Mynd: Sebastien Decoret

Úrskurðarnefnd staðfestir neitun Seðlabankans – Áfram mun ríkja leynd um fjárfestingarleiðina

Kjarninn kærði ákvörðun Seðla­banka Íslands um að neita að upp­lýsa hann um hvaða aðilar fengu að nýta sér fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­máls.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál hefur stað­fest ákvörðun Seðla­banka Íslands um að synja Kjarn­anum um aðgang að upp­lýs­ingum um það hvaða ein­stak­lingar og lög­að­ilar nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið bank­ans og hversu háar fjár­hæðir hver og einn flutti til lands­ins eftir þeirri leið. Í úrskurði nefnd­ar­innar kemur fram að for­taks­laus þagn­ar­skylda Seðla­banka Íslands gagn­vart við­skipta­mönnum sínum komi í veg fyrir að slíkar upp­lýs­ingar séu gerðar opin­berar „óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

Í kæru sinni vís­aði Kjarninn til þess að í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum hafi verið fjallað um fjár­fest­ing­ar­leið­ina og því meðal ann­ars velt upp hvort hún hafi leitt til þess að hluti af fjár­magni frá aflands­svæðum, sem orðið hafi til með ólög­mætum hætti, hefði skilað sér til Íslands með geng­is­af­slætti. Auk þess lægi fyrir sú alvar­lega stað­reynd að ekki virð­ist hafa átt sér stað nein upp­runa­vottun á því fé sem var fært til lands­ins í gegnum leið­ina. Rök­studdur grunur liggi fyrir um að af hluta fjár­ins hafi ekki verið greiddir rétt­mætir skattar hér­lendis. Sá grunur birt­ist meðal ann­ars í því að aðilar sem nýttu sér leið­ina séu til rann­sóknar vegna gruns um skattaund­an­skot.

Þá taldi Kjarninn að færa mætti rök fyrir því að fjár­fest­ing­ar­leiðin brjóti í bága við jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar í ljósi þess að um hafi verið að ræða stjórn­valds­að­gerð sem hafi ein­ungis staðið til boða fólki sem átti fyrst 50 þús­und evrur í lausu fé, og síðar 25 þús­und evrur, og ein­ungis Íslend­ingum sem áttu fé erlendis. Þeim hafi staðið til boða að fá virð­is­aukn­ingu á fé sitt í krafti þess að eiga fé erlendis. Þegar allt ofan­greint væri dregið saman liggi fyrir að almanna­hags­munir leiði til þess að upp­lýst verði hverjum hafi staðið til boða að færa fé til lands­ins með þessum hætti.

Upp­lýs­ingar sem fjöl­miðlar hafi getað miðlað úr brota­kenndri og tak­mark­aðri upp­lýs­inga­gjöf Seðla­banka sýni að rök­studdur grunur sé á að fé sem ekki hafi verið greiddir rétt­mætir skattar af hafi verið færðir aftur inn í landið; fé sem mögu­lega ætti að vera eign kröfu­hafa ákveð­inna aðila hafi verið færðir inn í íslenskt efna­hags­líf og að þröngum hópi lands­manna hafi verið fært tæki­færi til að hagn­ast grið­ar­lega úr hendi stofn­unar sem til­heyrir sann­ar­lega stjórn­sýslu Íslands.

Almanna­hags­mun­irnir væru enn rík­ari í ljósi þess að stjórn­sýslan hefði ekki sýnt af sér mik­inn vilja og nær enga getu til að sinna eft­ir­liti sem hún ætti að sinna. Þess vegna sé afar mik­il­vægt að fjöl­miðlar fái tæki­færi til þess að vinna þá vinnu sem stjórn­völd hafa ekki unnið.

Þagnarskyldan trompar almannahagsmuni

Úrskurða­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að í ljósi þess hversu for­taks­laus hin sér­staka þagn­ar­skylda sem getið er um í lögum um Seðla­banka Íslands sé þá komi hún í veg fyrir að „slíkar upp­lýs­ingar um við­skipta­menn bank­ans séu gerðar aðgengi­legar sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum, óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Úrskurð­ar­nefndin fékk list­ann yfir nöfn og lög­að­ila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands ásamt fjár­hæðum sem hver aðili flutti til lands­ins. Eftir skoðun á honum var það mat nefnd­ar­innar að það leiki eng­inn vafi á því að upp­lýs­ing­arnar varða hagi þeirra sem við­skipta­manna bank­ans í skiln­ingi 1. mgr. 35. gr. laga um Seðla­banka Íslands, sem fjallar um þag­an­skyldu bank­ans gagn­vart öllu því „sem varðar hagi við­skipta­manna bank­ans“.

Seðla­bank­inn vinnur nú sjálfur að gerð skýrslu um fjár­fest­ing­ar­leið­ina sem er innan fárra mán­aða. Þar verða birtar upp­lýs­ingar um upp­runa þeirra þátt­tak­enda sem nýttu sér leið­ina eftir því „sem lög leyfa og nauð­syn­legt er til að ná mark­miðum skýrsl­unn­ar“.

Ítrekað óskað eftir upplýsingum

Kjarn­inn hefur á und­an­förnum árum ítrekað farið fram á að fá upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands og hversu háar fjár­hæðir hver og einn flutti til lands­ins. Seðla­banki Íslands hefur ætið hafnað þess­ari beiðni og vísað í þagn­ar­skyldu­á­kvæði þeirra laga sem gilda um starf­semi bank­ans. Kjarn­inn kærði synjun Seðla­banka Íslands til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mála þar sem málið er enn til með­ferð­ar. Í byrjun nóv­em­ber 2018 barst úrskurð­ar­nefnd­inni umsögn frá Seðla­banka Íslands vegna kærunn­ar. Þar ítrek­uðu lög­fræð­ingar bank­ans þá skoðun sína að hafna bæri því að veittur yrði aðgangur að umbeðnum gögn­um. Nú hefur úrskurð­ar­nefndin fall­ist á afstöðu Seðla­banka Íslands.

Þótt stjórn­völd hafi ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina þá hafa fjöl­miðlar getað upp­lýst um félög í eigu aðila sem það gerð­u. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­­munds­­sona, Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, Jóns Ólafs­­son­­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­­spyrn­u­­manns­ins Gylfa Þórs Sig­­urðs­­son­­ar, Ólafs Ólafs­­son­­ar, Hjör­­leifs Jak­obs­­son­­ar, Ármanns Þor­­valds­­son­­ar, Kjart­ans Gunn­­ar­s­­son­­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­er­s­­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­­ar.

Hund­ruð millj­arða flutt til lands­ins

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­fest­ing­­ar­­­leið­inni frá því í febr­­­úar 2012 til febr­­­úar 2015, þegar síð­­­asta útboðið fór fram. Allt í allt komu um 1.100 millj­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar, sem sam­svarar 206 millj­örðum króna.

794 inn­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leiðar Seðla­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­sent þeirrar fjár­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­ari leið, en hún tryggði allt að 20 pró­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­kvæmt skil­­­málum útboða fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­­­ar­inn­­­ar.

Afslátt­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­bank­ans er um 17 millj­­­arðar króna.

Í skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­­­­svæð­um, sem birt var í byrjun jan­ú­­ar, er fjallað um fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­banka Íslands og því meðal ann­­­ars velt upp hvort hún hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­­­magn­inu frá aflands­­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið­ina. Sú skýrsla er gerð fyrir fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­ið.

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­­lýs­inga um fjár­­­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­­taka í fjár­­­­­fest­ing­­­ar­­­leið Seðla­­­bank­ans er ekki til stað­­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­­bank­ans þegar um grun­­­sam­­­legar fjár­­­­­magnstil­­­færslur er að ræða. Æski­­­legt má telja að sam­­­starf væri um miðlun upp­­­lýs­inga á milli þess­­­ara stofn­ana.“

Eitt mál til rann­sóknar

Ekki virð­ist hafa átt sér stað nein upp­­runa­vottun af hendi opin­berra aðila á því fé sem fært var til lands­ins í gegnum leið­ina. Allir við­­skipta­­bank­­arnir fjórir litu svo á að það hefði verið í þeirra verka­hring að stað­­festa áreið­an­­leika við­­skipta­­manna sinna sem tóku þátt í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­banka Íslands. Þeir segj­­ast allir hafa kannað þá fjár­­­festa úr við­­skipta­­manna­hópi sínum sem nýttu sér fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina með til­­liti til laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­mögnun hryðju­verka. Þrír bank­anna, Íslands­­­banki, Arion banki og Lands­­bank­inn, hafa hins vegar ekki viljað svara því hvort þau hafi sent ein­hverjar til­­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu (Financial Intelligence Unit) vegna gruns um að ein­hverjir úr við­­skipta­­manna­hópi þeirra hafi þvættað pen­inga með því að nýta sér fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina. Einn banki, Kvika banki, seg­ist hins vegar ekki hafa sent neinar til­­kynn­ingar til pen­inga­þvætt­is­skrif­stofu vegna þessa.

Emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara, en pen­inga­þvætt­is­skrif­stofan heyrir undir það, segir að eftir því sem næst verður kom­ist þá hafi ekki borist neinar til­­kynn­ingar frá fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum vegna fjár­­­festa sem nýttu sér fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

Kjarn­inn greindi frá því í októ­ber 2018 að emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra rann­saki eitt mál tengt fjár­­­fest­inga­­leið Seðla­­banka Íslands. Auk þess er emb­ætti að vinna í gögnum sem emb­ættið fékk afhent um þá sem nýttu sér leið­ina í sam­vinnu við emb­ætti rík­­is­skatt­­stjóra. Meðal ann­­ars hafa verið sendar út fyr­ir­­spurnir til gjald­enda og fram­hald þeirra mála mun ráð­­ast af því sem út úr þeim kem­­ur.

Umrædd gögn voru afhent emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra í apríl 2016. Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra keypti sum­­­arið 2015 á 37 millj­­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­l­ingar fór fjár­­­fest­inga­­leið­ina var einnig í skatta­­skjóls­­gögn­un­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Mest lesið undanfarið ár