Iðnríkin myndu tapa á því að hamstra bóluefni

Ný rann­sókn sýnir að heims­bú­skap­ur­inn gæti orðið fyrir miklu fram­leiðslutapi ef þró­un­ar­lönd verða ekki bólu­sett fyrir COVID-19 á sama tíma og rík­ari lönd. Hér á landi gæti tapið numið allt að 3,7 pró­sentum af lands­fram­leiðslu.

Betra er fyrir alla bóluefnum sé dreift jafnt um allan heiminn, samkvæmt rannsókninni
Betra er fyrir alla bólu­efnum sé dreift jafnt um allan heim­inn, sam­kvæmt rann­sókn­inni Mynd: EPA

Rík lönd gætu orðið fyrir meiri­háttar fram­leiðslutapi verði bólu­efnum gegn COVID-19 ekki dreift jafnt um allan heim­inn. Á Íslandi gæti tapið numið allt að 290 þús­und krónum á mann í ár, en ójöfn dreif­ing bólu­efna gæti haft nei­kvæð áhrif á álf­ram­leiðslu.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri rann­sókn frá hag­fræð­ingum við Koç-háskóla í Istanbul, háskól­anum í Maryland og Harvard-háskóla og var birt á vef Alþjóða­við­skipta­ráðs­ins (e. ICC) fyrr í dag. Samkvæmt rann­sókn­inni er jöfn dreif­ing bólu­efna um allan heim ekki ein­ungis sið­ferð­is­leg skylda heims­byggð­ar­innar, heldur gæti hún komið í veg fyrir meiri­háttar fram­leiðslutap sem ætti sér stað vegna rösk­unar á fram­leiðslu­keðju ýmissar vöru og þjón­ustu.

Enginn er eyland

Í grein sinni leggja höf­und­arnir áherslu á að hag­kerfi heims­ins eru opin, þ.e. að þau reiða sig að ein­hverju leyti á við­skipti við önnur lönd. Þannig geti fram­leiðslutap í þró­un­ar­löndum sem mögu­lega hlýst af ströngum sótt­varn­ar­að­gerðum þar haft áhrif á ýmiss konar fram­leiðslu í iðn­ríkjum.

Höf­und­arnir byggja rann­sókn sína á haglík­ani sem skoðar áhrif ójafnrar dreif­ingar bólu­efna á fram­boð og eft­ir­spurn eftir vörum og þjón­ustu í 35 atvinnu­greinum og 65 löndum. Mis­mun­andi sviðs­myndir eru skoð­aðar, en í þeirri svört­ustu er búist við að bólu­setn­ing gegn COVID-19 hefj­ist ekki að neinu ráði í þró­un­ar­löndum í ár. Á sama tíma er gert ráð fyrir að í lönd­unum þar sem heil­brigð­is­kerfið hefur tak­mark­aða getu til að ráða við far­ald­ur­inn verði ráð­ist í harðar sótt­varn­ar­að­gerðir sem hamla fram­leiðslu.

Í björt­ustu sviðs­mynd­inni er svo gert ráð fyrir að bólu­setn­ing hefj­ist í þró­un­ar­löndum á þessu ári, en að ein­ungis verði hægt að bólu­setja helm­ing þjóð­ar­innar í hverju landi.

Samkvæmt þeim er hugs­an­legur ávinn­ingur jafnrar dreif­ingar bólu­efna meiri hjá iðn­ríkjum eftir því sem þau eru opn­ari. Þeir telja að opin hag­kerfi í Evrópu, líkt og Svíþjóð, Noregur og Bretland, gætu tapað allt að fimm pró­sentum af lands­fram­leiðslu ef þró­un­ar­löndin fá ekki bólu­efni gegn veirunni jafn­hratt og iðn­ríkin.

Á Íslandi er búist við því að fram­leiðslutapið við að hleypa ekki þró­un­ar­lönd­unum að nemi 0,5 til 3,7 pró­sentum af lands­fram­leiðslu í ár. Ef gert er ráð fyrir að síð­asta þjóð­hags­spá Hagstofu gangi upp fyrir árin 2020 og 2021 mætti því búast við að virði fram­leiðslutaps­ins hér á landi væri á bil­inu 15 til 107 millj­arðar íslenskra króna, eða um 40 til 290 þús­und krónur á mann.

Álframleiðsla illa úti

Samkvæmt rann­sókn­inni kemur ójöfn dreif­ing bólu­efna verst niður á fata­iðn­að­inn í iðn­ríkjum, sem gæti orðið af tæp­lega tíu pró­sentum af fram­leiðslu sinni. Í þró­un­ar­löndum er svo búist við að fata­fram­leiðsla muni skerð­ast um fimmt­ung vegna seink­unar á komu bólu­efnis þar, ef miðað er við sviðs­mynd þar sem öll lönd fengju bólu­efni á sama tíma.

Námu­fram­leiðsla og fram­leiðsla grunn­málma, meðal ann­ars áls, munu einnig verða fyrir tölu­vert nei­kvæðum áhrifum vegna þessa, bæði í þró­un­ar­löndum og í iðn­ríkjum. Samkvæmt lík­an­inu sem höf­undar rann­sókn­ar­innar styðj­ast við er búist við að sam­drátt­ur­inn í þessum atvinnu­greinum geti numið sjö til átta pró­sentum. Mikill munur er þó á sam­drætti í atvinnu­grein­unum milli landa, en höf­und­arnir benda þó á að hugs­an­legt tap er meira í löndum sem reiða sig meira á alþjóða­við­skipti.

Ekki einungis siðferðisleg spurning

Fyrir viku síðan sagði Tedros Ghebr­eyesus, for­maður Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar (WHO) heim­inn vera á barmi „sið­ferð­is­brests“ vegna ójafnrar dreif­ingar bólu­efna gegn COVID-19 um heim­inn, líkt og BBC greindi frá.

Höfundar vís­inda­grein­ar­innar benda einnig á sið­ferð­is­lega ábyrgð rík­ari landa á að stuðla að jafnri dreif­ingu bólu­efna, en bæta þó við að rann­sókn þeirra sýni að slíkar aðgerðir væru ekki góð­gerð­ar­starf­semi ein og sér, þar sem þeir væru einnig hag­kvæm­astar fyrir heims­bú­skap­inn. Iðnríki gætu borið efna­hags­legan skaða af því að veita ekki fátæk­ari löndum aðgang að bólu­setn­ingum nægi­lega fljótt.

Vegna fjölda sviðs­mynda er matið á væntu fram­leiðslutapi iðn­ríkja ef bólu­setn­ing hefst ekki á sama tíma í þró­un­ar­löndum mjög breyti­legt, en það fer frá 200 millj­örðum Banda­ríkja­dala til 4,5 billjóna Banda­ríkja­dala. Sama hvaða mæli­kvarði er not­aður benda höf­und­arnir á að tapið er alltaf talið vera marg­falt hærra þeir 38 millj­arðar Banda­ríkja­dala sem ACT, alþjóð­legt sam­starf á vegum WHO um dreif­ingu bólu­efna, telur að ríkin þurfi að verja í að dreifa bólu­efn­unum jafnt um heim­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár