Þrír borgarstjórar á lista Samfylkingar fyrir komandi kosningar – Jón Gnarr í heiðurssæti

Fimm af sex efstu á lista Sam­fylk­ing­ar­innar eru sitj­andi borg­ar­full­trúar. Á meðal ann­arra á list­anum eru for­maður félags eldri borg­ara og fyrr­ver­andi for­maður ÖBÍ.

Hluti frambjóðenda Samfylkingarinnar í komandi borgarstjórnarkosningum.
Hluti fram­bjóð­enda Sam­fylk­ing­ar­innar í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Mynd: Aðsend

Sam­fylk­ingin sam­þykkti í fram­boðs­lista sinn fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í dag. Flokksvali lauk 13. febr­úar þar sem nið­ur­staðan fyrir sex efstu sætin var bind­andi fyrir upp­still­ing­ar­nefnd, að teknu til­liti til reglna Sam­fylk­ing­ar­innar um að ekki halli á hlut kvenna.

Því lá fyrir að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri myndi leiða list­ann, að Heiða Björg Hilm­is­dóttur, vara­for­maður flokks­ins, yrði í öðru sæt­inu og borg­ar­full­trú­inn Skúli Helgason í því þriðja. Borg­ar­full­trú­arnir Sabine Leskopf og Hjálmar Sveins­son röð­uðu sér í tvö næstu sæti og eini nýlið­inn í efstu sex sæt­unum er Guðný Maja Riba kenn­ari.

Í næstu tveimur sætum, því sjö­unda og átt­unda, sitja svo Sara Björg Sig­urð­ar­dóttir stjórn­sýslu­fræð­ingur og Birkir Ingi­bjarts­son arki­tekt. Ellen Calmon, borg­ar­full­trúi og fyrr­ver­andi for­maður ÖBÍ, er í níunda sæt­inu.

Dagur segir í frétta­til­kynn­ingu að á list­anum sé fólk með mik­il­væga reynslu af fjöl­breyttum sviðum sam­fé­lags­ins, bæði fólk með reynslu af stjórn borg­ar­innar en líka ný og fersk and­lit sem fengur er að. „Listinn er sig­ur­strang­legur, hann er þétt­skip­aður fólki úr öllum áttum sem elskar Reykja­vík og vill halda áfram að sækja fram og þróa borg­ina sem græna, fjöl­breytta borg með öfl­ugri þjón­ustu þar sem hugað er að vel­ferð og tæki­færum til fram­tíðar og pláss er fyrir alla.“

[adspot]Sam­fylk­ingin er sem stendur með sjö borg­ar­full­trúa eftir að hafa fengið 25,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Í könnun sem Maskína gerði í febr­úar mæld­ist Sam­fylk­ingin stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 27,9 pró­sent fylgi og sjö borg­ar­full­trúa, rétt eins og í dag.

Ýmis athygl­is­verð nöfn er að finna á fram­boðs­list­anum í sætum sem eiga ekki sýni­lega mögu­leika á að skila við­kom­andi inn í borg­ar­stjórn. Þannig situr Helgi Pét­urs­son, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, í ell­efta sæti list­ans.

Í tveimur síð­ustu sætum list­ans, númer 45 og 46, sitja svo tveir fyrr­ver­andi borg­ar­stjórar, þau Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir og Jón Gnarr. Um svokölluð heið­ur­sæti er að ræða. Vera Jóns á list­anum vekur athygli þar sem hann varð borg­ar­stjóri eftir hafa leitt Besta flokk­inn til mik­ils kosn­inga­sig­urs árið 2010. Jón starf­aði fyrir Sam­fylk­ing­una í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2017 en hefur ekki áður verið á lista flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár