Það er staðfest...Ísland fer á HM!

Íslenska karla­lands­liðið er komið á loka­mót HM í Rúss­landi eftir sigur á liði Kósovo í Laug­ar­dalnum í kvöld. Lið sem hefur þegar skráð sig á spjöld knatt­spyrnu­sög­unnar bætti enn við þann kafla í kvöld. Með gylltu letri.

25 mán­uðum og tveimur dögum eftir að tauga­veiklað jafn­tefli tryggði Íslend­ingum þann sögu­lega árangur að verða fámenn­asta þjóð nokkru sinni til að ná að kom­ast á loka­mót karla­lands­liða var liðið mætt aftur með sam­bæri­legt verk­efni fyrir framan sig. Í þetta sinn lá fyrir að jafn­vel tap væri nóg til að kom­ast á HM í Rúss­landi næsta sumar og um fremja eitt mesta, ef ekki mesta, afrek sem íslenskt íþróttalið hefur fram­kvæmt.

En það var ljóst frá því þeir tæp­lega tíu þús­und manns sem urðu þeirrar gæfu aðnjót­andi að fá miða á leik kvölds­ins fóru að týn­ast í gegnum rign­ing­ar­skúr­anna á Laug­ar­dals­völl­inn að tap væri ekki inn í mynd­inni. Ísland væri komið í þá stöðu sem liðið var komið í vegna þess að liðið er á meðal bestu liða Evrópu. Og það ætl­aði ekki að láta Kósovo, botn­liðið í riðl­inum með eitt stig, stöðva sig í að ná hinu magn­aða mark­miði að kom­ast á HM í fyrsta sinn.

Liðið, umgjörðin, áhorf­endur og bara þjóðin sem knatt­spyrnu­á­huga­menn eru komin ansi langt frá þeirri stöðu sem Ísland var í þegar fyrsti mögu­leik­inn á þátt­töku á loka­móti HM varð fyrir fjórum árum síðan. Þá lék liðið umspils­leiki við Króatíu og eftir hugað jafn­tefli á heima­velli, þar sem hluti vall­ar­ins í Laug­ar­dalnum var sam­kvæmt heim­ildum spreyjaður grænn til að líta ekki of haust­lega út í sjón­varp­inu, tap­aði liðið sann­fær­andi á úti­velli. Spennustigið var aug­ljós­lega of mikið.

Nú var staðan allt önnur. Liðið hafði náð að kom­ast á EM og í raun unnið loka­mótið í Frakk­landi með frammi­stöðu sinni, þótt það hafi ekki endað í fyrsta sæti. Leik­menn­irnir þekkja og ráða við press­una og eru hoknir af reynslu. Umgjörðin í kringum leik­ina og liðið hefur tekið algjörum stakka­skiptum. Svo­kallað Fan Zone blasti til að mynda við á bíla­stæði Laug­ar­dalsvall­ar­ins, þriðja heima­leik­inn í röð. Og miðar á völl­inn seld­ust upp á nokkrum mín­útum, líkt og þeir hafa gert á nær alla heima­leiki árum saman. Áhorf­endur eru vanir því að taka Vík­inga­klöpp, syngja með lög­unum og búa til hljóð­múr sem virkar eins og tólfti og stundum þrett­ándi maður.

Fyrri hálfleikur

Ein breyt­ing var gerð á lið­inu frá hinum stór­kost­lega 0-3 sigri á Tyrkjum á föstu­dag. Alfreð Finn­boga­son fór á bekk­inn og Emil Hall­freðs­son, sem var í banni í Tyrkja­leiknum, kom aftur inn á miðj­una.

Blaða­manna­stúkan var óvenju­lega þétt­setin, sér­stak­lega í ljósi þess að ekki var mikið um blaða­menn frá Kósovo þar að finna. Í stað þeirra voru full­trúar nokk­urra af stærstu miðlum heims að skrá­setja ævin­týrið. Og Stan Collymore, sem fór alla leið í upp­lif­un­ar­ferl­inu með því að hita upp á Ölveri með Tólfunni.

Íslenska liðið kom mjög ein­beitt til leiks og gæða­mun­ur­inn á lið­unum skein í gegn á fyrstu 15 mín­útum leiks­ins. Það skap­aði hverja hættu­legu sókn­ar­stöð­una á fætur annarri án þess þó að úr þeim kæmi alvöru færi. En liðið lok­aði vel öllum svæðum og leik­menn Kósovo áttu í mestu vand­ræðum með að halda bolta innan síns liðs. Þeir náðu reyndar að skora úr fyrstu sókn sinni, en búið var að flagga rang­stöðu löngu áður en þeir settu bolt­ann í markið hjá Hannesi Hall­dórs­syni, sem reyndi ekki einu sinni að verja.

Næstu mín­út­urnar hægð­ist á leiknum. Íslenska liðið var þol­in­mótt í leik sínum og leit­aði að réttu leið­unum fram hjá varn­ar­múr Kósovo. Helsta vopn gest­anna virt­ist vera að þruma fram á tæp­lega tveggja metra háa og örugg­lega yfir 100 kílóa fram­herj­ann sinn, Atdhe Nuhiu. Mjög áhuga­verður leik­maður sem virt­ist í miklum vand­ræðum með að fóta sig og nýt­ast á blautum vell­inum.

Þótt Ísland væri mun meira með bolt­ann var samt lítið að ger­ast. Og á 38 mín­útu áttu Kosovo-menn stór­hættu­legt skot sem margir í stúkunni sáu inni. En þá gerð­ist það sem iðu­lega ger­ist með þetta ótrú­lega lið. Þeir fóru fram í sókn og innan við tveimur mín­útum síðar hafði Gylfi Sig­urðs­son, besti leik­maður sem Ísland á, prjónað sig í gegn og skorað. Spennan lið­að­ist úr áhorf­endum á sama tíma og þeir hrein­lega sprungu úr gleði. Eins og var, þá var Ísland á leið­inni á HM. Sama hvernig aðrir leikir færu.

Þetta breytti leiknum strax. Kósovo varð að færa sig upp úr skot­gröf­unum og koma framar á völl­inn. Augljóst var að það myndi opna á fleiri sókn­ar­mögu­leika fyrir íslenska liðið.

1-0 í hálf­leik og Ísland 45 mín­útum frá því að kom­ast á HM.

Seinni hálfleikur

Stan Collymore var hress í hálf­leik og gant­að­ist við íslenska fjöl­miðla­menn. Hann vildi fá að vita hvort það yrði ekki örugg­lega frí hjá allri þjóð­inni á morgun ef fram færi sem horfði. Og öllum Íslend­ingum virt­ist mjög létt að þurfa ekki að fara inn í seinni hálf­leik­inn í jafnri stöðu. Leikur Úkraínu og Króatíu var reyndar enn marka­laus í hálf­leik þannig að Ísland væri hvort eð er áfram í efsta sæti rið­ils­ins sama hver staðan í okkar leik væri. En það vildi eng­inn þurfa að treysta á úrslit ann­arra leikja. Við höfðum þegar eign­ast þjóð­hetju úr öðru lands­liði í Finnanum Pyry Soiri. Það var nóg.

Kosovo-menn byrj­uðu hálf­leik­inn betur og voru að finna svæði á vall­ar­helm­ingi Íslands sem þeir fundu ekki í fyrri hálf­leik, en þó án þess að skapa mikla hættu. Spennustigið reis aftur hægt og bít­andi og öllum sem á horfðu var ljóst að þetta yrði gríð­ar­lega taugatrekkj­andi ef Ísland bætti ekki við marki.

Eftir klukku­tíma­leik var hetj­unni úr Tyrkja­leiknum, Jóni Daða Böðv­ars­syni, skipt út af fyrir Alfreð Finn­boga­son. Um svipað leyti komust Króatar yfir gegn Úkraínu og miðað við þá stöðu var ljóst að ekk­ert nema sigur myndi duga Íslandi. Regninu kyngdi niður og leik­ur­inn varð þungur fyrir vikið. En mín­út­urnar héldu áfram að líða og liðið færð­ist nær mark­mið­inu.

Á 67 mín­útu gull­tryggðu Íslend­ingar síðan far­seð­il­inn til Rússland. Gylfi Sig­urðs­son tók stór­kost­lega á móti send­ingu, óð upp völl­inn, fann Birki Bjarna­son sem rendi bolt­anum aftur inn á teig­inn á Gylfa sem galdr­aði sig upp að enda­línu og fann Jóhann Berg Guð­munds­son fyrir mark­inu. 2-0.

Eftir þetta var bara partý. Liðið spil­aði skyndi­lega létt­leik­andi bolta og „Ísland á HM“ ómaði úr stúkunni. Mark­mið­inu var náð. Og það vissu það allir. Svo nið­ur­neglt var það að Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­lið­inn sjálfur, var tek­inn út af þegar tæpar 20 mín­útur voru eftir. Ísland átti nokkur færi til að bæta við en það var óþarfi. Þetta var komið.

Það verða margir ryðg­aðir í vinn­unni á morgun.

Til ham­ingju drengir. Til ham­ingju þjálf­arar. Til ham­ingju KSÍ. Til ham­ingju Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár