Samherji verður meðeigandi færeyska ríkisins í Nordik banka

Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Samherja, Kald­bakur ehf, eign­að­ist í morgun 5% hlut fær­eyska útgerð­ar­fé­lags­ins Fram­herja í Nordik banka. Samherji átti þar til nýlega fjórð­ung í Fram­herja sem var eitt umsvifa­mesta útgerð­ar­fé­lag eyj­anna. Danskur kvóta­kóngur kom líka inn í hlut­hafa­hóp bank­ans í morgun, þar sem fær­eyska ríkið er fyr­ir­ferð­ar­mest.

Þórshöfn í Færeyjum
Þórshöfn í Færeyjum Samherji eign­að­ist í morgun 5% hlut í stærsta banka Færeyja í gegnum félag sitt Kaldbak. Hlutinn keypti Samherji af útgerð­ar­fé­lag­inu Fram­herja, sem Samherji hafði átt að fjórð­ungi und­an­farna þrjá ára­tugi. Mynd: Shutterstock

Tilkynnt var um við­skiptin í morgun, en Vísir greindi fyrst frá hér á landi. Fjár­fest­inga­fé­lagið Kald­bakur ehf, sem tók yfir fjár­fest­ingar Samherja í skráðum og óskráðum félögum, keypti 5% hlut í Bank Nordik, sem útgerð­ar­fé­lagið Fram­herji hafði selt. Samherji var þar til nýlega eig­andi um fjórð­ungs hluta­fjár í Fram­herja, og var því fyrir í hópi hlut­hafa í bank­anum.

Eftir kaupin er Kald­bakur fjórði stærsti hlut­hafi bank­ans, sem er er að ríf­lega þriðj­ungi til í eigu fær­eyska rík­is­ins. Aðrir stórir hlut­hafar eru trygg­ing­aris­inn norski, Protector, sem á 11% hlut og danski auð­kýf­ing­ur­inn Henrik Lind sem átti þar til í morgun rúm­lega 10% í bank­anum.

Bank Nordik á sér ríf­lega 100 ára sögu, er stærsti banki Færeyja og raunar annað stærsta fyr­ir­tæki eyj­anna, í eignum talið. Einungis lax­eld­is­ris­inn Bakka­frost er stærri. Eigið fé bank­ans var um 35 millj­arðar íslenskra króna í mars síð­ast­liðnum, til sam­an­burðar var eigið fé Íslands­banka um …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár