Logi: Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa gefið Sjálfstæðisflokknum allt of mikil völd í gegnum tíðina

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar skýtur föstum skotum að rík­is­stjórn­inni í stefnu­ræðu sinni á lands­fundi flokks­ins.

Logi Már Einarsson
Logi Már Ein­ars­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenskir stjórn­mála­flokkar hafa gefið Sjálf­stæð­is­flokknum allt of mikil völd í gegnum tíð­ina. Í krafti 30 pró­sent fylgis hefur hann setið í allt of mörgum rík­is­stjórnum; þrátt fyrir að 70 pró­sent þjóð­ar­innar hugn­ist hvorki við­horf hans, né stefna.

Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í stefnu­ræðu sinni rétt í þessu á lands­fundi flokks­ins sem hald­inn er um helg­ina.

Hann segir enn­fremur að það sama sé upp á ten­ingnum í mörgum sveit­ar­stjórnum. Félags­hyggju­flokkar verði að átta sig á þessu og leita allra mögu­legra leiða til að vinna saman.

„Þannig tök­umst við best á við flókna og breytta fram­tíð og tryggjum almenn­ingi betri lífs­kjör. Okkur greinir vissu­lega á um fullt af hlutum en um stór mál getum við sam­ein­ast. Ég nefni aukin jöfnuð, sterkt opin­bert mennta- og heil­brigð­is­kerfi, rétt­látt afgjald af auð­lindum og nýja stjórn­ar­skrá.

Ef okkur auðn­ast þetta ekki höldum við áfram að vera á víxl, fylgitungl Sjálf­stæð­is­flokks­ins, með vel þekktum afleið­ingum, bæði fyrir flokk­ana en sér­stak­lega fyrir sam­fé­lagið. Þessu ætlum við að breyta,“ segir Logi.

Eignaójöfnuður vandamál

Logi segir að tekju­jöfn­uður á Íslandi sé með því sem mesta sem ger­ist í heim­inum, jafn­rétti kynj­anna sömu­leiðis og aðbún­aður almenn­ings allur annar. Þetta sýni að það sé hægt að breyta hlutum til hins betra. En þó að almenn lífs­kjör hafi batnað mikið, sé enn mikið ógert og þá skiptir máli hvaða flokkar stjórni.

„Við lifum hvorki né hrærumst í með­al­tölum eða vísi­tölum. Hver og einn sem getur ekki fram­fleytt sér skiptir máli. Mikill fjöldi venju­legs launa­fólks, aldr­aðra og öryrkja á nær ekki endum saman og þarf jafn­vel að neita sér um lækn­is­þjón­ustu eða annað sem telst til sjálf­sagðra hluta í dag. Eign­ar­staða ungs fólks er slæm og margar barna­fjöl­skyldur hrekj­ast um á dýrum og ótryggum leigu­mark­aði, með vondum afleið­ingum fyrir fjöl­skyldu­lífið og börnin,“ segir hann.

Jafnvel þó það sé nauð­syn­legt að hækka laun og líf­eyri þeirra verst settu segir tekju­jöfn­uður aðeins hluta sög­unnar. Eigna­ó­jöfn­uður sé alvar­legt vanda­mál í heim­inum en í dag eigi til dæmis 5 pró­sent Íslend­inga jafn miklar eignir og hin 95 pró­sentin. Þessi ójöfn­uður sé stöðugt að aukast og auð­ur­inn fær­ist auk þess á æ færri hendur.

„Samhliða þess­ari gríð­ar­legu sam­þjöppun auðs hafa þeir eigna­mestu hreiðrað um sig á öllum sviðum sam­fé­lags­ins sam­tímis. Í útgerð, bönkum, orku­fyr­ir­tækjum, trygg­ing­ar­fé­lögum dag­blöðum og nú síð­ast á hús­næð­is­mark­aði,“ segir Logi.

Ríkisstjórnin stendur ekki við loforð sín

Logi segir jafn­framt að hingað til bendi ekk­ert til þess að núver­andi rík­is­stjórn ætli að ráð­ast gegn auk­inni mis­skipt­ingu. Og raunar segi í nýlegri ályktun mið­stjórnar ASÍ: „Í rann­sókn hag­deildar ASÍ á þróun skatt­byrði launa­fólks síð­ast­liðin 20 ár kemur skýrt fram að skatt­byrði launa­fólks hefur auk­ist og þeim mun meira eftir því sem tekj­urnar eru lægri. Það eru því mikil von­brigði að ekki sé brugð­ist við þess­ari þróun í fjár­laga­frum­varp­inu heldur þvert á móti haldið áfram á sömu braut með því að lækka útgjöld til barna­bóta, vaxta­bóta og hús­næð­is­bóta. Tekju­ó­jöfn­uður mun halda áfram að aukast þar sem dregið er enn frekar úr jöfn­un­ar­hlut­verki skatt­kerf­is­ins.“

Og það sem verra er, að mati Loga, þá skilar rík­is­stjórnin auðu þegar kemur að þeim verst settu, öldruðum, öryrkjum og ungum barna­fjöl­skyldum. Hann segir að þau séu látin bíða áfram. Ekki sé staðið við marg­ít­rekuð lof­orð um að styrkja inn­viði og almanna­þjón­ustu. Rík­is­stjórnin bjóði hvorki upp á trú­verð­uga lífs­kjara­sókn eða leið til auk­ins félags­legs stöð­ug­leika.

Ábyrgð­inni á hvoru tveggja sé varpað yfir á stétta­fé­lög. Það félags­lega öryggi, sem er talið sjálf­sagt í nágranna­lönd­unum, ætli rík­is­stjórnin að nota sem skipti­mynd í kjara­samn­ingum. En það sem valdi ekki síst áhyggjum sé efna­hags­stjórnin. Til þess að ráð­ast í vel­ferðar útgjöld þurfi að afla var­an­legra tekna. Ekki freist­ast til þess að nota forð­ann, sem sé jafn hverf­ull og íslenskt veður.

Afleiðingjunum velt yfir á næstu ríkisstjórn

Logi telur að á toppi hag­sveiflu sé réttur tími til þess að auka tekjur og nota þær til að jafna kjörin og styrkja vel­ferð­ina. Það sé auk þess skyn­sam­legt, til þess að lækka vexti, halda aftur af verð­bólgu og milda næstu nið­ur­sveiflu, Ef þetta er ekki gert, og þegar hin mögru ár koma, hafi reynslan kennt okkur að það fyrsta sem lendir undir hnífnum er vel­ferðin.

„Rík­is­stjórnin ætlar sem sagt að setj­ast í sófann, éta úr ísskápnum og hirða ekki um að fara út og draga björg í bú. Afleið­ingum þess er velt yfir á næstu rík­is­stjórn. Auk þessa gefur hún eftir yfir 20 millj­arða króna frá síð­ustu fram­lögðu fjár­lögum. Þær tekjur hefðu sann­ar­lega nýst til aðgerða gegn fátækt,“ segir hann.

Afleið­ing­arnar séu fyr­ir­sjá­an­legar, meðal ann­ars þær sem Seðla­bank­inn nefnir: „Minna aðhald í rík­is­fjár­mál­unum mun því óhjá­kvæmi­lega hafa í för með sér að vextir og gengi krón­unnar verða hærri en ella hefði orðið.“

Lykillinn að ná góðum samningi við Evrópusambandið

Logi segir að for­senda þess að hægt sé að tryggja gott vel­ferð­ar­kerfi sé traust og og líf­legt atvinnu­líf, byggt á frum­kvæði ein­stak­lings­ins og frjálsri sam­keppni. Hags­munir þess og almenn­ings séu best tryggðir með auknum sam­skiptum við umheim­inn. Hann segir að Íslend­ingar þurfi að ná góðum samn­ingi við Evr­ópu­sam­bandið og taka upp stærri og stöðugri gjald­miðil í fyll­ingu tím­ans.

„Það er einn helsti lyk­ill­inn að því að því að búa fjöl­skyldum öryggi og fram­sæknum fyr­ir­tækjum við­un­andi skil­yrði. Við verðum að vera nógu skyn­söm til að horfa til fram­tíðar og nógu djörf til að fjár­festa í henni,“ segir hann.

Róttækar breytingar á skattakerfinu

Logi telur að skoða þurfi rót­tækar breyt­ingar á skatt­kerf­inu, til að hindra að ágóð­inn af tækni­þró­un­inni verði ekki allur eftir hjá fyr­ir­tækj­unum. Slíkt mundi leiða til þess að stjórn­völd réðu ekki við að halda upp öfl­ugu vel­ferð­ar­kerfi og bilið milli þeirra efna­meiri og snauðu, næði áður óþekktum hæðum. Íslend­ingar verði að sjálf­sögðu að vinna sína heima­vinnu en úti­lokað sé að mæta þess­ari áskorun nema í víð­tæku alþjóð­legu sam­starfi.

Hins vegar verði Íslend­ingar að fjár­festa miklu meira í menntun. Skóla­starf þurfi að taka mið af þess­ari nálægu fram­tíð. Menntun verði hluti af til­ver­unni, með einum eða öðrum hætti alla ævi, og Íslend­ingar verði að leggja enn meiri áherslu á tækni­greinar, skap­andi skap­andi hugsun; líka menn­ingu og listir.

Ríkt land eins og Ísland á að gera betur

Logi segir að Íslend­ingar þurfi líka að glíma við flókn­ari sið­ferð­is­spurn­ingar. Hver er réttur okkar til einka­lífs, upp­lýs­inga og hver er réttur mis­mun­andi hópa til að við­halda menn­ingu sinni og trú?

Hann spyr sig hvort Íslend­ingar eigi, og hversu mikið þá, að leggja að mörkum til þess hluta jarð­ar­búa sem býr við hungur, er á flótta undan hörm­ungum og stríði eða eru í örvænt­ing­ar­fullri leit eftir öryggi og betra lífi. Hann segir að svarið sé já, auð­vitað og ríkt land eins og Ísland eigi að gera miklu betur. „Við stöndum einnig frammi fyrir þeirri stað­reynd að far­sæl fram­tíð mann­kyns er háð því að við lítum á hvert annað sem systkin og eigum allt undir því að vinna saman. Tilbúin landa­mæri, trú eða lit­ar­háttur fá engu um það breytt,“ segir hann.

„Þær fréttir ber­ast frá nágranna­löndum okkar að setja eigi lög, sem brjóta gróf­lega mann­rétt­indi á stórum hópum. Jafnvel syst­ur­flokkur okkar í Danmörku hefur boðað stefnu sem er í mörgu mann­fjand­sam­leg. Við skulum ein­setja okkur að falla aldrei í þá freistni að gefa afslátt af mannúð, í örvænt­inga­fullri til­raun til að stækka flokk­inn.“

Enn­fremur telur hann að stærsta og aug­ljós­asta fyrsta skrefið til að sið­væð­ingar stjórn­mála og sam­fé­lags­ins sé að breyta stjórn­ar­skránni, þannig að hún byggi á til­lögum stjórn­laga­ráðs. „Við skulum beita okkur fyrir því,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár