Ákvæði í deiliskipulagi sveitarfélagsins Garðs kemur í veg fyrir sölu á Garðbraut 85, rúmlega 1400 fermetra fasteign, sem áður hýsti hjúkrunarheimilið Garðvang. Ákvæðin snúa að notkun lóðarinnar sem, samkvæmt núverandi aðalskipulagi, gerir aðeins ráð fyrir opinberri starfsemi. Hjúkrunarheimilinu var lokað árið 2014, á sama tíma og nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili við Nesvelli í Reykjanesbæ var tekið í notkun en það er rekið af Hrafnistu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir