til að taka þátt í leiknum þarf að taka smá­lán.

Neyt­enda­sam­tökin hafa kallað eftir því að smá­lána­fyr­ir­tækin verði gerð leyf­is­skyld. Í dag telj­ast þau ekki til fjár­mála­fyr­ir­tækja og falla því ekki undir lög um fjár­mála­fyr­ir­tæki.  Þannig gildir 19. grein laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki ekki um smá­la­ána­fyr­ir­tæki en þar er fjallað um góða við­skipta­hætti og venjur. Þar segir meðal ann­ars að fjár­mála­fyr­ir­tæki skuli starfa í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti og venjur á fjár­mála­mark­aði.

Smálánin sliga ungt fólk

Síð­ast­liðin tvö ár hefur þeim sem leita úrræði hjá umboðs­manni skuld­ara fjölgað um tæp 25 pró­sent og hlut­fall umsækj­enda með smá­lán farið úr 13 pró­sentum í 43 pró­sent. Umboðs­maður skuld­ara benti á fyrr á árinu að mark­aðassetn­ing smá­lána­fyr­ir­tækja bein­ist að ungu fólki og hóp­ur­inn sé í veikri stöðu. Verst er staðan hjá ungu fólki en árið 2017 var hlut­fall fólks með smá­lán, á aldr­inum 18 til 29 ára, sem sótti um ráð­gjöf og greiðslu­að­lögun 70 pró­sent.  Þá hafa skuldir þessa hóps hækkað umtals­vert en árið 2016 var með­al­skuld ung­menna um 400 þús­und krónur en í fyrra nam fjár­hæðin um 600 þús­und krónum.

Í grein félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, Ásmundar Einar Daða­sonar, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í febr­úar er vikið að vand­anum sem að smá­lán skapa ungu fólki. „Það er orðið aðkallandi að bregð­ast við til að sporna við því að ungt fólk í hópi þeirra tekju­lægstu lendi í skulda­vanda vegna lána sem það tekur í fljótræði án þess að gera sér grein fyrir kostn­að­inum og sjá fyrir afleið­ing­arnar. Við þurfum að beina sjónum að starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækj­anna varð­andi umgjörð og eft­ir­lit og auka þarf fræðslu um fjár­mál svo ungt fólk verði betur í stakk búið til að taka fjár­hags­legar ákvarð­anir,“ segir meðal ann­ars í grein­inni.

Herjuðu á fólk með óumbeðnum SMS-skilaboðum

Smá­lána­fyr­ir­tækin komust í frétt­irnar í fyrra þegar upp komst að þau hefðu sent fjölda fólks óum­beðin SMS-skila­boð þar sem boðið var upp á smá­lán. Slík mark­aðs­setn­ing er bönnuð sam­kvæmt 46. grein fjar­skipta­laga en sam­kvæmt grein­inni er aðeins heim­ilt að senda slík skila­boð hafi ein­stak­ling­ur­inn veitt sam­þykki sitt fyrir því fyrir fram.

Við­tak­endur SMS-skila­boð­anna voru ávarp­aðir með nafni og bent á hve auð­veld væri að sækj­ast eftir láni hjá smá­lána­fyr­ir­tækj­unum. „Hæ, þú manst að þú átt 60.000 þús­und króna heim­ild hjá okkur. Þú getur svarað þessu SMS-i og við leggjum lánið inn á þig strax. Eigðu góðan dag, Smálán,“ segir í skila­boðum frá Smálán sem skráð er í Danmörku.

Skilaboð frá öðru smá­lána­fyr­ir­tæki, Hrað­pen­ingar sem sam­kvæmt vef­síðu sinni er í eigu danska fyr­ir­tæk­is­ins Ecommerce 2020, brutu einnig gegn fjar­skipta­lögum. „Vantar þig pen­inga og lán í bank­anum er of flókið?“

Brjóta ítrekað gegn lögum um neytendalán

Neyt­enda­sam­tökin hafa haft horn í síðu smá­la­fyr­ir­tækja síðan þau fóru að hasla sér völl. Í frétta­til­kynn­ingu sam­tak­anna fyrr á árinu segja sam­tökin smá­lána­fyr­ir­tækin ítrekað brjóta gegn lögum um neyt­enda­lán og það hafi meðal ann­ars fengið stað­fest fyrir dóm­stólum. Þá hefur Neyt­enda­stofa lagt dag­sektir á fyr­ir­tækin vegna nýrri mála er varða sölu raf­bóka sam­hliða lán­veit­ingu. Samtökin krefj­ast þess að atvinnu­vega- nýsköp­un­ar­ráðu­neytið end­ur­skoði starfs­hætti smá­lána­fyr­ir­tækja og tryggi að þau starfi sam­kvæmt lögum.

Þá hafa sam­tökin gagn­rýnt stjórn­völd harð­lega fyrir aðgerða­leysi. „Starf­semin heldur að minnsta kosti óhindrað áfram. Það virð­ist þannig hag­stæð­ara fyrir smá­lána­fyr­ir­tæki að standa í mála­rekstri við eft­ir­lits­stofn­anir, dóm­stóla og jafn­vel fá á sig sektir en að fara að lög­unum og lækka lána­kostn­að­inn svo þau stand­ist lög,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár