Viku síðar er ekki enn búið að herða aðgerðir á landamærum eins og Þórólfur taldi réttast

Sótt­varna­læknir lagði til við heil­brigð­is­ráð­herra fyrir viku síðan að aðgerðir á landa­mærum yrðu hertar „eins fljótt og auðið er.“ Viku síðar er enn verið að skoða laga­legan grund­völl fyrir sumum þeim aðgerðum sem sótt­varna­læknir taldi brýnt að ráð­ast í.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir beindi því til Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í minn­is­blaði 6. jan­úar síð­ast­lið­inn að gripið yrði til hertra aðgerða á landa­mærum „eins fljótt og auðið er“ til að lág­marka hætt­una á því að nýtt og meira smit­andi afbrigði kór­ónu­veirunnar, „breska afbrigðið“, næði fót­festu hér á landi.

Í dag er 13. jan­úar. Ekki er búið að koma til­lögum Þórólfs í fram­kvæmd nema að tak­mörk­uðu leyti, en í gær kynnti heil­brigð­is­ráðu­neytið að frá og með deg­inum í dag yrði börnum sem fædd eru árið 2005 og síðar gert að fara í sótt­kví með for­ráða­manni. Þar með er lokað fyrir það að börn sem koma erlendis frá geti farið bein­ustu leið í skól­ann.

„Þarna er smuga sem okkur er illa við“

„Staðan eins og hún er í dag horfir illa við okkur,“ segir Sig­ur­geir Ómar Sig­munds­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og yfir­maður flug­vall­ar­deildar emb­ætt­is­ins. „Þarna er smuga sem okkur er illa við, að fólk kom­ist inn í landið án þess að fara í nokk­urs konar próf. Þannig að það er ósk­andi að girt verði fyrir það sem fyrst.“

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sagt að verið sé að skoða laga­legan grund­völl fyrir öðrum fyr­ir­byggj­andi aðgerðum sem Þórólfur lagði til að gripið yrði til á landa­mærum Íslands.

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis, sem Kjarninn fékk afhent frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í dag, gefur sótt­varna­læknir ráð­herra í raun tvo val­kosti sem varða full­orðna ein­stak­linga sem til lands­ins koma. Mark­miðið er að reyna að gull­tryggja að þessir ein­stak­lingar smiti ekki út frá sér í sam­fé­lag­inu, en í minn­is­blað­inu segir Þórólfur dæmi um að ein­stak­lingar sem kjósi að fara í 14 daga sótt­kví í stað skimunar fari ekki eftir reglum um sótt­kví.

Annars vegar lagði Þórólfur til að allir yrðu skyld­aðir í tvær skimanir með 5 daga sótt­kví á milli. 14 daga sótt­kví yrði ekki lengur mögu­leg. Hins vegar lagði Þórólfur til að þeim sem fara í 14 daga sótt­kví yrði gert að vera í sótt­kví í far­sótt­ar­húsi (eða öðru opin­beru hús­næði) með eða án kostn­aðar, og fylgst yrði náið með því að reglum væri fylgt.

„Við höfum stutt sótt­varna­lækni heils­hugar í því að loka á mögu­leik­ann á fjórtán daga sótt­kví eða að fólk myndi sitja hana af sér í sótt­varna­húsi,“ segir Sig­ur­geir. „Far­ald­ur­inn er mjög alvar­legur erlendis og fjöldi smita á landa­mær­unum end­ur­speglar það.“

Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum og yfirmaður flugvalladeildar embættisins segir óskandi að það verði girt fyrir þá glufu sem er nú til staðar varðandi sóttkví við komuna til landsins sem fyrst.
Yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og yfir­maður flug­valla­deildar emb­ætt­is­ins segir ósk­andi að það verði girt fyrir þá glufu sem er nú til staðar varð­andi sótt­kví við kom­una til lands­ins sem fyrst.

Frá því að sýna­taka á landa­mærum var gerð gjald­frjáls í des­em­ber hafa fleiri valið að fara í skimun en engu að síður er alltaf hluti far­þega sem vill ekki í sýna­töku, að sögn Sig­ur­geirs. Á síð­ustu vikum hafa tæp­lega þrjá­tíu valið sótt­kví frekar en skimun. „En það þarf ekki nema einn, við vitum það,“ minnir Sig­ur­geir á og rifjar upp hvernig bláa afbrigði veirunnar, það sem fyrst og fremst hefur greinst hér á landi síð­ustu mán­uði, komst inn í landið. Það afbrigði komst inn í landið með einu pari og olli far­aldri.

Fólk gefur ýmsar ástæður fyrir því að fara ekki í skimun á landa­mærum. Sumir vísa í að það sé þeirra réttur og aðrir vilja ekki að lífs­sýnum úr þeim sé safnað með þessum hætti. Áður en gjald­töku var hætt voru fleiri sem völdu sótt­kvína svo pen­ingar virð­ast einnig hafa spilað hlut­verk. Sig­ur­geir segir að vissu­lega séu sumir sem koma til lands­ins sann­ar­lega að fara beint í sótt­kví og fari eftir öllum reglum í því sam­bandi.

„En það er vitað að það eru ekki allir að fylgja því að fara í fjórtán daga sótt­kví,“ segir Sig­ur­geir og vísar m.a. til orða Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis í Silfrinu um helg­ina í því sam­bandi.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sagt von á ákvörðun um aðgerðir í þessari viku.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sagt von á ákvörðun um aðgerðir í þess­ari viku.

„Okkar fólk talar svo við þá sem eru að koma inn í landið og það skín stundum í gegn að fólk ætlar sér ekki að halda sótt­kví. Þá látum við lög­reglu­um­dæmi þar sem við­kom­andi býr vita. Og reynt er svo eftir fremsta megni að fylgj­ast með. En það segir sig sjálft að það er ekki hægt að fylgj­ast með öllum alltaf. Það er eng­inn mann­afli í það,“ segir Sig­ur­geir.

Lagalegur grundvöllur aðgerða til skoðunar

Svandís heil­brigð­is­ráð­herra tal­aði með þeim hætti í síð­ustu viku að lík­leg­ast væri að fólk yrði skyldað til þess að dvelja 14 daga í far­sótt­ar­húsum.

Í gær sagði hún hins vegar við mbl.is að verið væri að skoða laga­grund­völl­inn fyrir þeirri aðgerð og fleiri útfærslu­mögu­leika, eins og til dæmis það að gera kröfu um nei­kvætt próf sem tekið yrði í land­inu sem við­kom­andi kæmi frá.

Hún sagði von á ákvörðun um hvernig málum yrði háttað í þess­ari viku.

Það sem Þórólfur lagði til:

  • 1. Allir (nema þeir sem eru með vott­orð um fyrri sýk­ingu) verði skyld­aðir til að und­ir­gang­ast tvær skimanir á landa­mærum með 5 daga sótt­kví á milli. 14 daga sótt­kví án skimunar verði ekki val­kvæð nema af lækn­is­fræði­legum ástæðum.
  • 2. Þeir sem fara í 14 daga sótt­kví verði gert að vera í sótt­kví í far­sótta­húsi (eða öðru opin­beru hús­næði) með eða án kostn­aðar þar sem fylgst verður náið með því að reglum verði fylgt.
  • 3. Fylgst verði vel með þeim sem velja skimanir með 5 daga sótt­kví með reglu­legum sím­tölum og þeim gefnar nauð­syn­legar upp­lýs­ingar. Sér­stak­lega á þetta við um þá sem grein­ast með „breska stofn­inn“.
  • 4. Börn sem fædd eru 2005 og síðar verði gert að vera í sótt­kví með for­ráða­manni þó sýna­taka sé ekki fram­kvæmd.

Fólk hefur verið hvatt til að velja sýnatöku fremur en sóttkví

Í minn­is­blaði Þórólfs er farið yfir það að far­ald­ur­inn hafi verið í mik­illi upp­sveiflu í nálægum löndum en verið í lág­marki hér inn­an­lands. Upp­sveifl­una erlendis mætti víða að miklu leyti rekja til nýs stofns veirunnar, sem greind­ist fyrst í Bret­landi.

Staðan á faraldrinum er góð hér á landi miðað við flest nágrannalönd, en sumstaðar hefur breska afbrigðið valdið því að faraldurinn er í hæstu hæðum.
Staðan á far­aldr­inum er góð hér á landi miðað við flest nágranna­lönd, en sum­staðar hefur breska afbrigðið valdið því að far­ald­ur­inn er í hæstu hæðum.

„Komið hefur í ljós að þessi stofn virð­ist smit­ast auð­veldar milli manna en aðrir stofnar og vís­bend­ingar eru um að hann valdi einnig meiri smitum hjá börnum,“ skrifar Þórólfur, en Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þetta nýja afbrigði og einnig nýtt afbrigði sem greind­ist fyrst í Suður-Afríku nýlega.

Þórólfur sagði í minn­is­blaði sínu að fólk hefði að und­an­förnu verið hvatt til þess að fara í skimun frekar en sótt­kví. „Þetta hefur leitt til að um 1% velur nú sótt­kví og eru þetta um 26 manns frá 10. des­em­ber sl. Í nokkrum til­fellum hafa þessir ein­stak­lingar hins vegar verið staðnir að því að halda ekki þær reglur sem um sótt­kví gilda sem eykur hættu á frekara smiti,“ rit­aði sótt­varna­læknir.

„Í ljósi þeirra góðu stöðu sem er á COVID far­aldr­inum núna inn­an­lands, vax­andi útbreiðslu far­ald­urs­ins í nálægum löndum og þeirrar hættu sem virð­ist yfir­vof­andi að „breski stofn­inn“ nái að breið­ast út hér inn­an­lands, þá tel ég mik­il­vægt að við tryggjum bestu fyr­ir­byggj­andi aðgerðir á landa­mærum,“ skrif­aði sótt­varna­læknir í minn­is­blaði sínu til ráð­herra 6. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár