Munu beita „krafti ríkisfjármálanna“ til að skapa störf og fjárfesta í ólíkum verkefnum

For­sæt­is­ráð­herra gaf munn­lega skýrslu um stöðu mála vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru við upp­haf fyrsta þing­fundar á svoköll­uðum þing­stubbi. Rík­is­stjórnin mun kynna áfram­hald­andi fjár­fest­ing­ar­á­tak sam­hliða fjár­lögum og fjár­mála­á­ætlun nú í haust.

Rík­is­stjórnin mun kynna áfram­hald­andi fjár­fest­ing­ar­á­tak sam­hliða fjár­lögum og fjár­mála­á­ætlun nú í haust. Þetta kom fram í munn­legri skýrslu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, um stöðu mála vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Fyrsti þing­fundur á svoköll­uðum þing­stubbi hófst á munn­legri skýrslu for­sæt­is­ráð­herra.

Í ræðu sinni nefndi hún sér­stak­lega umfangs­miklar fjár­fest­ingar sem hófust á árinu 2020, þar sem rík­is­stjórnin hefði beitt „krafti rík­is­fjár­mál­anna til að skapa störf og fjár­festa í ólíkum verk­efnum, hvort sem það eru grænar lausnir, sam­göngu­mann­virki, grunn­rann­sóknir, nýsköpun, staf­ræn þróun, skap­andi greinar og bygg­ing­ar­fram­kvæmdir,“ sagði Katrín. Hún sagði að áfram­hald­andi fjár­fest­ing­ar­á­tak verði kynnt sam­hliða fjár­lögum í haust þar sem „afli rík­is­fjár­mál­anna“ verði beitt með svip­uðum hætti til að auka verð­mæta­sköpun.

Opnanir skóla samfélagslega mikilvæg ráðstöfun

Katrín sagði Ísland skera sig úr í skóla­málum ásamt Svíþjóð í sam­an­burði við önnur ríki þegar kemur að skóla­málum vegna þess að hér eru leik­skólar og grunn­skólar opnir. Hún sagði lok­anir skóla í Evrópu hafa veru­leg sam­fé­lags­leg og efna­hags­leg áhrif sem og áhrif á menntun barna.

„Sömu­leiðis má segja að sú aðgerð og ákvörðun að halda skólum opnum hafi verið ein mik­il­væg­asta sam­fé­lags­lega aðgerð sem stjórn­völd gripu til til að mæta þessum far­aldri. Sömu­leiðis hefur verið gripið til umfangs­mik­illi efna­hags­lega ráð­staf­ana sem ég ætla ekki að telja hér upp en megin leið­ar­ljósið hefur verið að verja störf, skapa störf og tryggja afkomu,“ sagði Katrín.

Sveigjanleiki og seigla

„Ég held að við sem hér erum í þessum sal getum öll verið sam­mála um að íslenskt sam­fé­lag hefur sýnt í senn sveigj­an­leika og seiglu bæði við að kom­ast út úr fyrstu bylgju far­ald­urs­ins en líka núna þegar við stöndum í annarri bylgj­unni miðri,“ sagði Katrín í ræðu­stól Alþingis um við­brögð þjóð­ar­innar við far­aldr­inum. Hins vegar hafi farið mikil umræða um hvernig best sé að takast á við útbreiðslu far­ald­urs­ins sem, að hennar mati, sé gott.

Þá fór Katrín yfir það hvernig skimunum hefur verið háttað á landa­mærum frá 15. júní. Sú ráð­stöfun hefur sannað gildi sitt að mati Katrínar og komið í veg fyrir að fjöldi smiti hafi borist inn í landið. Þar að auki hefur landamæra­skimunin gefið mik­il­vægar upp­lýs­ingar um veiruna.

Halda þarf áfram að vinna að hagrænum greiningum

Nýlega var svo hert á aðgerðum á landa­mærum eins og kunn­ugt er. Þetta var gert að fengnum til­lögum frá fær­ustu vís­inda­mönnum að sögn Katrínar. Hún sagði mikið hafa verið rætt um hag­ræn áhrif þess­arar til­hög­unar. Hagræn áhrif hafi verið metin í aðdrag­anda hertra aðgerða og sú grein­ing hafi verið upp­færð með til­liti til reynsl­unnar.

„Þar þarf þó að vinna áfram að hag­rænum grein­ingum því þetta er flókið við­fangs­efni. Ég hlýt þó að segja hér að þær ferða­tak­mark­anir sem ákveðnar eru hér á landi eru að sjálf­sögðu ekki það eina sem ræður fjölda ferða­manna. Þar skipta ferða­tak­mark­anir ann­arra ríkja einnig máli, þar sem ísland hefur verið að fær­ast nær rauðum lista ann­arra ríkja eða bein­línis lent þar inni. Sömu­leiðis hefur ferða­vilji fólks dreg­ist saman eðli­lega,“ sagði Katrín um hag­ræn áhrif aðgerða á landa­mærum og ferða­vilja fólks. Sam­dráttur ferða­fólks sé mik­ill í heim­inum öllum en heild­ar­fækkun milli­landa­far­þega verði á bil­inu 58-78 pró­sent í ár sam­kvæmt skýrslu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem Katrín vitn­aði í í ræðu sinni.

„Það er mik­il­vægt að við styðjum við þessi fyr­ir­tæki en líka mik­il­vægt að við horfum til fram­tíðar því ég er ekki í nokkrum vafa um að þar mun ísland eiga mikil sókn­ar­færi bæði vegna okkar ein­stöku nátt­úru en líka vegna þeirrar fag­legu ferða­þjón­ustu sem hér hefur byggst upp,“ sagði Katrín í kjöl­farið um stöðu fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu.

Þá benti Katrín á að harðar sótt­varna­ráð­staf­anir skili ekki endi­lega miklum sam­drætti. Þannig sé sam­drátt­ur­inn í Svíþjóð, sem gengið hefur væg­ast fram af Norð­ur­lönd­unum í sótt­varna­ráð­stöf­unum, meiri en í Danmörku og Finn­landi. Þá er sam­dráttur á öðrum árs­fjórð­ungi í Bret­landi um 20 pró­sent. „Þannig að það er ekki ofsögum sagt að við stöndum frammi fyrir lík­lega dýpstu efna­hagslægð í heila öld,“ sagði Katrín.

Umræðan um borgaraleg réttindi mikilvæg

Að lokum fór Katrín yfir borg­ara­leg rétt­indi fólks sem hún sagði vera mik­il­væga umræðu enda alveg ljóst að sótt­varna­ráð­staf­anir hafi haft áhrif á þau rétt­indi. Hún vakti athygli þing­manna á því að á að á þing­mála­skrá heil­brigð­is­ráð­herra sem lagt verður fram við þing­setn­ingu þann 1. októ­ber verður að finna frum­varp um end­ur­skoðun sótt­varna­laga og Alþingi muni þá fá tæki­færi til að fjalla um vald­heim­ildir þeirra laga.

„Það skiptir máli að við ræðum hin borg­ara­legu rétt­indi í sam­hengi. Það hversu hratt fólk kemst yfir landa­mæri íslands er ekki það eina sem máli skiptir. Það þarf að líta til skóla­starfs, til menn­ingar og íþrótta­starfs. Það þarf að líta til þess að hér voru í vor settar alveg gríð­ar­lega umfangs­miklar hömlur á atvinnu­rétt­indi þús­unda manna og gleymum ekki þeim tak­mörk­unum sem hafa verið settar á rétt­indi eldra fólks, þeirra sem búa á hjúkr­un­ar­heim­ilum og þeirra sem haldnir eru alvar­legum sjúk­dómum sem hafi í raun og veru búið við veru­lega félags­lega ein­angrun allt frá því að far­ald­ur­inn skall á,“ sagði Katrín um þær hömlur sem fólk hefur búið við í far­aldr­inum.

Í kjöl­farið vitn­aði hún til reglu sem John Stuart Mill setti fram í bók sinni, Frelsið, að ein­ungis væri heim­ilt að skerða athafna­frelsi ein­stak­lings ef um sjálfs­vörn væri að ræða. „Ætli hún eigi ekki svo sann­ar­lega við hér í þessu til­felli þegar við ræðum um þennan heims­far­aldur,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár