Sjö frambjóðendur í fyrsta prófkjöri Viðreisnar

Fram­boðs­frestur í próf­kjöri Við­reisnar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar rann út á hádegi í dag. Tvær Þórdísar vilja efsta sætið á lista og fjögur kepp­ast um 3. sætið.

Viðreisn er með tvo borgarfulltrúa í dag.
Viðreisn er með tvo borg­ar­full­trúa í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Sjö manns bjóða fram krafta sína í próf­kjöri Við­reisnar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík, sem fram fer dag­ana 4.-5. mars. Í próf­kjör­inu, sem er það fyrsta í sögu Við­reisnar, verður kosið um fjögur efstu sætin á lista flokks­ins.

Tvær vilja fyrsta sætið á lista, þær Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir núver­andi odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins og Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir. Pawel Bartoszek borg­ar­full­trúi er einn um að gefa kost á sér í annað sæti á list­anum, en fleiri eru um hit­una hvað þriðja sætið á lista varðar.

Vara­borg­ar­full­trú­arnir Dilja Ámunda­dóttir Zoega og Geir Finnsson sækj­ast bæði eftir þriðja sæt­inu á lista og þau Erlingur Sig­valda­son og Anna Kristín Jens­dóttir óska eftir stuðn­ingi í 3.-4. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins.

Allir félags­menn Við­reisnar 16 ára og eldri, sem búsettir eru í Reykja­vík og hafa verið félags­menn í a.m.k. þrjá daga fyrir próf­kjör hafa kosn­inga­rétt, sem þýðir að þeir sem eru skráðir í flokk­inn fyrir mið­nætti 1. mars geta kosið í próf­kjör­inu.

Eini meirihlutaflokkurinn sem mældist undir kjörfylgi í nýjustu könnun

Viðreisn bauð fyrst fram til sveit­ar­stjórna árið 2018 og fékk þá 8,2 pró­sent atkvæða í Reykja­vík­ur­borg og tvo borg­ar­full­trúa kjörna. Í kjöl­farið mynd­aði flokk­ur­inn meiri­hluta ásamt Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri grænum.

[adspot]

Samkvæmt nýj­ustu könn­un­inni um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Maskína fram­kvæmdi í lok jan­úar og byrjun febr­úar, mæld­ist Viðreisn ögn undir kjör­fylgi sínu og var eini flokk­ur­inn núver­andi meiri­hluta sem það gerði.

Flokk­ur­inn mæld­ist nánar til tekið með 5,9 pró­senta fylgi í könnun Maskínu, sem myndi þýða að hann fengi ein­ungis einn borg­ar­full­trúa kjör­inn.

Frambjóðendur Viðreisnar í prófkjöri flokksins í Reykjavík

  • Anna Kristín Jens­dóttir
  • Diljá Ámunda­dóttir Zoega
  • Erlingur Sig­valda­son
  • Geir Finnsson
  • Pawel Bartoszek
  • Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir
  • Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár