Mynd: Bára Huld Beck

Vill láta fjalla um „önnur rannsóknarúrræði“ en rannsóknarnefnd

Forseti Alþingis vill að kannað sé hvort að „önnur rann­sóknar­úr­ræði“ en rann­sókn­ar­nefnd Alþingis dugi ekki til að rann­saka fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, gerir marg­hátt­aðar athuga­semdir við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um rann­sókn á fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka íslands sem allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar lögðu fram í nóv­em­ber síð­ast­liðnum, og er til með­ferðar hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd.

Í nið­ur­stöðukafla umsagnar Stein­gríms, sem er alls 18 blað­síðna löng, er tekið sér­stak­lega fram að árétta verði að það sé Alþingi sjálft sem ákveði hvort skipuð verður rann­sókn­ar­nefnd. Til­gangur umsagnar for­seta Alþingis sé að draga saman upp­lýs­ingar og sjón­ar­mið sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd geti litið til við und­ir­bún­ing álits um til­lögu til þings­á­lykt­unar um skipun rann­sókn­ar­nefndar um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Í til­lög­unni, sem var fyrst kynnt í nóv­em­ber 2019, er farið fram á að þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd verði skipuð og að hún geri grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf.

Þar er einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Upp­haf­lega var lagt til að rann­sókn­ar­nefndin myndi ljúka störfum í októ­ber 2020 en ljóst er að það mark­mið næst ekki, verði nefndin yfir­höfuð skipuð.

Athugasemdir í tíu punktum

Forseti Alþingis setur fram athuga­semdir sínar við málið fram í tíu punktum í umsögn­inni. Hann segir meðal ann­ars að huga þurfi nánar að mark­miðum rann­sókn­ar­innar og hvernig svör við álita­efnum þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar tengj­ast eft­ir­lits­hlut­verki Alþingis með fram­kvæmda­vald­inu, að gæta þurfi að því að greina getur þurft á milli mál­efna ein­stak­linga og máls­með­ferðar stjórn­valda og að huga þurfi sér­stak­lega að því hvort lög um rann­sókn­ar­nefndir séu til þess fallin að svara þeim spurn­ingum sem snú­ist um meint lög­brot.

Stein­grímur segir enn­fremur að með hlið­sjón af fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum, grein­ar­gerðum og skýrslum um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, væri rétt að greina hverju sé ólokið við rann­sókn á mál­efn­inu og hvaða spurn­ingum sé ósvarað áður en að ráð­ist sé í að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um málið.

Í til­lög­unni væri rétt að taka fram hvort rann­sókn­ar­nefnd um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands sé ætlað að fjallað um lög­fræði­leg atriði sem varpað geta ljósi á hvort til­efni sé til þess að þar til bær stjórn­völd kanni grund­völl ábyrgðar ein­stak­linga eða lög­að­ila. „Við afmörkun til­lög­unnar verður að hafa í huga að skatt­rann­sókn­ar­stjóri ann­ast skatt­rann­sóknir og öðrum stjórn­völdum, þ.m.t. rík­is­skatt­stjóra og fjár­mála­eft­ir­liti, er falið eft­ir­lit með fram­kvæmd laga um pen­inga­þvætti.“

Seðlabankinn þegar búinn að taka út eigin verk

Seðla­bank­inn, sem stóð að fjár­fest­ing­ar­leið­inni og fram­kvæmdi hana, hefur sjálfur gert skýrslu um leið­ina sem birt var í ágúst í fyrra. Þar kom meðal ann­ars fram að aflands­fé­lög frá lág­skatta­svæðum hefðu flutt inn 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum leið­ina. Eðli­legt væri, í ljósi sög­unn­ar, að gagn­rýna að það hefði verið ger­legt að ferja fjár­muni frá slíkum svæðum í gegnum hana.

Seðlabankinn leggst ekki gegn því að skipuð verði rannsóknarnefnd um fjárfestingarleiðina. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Seðla­bank­inn leggst ekki gegn því að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd um fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri.

Í skýrsl­unni sagði einnig að það væri ekki hlut­verk Seðla­banka Íslands að útdeilda rétt­læti í sam­fé­lag­inu „með því að greina á milli æski­legra og óæski­legra fjár­festa, verð­ugra og óverð­ugra.“ Það sé ekki úrlausn­ar­efni hans. „Önnur stjórn­völd og stofn­anir hafa hlut­verki að gegna við að fram­fylgja lögum lands­ins, m.a. Sam­keppn­is­eft­ir­litið, Fjár­mála­eft­ir­litið, rík­is­skatt­stjóri, skatt­rann­sókn­ar­stjóri, lög­regla, sak­sókn­arar og svo dóm­stólar sem end­an­lega kveða á um sekt manna og rétt­ar­stöðu þeirra gagn­vart lögum og stjórn­völdum. Seðla­bank­anum er ekki heim­ilt að fara inn á vald­svið þeirra þvert á öll sjón­ar­mið um lög­bundna stjórn­sýslu og vald­mörk stjórn­valda. Þá hefði Seðla­bank­inn ekki heldur getað aflað upp­lýs­inga um fjár­festa frá lög­reglu eða sak­sókn­ara, og á grund­velli þess úti­lokað fjár­festa sem kynnu að hafa verið til rann­sóknar hjá öðrum stjórn­völdum, og tekið þannig afstöðu til sektar eða sýknu. Fyrir því skorti laga­grund­völl.“

Þegar Seðla­banki Íslands skil­aði umsögn um skipun rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að bank­inn legg­ist ekki sér­stak­lega gegn því að fram fari rann­sókn á flutn­ingi fjár til lands­ins á grund­velli fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­bank­ans telji Alþingi lík­legt að slík rann­sókn bæti ein­hverju við þá rann­sókn sem þegar hefur farið fram á vegum rík­is­skatt­stjóra og skatt­rann­sókn­ar­stjóra á leið­inni.

Skattrannsóknarstjóri hvorki með mannskap né tíma til að rannsaka

Ekkert þeirra emb­ætta sem Seðla­bank­inn taldi upp í skýrslu sinni, og sagði að hefðu það hlut­verk að útdeilda rétt­læti, hafa rann­sakað fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans af ein­hverri alvöru. Það hefur Kjarninn fengið ítrekað stað­fest í sam­tölum við fólk sem starfar hjá þeim emb­ættum. Fyrir liggur til að mynda að á þeim tíma þegar leiðin var opin, á árunum 2011 til 2015, voru pen­inga­þvætt­is­varnir þeirra sem áttu að kanna færslur á fé í gegnum leið­ina, íslensku bank­anna, í lama­sessi og Fjár­mála­eft­ir­litið, sem átti að hafa eft­ir­lit með vörnum bank­anna, brást með engu við á þeim tíma.

Þá hafa skatta­yf­ir­völd hafa ekki fram­kvæmt neina tæm­andi rann­sókn á því hvort skatta­snið­ganga hafi átt sér stað. Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri sagði í umsögn sinni um málið, sem skilað var til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar fyrr á þessu ári, að emb­ætti hennar hafi ekki haft tök á því að rann­saka að fullu þau gögn sem það hefur fengið afhent um þá aðila sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands vegna mann­eklu og „ann­arra aðkallandi verk­efna“.

Embættið hefur ein­ungis fram­kvæmt úrtakskönnun sem náði til ell­efu ein­stak­linga sem búsettir voru hér­lendis og úr þeirri könnun tekið eitt mál til frek­ari rann­sóknar, þar sem grunur var um und­an­skot á fjár­magnstekjum er nemur á þriðja hund­rað millj­óna króna. Því máli var vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara í maí 2020 vegna þess að skatt­rann­sókn­ar­stjóri taldi að þar hefði átt sér stað refsi­verð hátt­semi. Sú nið­ur­staða hefur þó ekki leitt af sér frek­ari rann­sóknir á öðrum sem nýttu fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Vill að þau skýri betur orðalag

Samkvæmt lögum um rann­sókn­ar­nefndir verður rann­sókn­ar­nefnd ekki jafn­framt falin rann­sókn slíkra mála eða dóms­vald. Hlutverk rann­sókn­ar­nefndar er fyrst og fremst að afla upp­lýs­inga um máls­at­vik í mik­il­vægu máli sem varði þýð­ingu fyrir eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis.

Í umsögn Stein­gríms segir að sum atriði til­lögu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna „mætti skýra betur þar sem orða­lag getur valdið vafa við fram­kvæmd rann­sóknar“.

Þá sé umfang rann­sókn­ar­innar all­nokkuð og helst valdi vafa að rann­sókn­ar­nefndin eigi að leggja mat á „m.a." fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar og efna­hags­leg áhrif en þessi fram­setn­ing geti valdið vafa um afmörkun rann­sóknar og orðið til þess að hún drag­ist úr hófi. Forseti Alþingis leggur líka til að frekara mat verði lagt á nauð­syn­legan fjölda nefnd­ar­manna í rann­sókn­ar­nefnd um fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka íslands, fjölda starfs­manna nefnd­ar­innar og hvaða hæfn­is­kröfur gera eigi til þeirra. „Loks er lagt til að fram fari eins grein­ar­gott mat á kostn­aði við þá rann­sókn, sem lagt er upp með í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni, og kostur er og með hlið­sjón af end­ur­mati á starfs­tíma rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, svo Alþingi geti tekið afstöðu til máls­ins í heild sinni.“

Ríkisendurskoðun segist ekki geta komið í stað rannsóknarnefndar

Stein­grímur telur að fjalla þurfi nánar um ástæður þess að grípa skuli til þess sér­úr­ræðis sem skipun rann­sókn­ar­nefndar sé „og af hverju önnur rann­sóknar­úr­ræði duga ekki.“ Ekki sé til að mynda úti­lokað að óska „megi eftir mati rík­is­end­ur­skoð­anda á frammi­stöðu Seðla­banka Íslands við fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.“

Skúli Eggert Þórðason ríkisendurskoðandi. Mynd: Skjáskot
Skúli Eggert Þórðason rík­is­end­ur­skoð­andi. Mynd: Skjáskot

Stein­grímur sendi bréf til Rík­is­end­ur­skoð­unar 27. maí síð­ast­lið­inn þar sem óskaði eftir umsögn um „hvort það mál sem þings­á­lykt­un­ar­til­lagan lýtur að falli undir starfs­svið rík­is­end­ur­skoð­anda“.

Í umsögn sem Rík­is­end­ur­skoðun sendi til baka 3. júní, og Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­end­ur­skoð­andi skrifar undir, segir að emb­ættið telji starfs­svið sitt ekki ná til þeirrar rann­sóknar sem lagt er til að fari fram. Það verði ekki séð að laga­skil­yrði séu til þess að emb­ættið geti komið í stað rann­sókn­ar­nefndar í þessu til­felli.

Í umsögn Rík­is­end­ur­skoð­unar segir að reynslan hafi sýnt að þegar Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd hafi verið óum­deilt að nauð­syn­legt hafi verið að grípa til slíks úrræðis. „Með öðrum orðum þá hefur rann­sókn­ar­nefnd sem falið er að gera ítar­lega athugun á til­teknu máli, mikið og alvar­legt yfir­bragð. Fáar rann­sókn­ar­nefndir hafa verið skip­aðar og flestar þeirra eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið falið að rann­saka ákveðna þætti í falli íslensku bank­anna haustið 2008 og þá sam­fé­lags­legu og efna­hags­legu koll­steypu sem varð á íslensku þjóð­lífi vegna þess. Þegar rann­sókn­ar­nefnd hefur lokið störfum hefur kynn­ing á nið­ur­stöðum vakið athygli og skapað umræður í sam­fé­lag­inu. Af þessu má því ráða að til­laga um skipan rann­sókn­ar­nefndar hefur mikla þýð­ingu póli­tískt séð, er þýð­ing­ar­mikil í fréttum og hver svo sem nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar verður mun hún vekja umræður og jafn­vel nýjar spurn­ingar.“

Rík­is­end­ur­skoðun telur að skýrslu­beiðni til sín hafi allt annað yfir­bragð og aðra póli­tíska þýð­ingu heldur skipan rann­sókn­ar­nefndar. „Þannig vekur til­lagan um rann­sókn­ar­nefnd mun meiri athygli heldur en að Rík­is­end­ur­skoðun fram­kvæmi afmark­aða úttekt hvort heldur það væri stjórn­sýslu­út­tekt eða úttekt á fjár­hags­stöðu til­tek­innar stofn­unar. Þegar af þeim ástæðum sem fyrr er lýst má vera ljóst að flutn­ings­menn að 39. þing­máli munu tæp­lega sætta sig við að mál­inu verði breytt í svo miklum grund­vall­ar­at­riðum að í stað rann­sókn­ar­nefndar komi eft­ir­lits­stofnun að mál­inu þar sem téð mál verði eitt af mörgum sem slík stofnun afgreiðir.“

Í umsögn Stein­gríms segir að af skoðun rík­is­end­ur­skoð­and­anda leiði að honum verði „almennt ekki falin rann­sókn á þeim atriðum sem þings­á­lykt­un­ar­til­lagan tekur til. Þó er ekki úti­lokað að óska megi eftir mati rík­is­end­ur­skoð­anda á frammi­stöðu Seðla­banka Íslands við fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjárfestingarleið

Mest lesið undanfarið ár