Telur að rannsókn á fjárfestingarleið verði að vera „ítarleg og heildstæð“

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri gat ekki rann­sakað gögn sem emb­ættið fékk fyrir um fjórum árum um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands með tæm­andi hætti. Ástæðan var mann­ekla og annir við önnur verk­efni.

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hefur ekki haft tök á því að rann­saka að fullu þau gögn sem það hefur fengið afhent um þá aðila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands vegna mann­eklu og „ann­arra aðkallandi verk­efna“.

Embættið hefur ein­ungis fram­kvæmt úrtakskönnun sem náði til ell­efu ein­stak­linga sem búsettir voru hér­lendis og úr þeirri könnun tekið eitt mál til frek­ari rann­sóknar, þar sem grunur er um und­an­skot á fjár­magnstekjum er nemur á þriðja hund­rað millj­óna króna.

Alls nýttu 1.072 ein­stak­lingar og lög­að­ilar sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina og því náði úrtakskönnun skatt­rann­sókn­ar­stjóra yfir um eitt pró­sent þátt­tak­anda sem nýttu sér leið­ina.

Þetta kemur fram í umsögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð til að fara í saumanna á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sem skilað var í síð­ustu viku. Undir umsögn­ina skrifar Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri.

Þar segir enn fremur að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi ekki haft tök á að sinna frek­ari rann­sókn en lýst er hér að ofan. „Er því ekki að svo stöddu hægt að draga neinar almennar álykt­anir á grund­velli athug­ana skatt­rann­sókn­ar­stjóra á þeim gögnum varð­andi fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands sem emb­ættið fékk aðgang að og frá var greint í fram­an­get­inni umsögn þess frá árinu 2016.“

Embættið telur að ef upp­lýsa eigi hvort fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka íslands hafi verðið nýtt til að flytja til Íslands fjár­muni sem upp­runa eiga í tekjum sem ekki hafa verið taldar rétti­lega fram til skatts hér á landi og þá eftir atvikum jafn­framt hvort pen­inga­þvætti hafi átt sér stað, verði að fara fram ítar­leg og heild­stæð athugun er bæði taki til ein­stak­linga og lög­að­ila.

Auk þess telur skatt­rann­sókn­ar­stjóri að til að upp­lýsa umrædd efni með við­hlít­andi hætti sé nauð­syn­legt að sann­reyna og rekja til enda upp­runa fjár­muna í hverju og einu þeirra til­vika sem til rann­sóknar eru tekin. „Er ljóst að það kallar í mörgum ef ekki flestum til­vikum á öflun frek­ari gagna frá umsækj­endum sjálfum og eftir atvikum öðrum aðilum til við­bótar þeim gögnum sem fram hafa verið lögð við afgreiðslu umsókna um nýt­ingu fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.“

Skoðaði nokkra einstaklinga búsetta hérlendis

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk gögn um þá ein­stak­linga, ekki lög­að­ila á borð við einka­hluta­fé­lög, árið 2016, eða fyrir tæpum fjórum árum síðar. Þegar þau voru sam­keyrð við gögn sem emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra keypti sum­­­arið 2015 á 37 millj­­ónir króna, og sýndu eignir Íslend­inga í þekktum skatta­­skjól­um, kom í ljós að 21 ein­stak­l­ingar fór fjár­­­fest­inga­­leið­ina var einnig í skatta­­skjóls­­gögn­un­­um.

Í umsögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra um skipun rann­sókn­ar­nefndar á fjár­fest­ing­ar­leið­inni, sem skilað var inn í síð­ustu viku, segir að grein­ing og frek­ari úrvinnsla ofan­greindra gagna hafi þurft að afmarka, sökum „ann­arra aðkallandi verk­efna og tak­mark­aðs mann­afla“.

Í byrjun árs 2018, fyrir tveimur árum síðan, lágu fyrir nið­ur­stöður for­skoð­unar ell­efu til­vika er vörð­uðu nýt­ingu fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar og voru þau til­vik „valin úr mengi til­vika þar sem aðilar voru ein­stak­lingar búsettir hér á landi á tíma útboðs auk þess sem um hafði rætt fjár­færslur fyrir ofan ákveðna fjár­hæð.“

Það mengi sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri skoð­aði sneri þó ein­ungis að ein­stak­lingum, ekki lög­að­ilum eins og einka­hluta­fé­lögum. Til að setja það í sam­hengi við umfang þeirra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina þá voru alls sam­þykkar umsóknir frá 754 ein­stak­lingum en 318 lög­að­ilum um að fara leið­ina, eða alls 1.072 aðila. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri skoð­aði ein­ungis ein­stak­linga sem búsettir voru á Íslandi, en þeir voru 231. Því inni­hélt mengið sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri valdi 11 til­vik til að skoða úr, tæp­lega 22 pró­sent þeirra ein­stak­linga og lög­að­ila sem nýttu leið­ina. Þau ell­efu til­vik sem emb­ættið tók til for­skoð­unar eru um eitt pró­sent þeirra sem tóku þátt í útboðum leið­ar­innar.

Í umsögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra segir að fjár­hæð tek­inna til­boða frá ein­stak­lingum búsettum á Íslandi hafi verið tæp­lega sex millj­arðar króna. Fjárhæð tek­inna til­boða frá ein­stak­lingum alls nam sam­tals um 24 millj­örðum króna en tekin til­boð lög­að­ila námu sam­tals um 96 millj­örðum króna, þ.e. sam­tals um 120 millj­arðar króna. Því kom mengið sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri valdi ell­efu til­vik til að for­skoða úr ein­ungis með fimm pró­sent þeirrar upp­hæðar sem flutt var til lands­ins í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Ofan á þetta komu þeir sem ferj­uðu pen­inga inn eftir leið­inni inn með sömu upp­hæð til við­bótar og þeir keyptu fyrir inn í landið, en án virð­is­aukn­ingar. Heild­ar­um­fang leið­ar­innar var því yfir 200 millj­arðar króna.

Undanskot upp á hundruð milljóna króna

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá þá leiddi eitt þess­ara til­vika til að að skatt­rann­sókn var hafin vegna þeirra fjár­færslna sem um hafði rætt. Í því máli er grunur um und­an­skot fjár­magnstekna er nemur á þriðja hund­rað millj­óna króna.

Rannsókn þess máls er nýlega lokið og var búist við því að ákvörðun um hvort mál­inu yrði vísað til refsi­með­ferðar eða ekki yrði tekin seint á síð­asta ári. Sú ákvörðun hefur hins vegar dreg­ist veru­lega og í umsögn skatt­rann­sókn­ar­stjóra um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið­inni kemur fram að hún hefur enn ekki verið tekin, þrátt fyrir að rann­sókn sé lokið. Þar segir orð­rétt að í sam­ráði við emb­ætti rík­is­skatt­stjóra hafi verið „tekin ákvörðun um að áfram­hald­andi skoðun gagn­anna yrði í fyrstu á for­ræði þess emb­ættis sem eftir atvikum myndi vísa aftur málum til skatt­rann­sókn­ar­stjóra í þeim til­vikum er athugun myndi vekja grun um refsi­verð brot.“ Eftir rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra á mál­inu er það nú komið til rík­is­skatt­stjóra sem mun mögu­lega vísa því aftur til skatt­rann­sókn­ar­stjóra ef athugun rík­is­skatt­stjóra vekur grun um refsi­verð brot.

Rík­is­skatt­stjóri hefur hins vegar líka verið með umrædd gögn um þá sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina árum saman. Til að koma í veg fyrir tví­verknað sam­mælt­ust skattemb­ættin tvö, sam­kvæmt því sem Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri sagði við Kjarnann í fyrra, um að þau yrðu skoðuð frekar undir for­merkjum eft­ir­lits á sínum tíma. Ef við þá skoðun myndu vaknar grunur um skatt­svik ber að til­kynna skatt­rann­sókn­ar­stjóra þar um sem myndi taka ákvörðun um fram­hald máls­ins.

Svo virð­ist vera sem að breyt­ing hafi orðið á því verk­lagi á síð­ustu vikum og ákvörðun um fram­hald máls­ins nú komin til rík­is­skatt­stjóra.

Ómögulegt að fá upplýsingar um þá sem nýttu leiðina

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að Seðla­banki Íslands legg­ist ekki sér­stak­lega gegn því að fram fari rann­sókn á flutn­ingi fjár til lands­ins á grund­velli fjár­fest­ing­ar­leiðar hans telji Alþingi lík­legt að slík rann­sókn bæti ein­hverju við þá rann­sókn sem þegar hefur farið fram á vegum rík­is­skatt­stjóra og skatt­rann­sókn­ar­stjóra á leið­inni.

Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands hefur líka skilað umsögn um til­lög­una þar sem fram kemur að hún styðji til­lög­una um rann­sókn.

Seðla­banki Íslands hefur hingað til ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina, og borið fyrir sig þagn­ar­skyldu­á­kvæði laga um bank­ann. ­Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði fyr­ir­spurn um málið á Alþingi í síð­asta mán­uði og tók sama pól í hæð­ina og Seðla­bank­inn. Hann taldi sér ekki heim­ilt að birta nöfn þeirra sem fluttu fjár­­­magn til Íslands í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

Máli sínu til stuðn­­ings vísar Bjarni í úrskurð úrskurð­­ar­­nefndar um upp­­lýs­ing­­ar­­mál vegna kæru Kjarn­ans á synjun Seðla­­banka Íslands um aðgang að upp­­lýs­ing­unum frá því í jan­úar 2019. Í þeim úrskurði sagði meðal ann­­ars að for­taks­­laus þagn­­ar­­skylda Seðla­­banka Íslands gagn­vart við­­skipta­­mönnum sínum komi í veg fyrir að slíkar upp­­lýs­ingar séu gerðar opin­berar „óháð hags­munum almenn­ings af því að fá að kynna sér þær.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Mest lesið undanfarið ár