Réttarhöld aldarinnar í Finnlandi

Finnar hrósa sér iðu­lega af því að þeir séu óspillt þjóð enda hafa þeir, í mörgum könn­unum, á und­an­förnum árum, oftar en ekki verið í hópi þeirra þjóða þar sem spill­ing er talin minnst. Þess vegna hrökk finnska þjóðin illi­lega við, fyrir tæpum tveim árum, þegar Jari Aarnio einn af æðstu yfir­mönnum lög­regl­unnar í Helsinki var hand­tek­inn. Ástæða hand­tök­unnar var hvorki sú að hann hefði hnuplað sultu­krukku í verslun né ekið yfir gatna­mót á rauðu ljósi. Þessi lag­anna vörður var nefni­lega grun­aður um að vera umsvifa­mik­ill fíkni­efna­sali. Segja má að hann hafi þekkt vel til í fíkni­efna­heim­inum því hann var yfir­maður fíkni­efna­deildar lög­regl­unnar, virtur maður innan stétt­ar­innar og hafði fengið opin­berar við­ur­kenn­ingar fyrir störf sín í þágu sam­fé­lags­ins.

Símahleranir og sms skilaboð leiddu til handtökunnar


Finnska lög­reglan hafði um margra mán­aða skeið fylgst með sím­tölum og sms send­ingum tveggja manna vegna við­skipta með fíkni­efni. Lög­reglan vissi vel hver annar mann­anna, kaup­and­inn, var en gekk mjög illa að finna út hver selj­and­inn væri, sá sem útveg­aði efnin. Innan fíkni­efna­deild­ar­innar var hann kall­aður „Sá snjalli“. Dag­blaðið Helsinki Times hefur eftir ónafn­greindum lög­reglu­manni að starfs­menn fíkni­efna­deild­ar­innar hafi staðið agn­dofa þegar þeir komust að því að „Sá snjalli“ var yfir­maður þeirra, sjálfur Jari Aarnio.

[caption id="attachment_35858" align="alignnone" width="700"] Jari Aarnio, einn af æðstu yfir­mönnum lög­regl­unnar í Helsinki, var hand­tek­inn fyrir að vera umsvifa­mik­ill fíkni­efna­sali. Rétt­ar­höldin yfir honum hófust í júní síð­ast­liðnum.[/caption]

Milljónir í garðinum


Jari Aarnio var hand­tek­inn í nóv­em­ber 2013. Þá hafði lög­reglan gert hús­leit á heim­ili hans og meðal ann­ars fundið, í skó í bíl­skúrnum, síma sem „Sá snjalli“ hafði notað. Þar höfðu líka verið hand­skrifuð skila­boð, sem senni­lega hefði átt að senda síðar, með fyr­ir­mælum um hvernig maður sem smyglaði efnum frá Hollandi til Finn­lands skyldi bera sig að. Sak­sókn­ari sagði enn­fremur að Jari Aarnio hefði skipu­lagt flutn­ing á sex stórum tunnum af fíkni­efnum frá Hollandi. Jari Aarnio sagði hins­vegar að þetta hafi verið liður í störfum sínum við að upp­ræta eit­ur­lyfja­smygl.

Jari Aarnio, einn af æstðu yfirmönnum lögreglunnar í Helsinki, var handtekinn fyrir að vera umsvifamikill fíkniefnasali. Réttarhöldin yfir honum hófust í júní síðastliðnum.
Jari Aarnio, einn af æstðu yfir­mönnum lög­regl­unnar í Helsinki, var hand­tek­inn fyrir að vera umsvifa­mik­ill fíkni­efna­sali. Rétt­ar­höldin yfir honum hófust í júní síð­ast­liðnum.

Í des­em­ber 2011 fékk hol­lenska lög­reglan vit­neskju um að til stæði að senda tunnu með 150 kílóum af hassi til Finn­lands. Jari Aarnio, sem vissi um málið, lét Peter Mikael-Fager­holm, sem kall­aður var „sjó­mað­ur­inn“ og átti að taka við tunn­unni, vita að lög­reglu væri kunn­ugt um ferðir tunn­unnar og sagði honum að reyna ekki að nálg­ast send­ing­una. „Sjó­mað­ur­inn“ stóðst hins­vegar ekki freist­ing­una og var grip­inn með tunn­una. Hann var dæmdur í níu ára fang­elsi. Í von um mild­ari dóm lýsti hann sig reiðu­bú­inn til að leysa frá skjóð­unni og segja allt sem hann vissi um eit­ur­lyfja­smygl og sam­starfs­menn Jari Aarnios í eit­ur­lyfja­söl­unni. Sak­sókn­ari sagði að Jari Aarnio hefði þá sent tvo harðsvíraða fíkni­efna­sala til fundar við „sjó­mann­inn” með þau skila­boð að ef hann héldi sér ekki saman myndi það bitna á fjöskyldu hans.

Jari Aarnio bað líka lög­reglu­mann sem hann þekkti að fara heim til konu sinnar og segja henni að „setja dálitla möl“ undir runna í garð­inum. „Mölin“ reynd­ist vera pokar með pen­ingum, sam­tals um 65 þús­und evrur (9,6 millj­ónir íslenskar krónur).

Sterkefnaður lögregluþjónn


Þótt yfir­menn hjá finnsku lög­regl­unni hafi þokka­leg laun höfðu ýmsir undr­ast hversu miklu Jari Aarnio tókst að öngla saman. Fyrir utan stórt ein­býl­is­hús átti hann átta bif­reiðar, flestar mjög dýrar. Við rétt­ar­höldin yfir honum hefur komið fram að tekjur hans af fíkni­efna­söl­unni séu taldar hafa verið að minnsta kosti 500.000 evrur, um það bil sjö­tíu og sjö millj­ónir íslenskar krónur.

Var kallaður keisarinn


Jari Aarnio, sem er 58 ára gam­all, var af starfs­fé­lögum sínum kall­aður „Keis­ar­inn“. Þegar rétt­ar­höldin yfir honum hófust í júní síð­ast­liðnum sagði sak­sókn­ar­inn að sá ákærði væri maður sem hefði yfir­grips­mikla þekk­ingu á eit­ur­lyfja­mark­aðnum, senni­lega meiri en nokkur annar Finni. Hann hefði starfað innan lög­regl­unnar um nær 30 ára skeið og þekkti þess vegna „öll trikkin í brans­anum“ betur en flestir ef ekki allir aðrir.

Má búast við margra ára fangavist


Jari Aarnio hefur þegar verið dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir mútu­þægni og brot í opin­beru starfi. Hann hefur hins­vegar ekki enn verið dæmdur fyrir 30 ákæru­liði en sumir finnskir fjöl­miðlar telja að hann muni að minnsta kosti verða dæmdur í 13 ára fang­elsi, aðrir telja að hann fái mun þyngri dóm. Við rétt­ar­höldin hefur Jari Aarnio stað­fast­lega neitað að hafa aðhafst nokkuð ólög­legt, allt sem hann sé nú ákærður fyrir hafi verið í þágu laga og réttar. Finnskir fjöl­miðlar hafa ítrekað rifjað upp að í sjón­varps­við­tali árið 2000 sagði Jari Aarnio að þeir stóru og sterku í eit­ur­lyfja­heim­inum gæti þess vel að á þá sann­ist aldrei neitt. „þetta er eins og í skák, peðin vernda kóng­inn“. Í skák Jari Aarnios virð­ast peðin fallin og kóng­ur­inn líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár