Leggja til að farmiðar íbúa með lögheimili á landsbyggðinni verði niðurgreiddir

Starfs­hópur sem hafði það hlut­verk að móta til­lögur um upp­bygg­ingu flug­valla­kerf­is­ins á Íslandi og efl­ingu inn­an­lands­flugs sem almenn­ings­sam­gangna hefur skilað skýrslu til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra.

Í skýrslu um upp­bygg­ingu flug­valla­kerf­is­ins á Íslandi og efl­ingu inn­an­lands­flugs sem almenn­ings­sam­gangna eru lagðar fram til­lögur um að auka fjár­hags­lega sjálf­bærni þeirra flug­valla, sem gegna hlut­verki sem vara­flug­vellir í milli­landa­flugi, með því að skil­greina þá sem kerfi flug­valla með sam­eig­in­legan kostn­að­ar­grunn og Isavia ohf. falin fjár­hags­leg ábyrgð á rekstri, við­haldi og upp­bygg­ingu þeirra. Þetta kemur fram í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins. 

Starfs­hópur sem hafði það hlut­verk að móta til­lögur um upp­bygg­ingu flug­valla­kerf­is­ins á Íslandi og efl­ingu inn­an­lands­flugs sem almenn­ings­sam­gangna hefur skilað skýrslu til Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Í skýrsl­unni eru gerðar til­lögur um breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi inn­an­lands­flugs og rekstri flug­valla og að inn­an­lands­flug verði hag­kvæmur kostur fyrir íbúa lands­byggð­ar­innar.

Starfs­hóp­ur­inn kynnir meðal ann­ars til­lögur um hvernig jafna megi aðgengi lands­manna að þjón­ustu sem aðeins er í boði á suð­vest­ur­horni lands­ins. Tillaga er gerð um að far­miðar íbúa með lög­heim­ili á völdum svæðum á lands­byggð­inni verði nið­ur­greiddir. Lagt er til að þeir sem búa í 200 til 300 kíló­metra akst­urs­fjar­lægð frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu fái 50 pró­sent af flug­far­gjöldum sínum til og frá svæð­inu í einka­er­indum nið­ur­greidd. Nið­ur­greiðslan nái að hámarki til fjög­urra ferða fram og til baka á hvern ein­stak­ling á meðan reynsla kemst á kerfið.

Jafn­framt er lagt til að þjón­ustu­gjöld verði sam­ræmd á milli­landa­flug­völl­unum og hóf­legt þjón­ustu­gjald sett á til að standa straum af upp­bygg­ingu vall­anna. Slíkt gjald gæti orðið á bil­inu 100 til 300 krónur á hvern flug­legg. Í frétt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að mik­il­vægi örygg­is­hlut­verks vara­flug­valla tengt milli­landa­flugi hafi auk­ist og að starfs­hóp­ur­inn telji nauð­syn­legt að taka til­lit til breyttra aðstæðna á grund­velli þró­un­ar­innar und­an­farin ár.

Þá er lagt til að þjón­ustu­samn­ingur rík­is­ins við Isavia verði fram­vegis gerður til fimm ára í senn til svo að hægt verði að þróa flug­valla­kerfið til lengri tíma og stuðla að auk­inni dreif­ingu ferða­manna.

Starfs­hóp­ur­inn leggur til að til­lög­urnar verði útfærðar nánar á næsta ári svo þær geti komið til fram­kvæmda árið 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár