Allir stjórnmálaflokkar á Íslandi í tilvistarkreppu...nema Píratar

Það hefur átt sér stað eðl­is­breyt­ing á fylgi stjórn­mála­flokka á und­an­förnum mán­uðum. Og hún virð­ist vera að festa sig í sessi. Í henni felst að Píatar, flokkur sem stendur fyrst og fremst fyrir beint lýð­ræði og gagn­sæi, er langstærsti flokkur lands­ins. Hefð­bundnu valda­flokk­arnir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, mæl­ast með lægra fylgi en í verstu kosn­inga­nið­ur­stöðum sínum í sög­unni. Miðju- og vinstri­flokkar í stjórn­ar­and­stöðu græða hins vegar ekk­ert á þeim óvin­sældum. Sam­fylk­ingin glímir við svo stór­kost­lega til­vist­ar­kreppu að hún gæti gert út af við flokk­inn, Vinstri grænir eru með vin­sælan for­mann en lítið fylgi og Björt fram­tíð er í frjálsu falli eftir að taugin við Besta flokk­inn rofn­aði.

Píratar eru eini flokkur lands­ins sem er ánægður með stöðu sína. Það eru sann­ar­lega áhuga­verðir tímar í íslenskri póli­tík þessi dægrin.

Stóru málin í höfn en fylgið lækkar

Það hlýtur að vera áhyggju­efni fyrir rík­is­stjórn sem hefur, að minnsta kosti að eigin mati, unnið mikla pólitiskra sigra með því að standa við kosn­inga­lof­orð um lækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána og sem virð­ist vera að sigla í höfn lausn á því gríð­ar­lega stóra vanda­máli sem slitabú föllnu bank­anna eru fyrir íslenskt efna­hags­líf eru, séu ekki að skila henni neinu við­bót­ar­fylgi. Þegar við bæt­ist að á Íslandi er hag­vöxtur, lág verð­bólga, afgangur af rík­is­rekstr­inum og lítið atvinnu­leysi þá virð­ist erfitt að sjá hvað það er, út frá hefð­bundum efna­hags­legum mæli­kvörðum, sem valdi því að rík­is­stjórn njóti jafn lít­illa vin­sælda og raun bera vitni.

Nú hafa birst tvær skoð­ana­kann­anir frá því að áætlun um losun hafta var kynnt. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lagt mikla áherslu á að nið­ur­staðan í því máli sé afleið­ing af harðri stefnu flokks­ins gagn­vart „erlendum hrægamma­sjóðum“. Fyrsta könn­unin, sem Frétta­blaðið birti í síð­ustu viku, sýndi hins vegar 8,5 pró­sent fylgi við Fram­sókn­ar­flokk­inn sem myndi skila honum fimm þing­mönnum. Hann hefur 19 slíka í dag.

Önnur könn­unin birt­ist síðan í dag, en hún var gerð af MMR. Þar mæld­ist fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins aðeins hærra, eða með tíu pró­sent fylgi. Það dróst hins vegar saman frá könnun MMR sem birt var 2. júní síð­ast­lið­inn, þegar Framsókn mæld­ist með 11,3 pró­sent fylgi.

Þegar miðað er við nið­ur­stöðu síð­ustu kosn­inga er fall Fram­sókn­ar­flokks­ins mest allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, en flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða í alþing­is­kosn­ing­unum vorið 2013. Í dag er fylgi flokks­ins ein­ungis 40 pró­sent af því sem það var þá.

Til að setja lágt fylgi flokks­ins í sögu­legt sam­hengi þá er hægt að benda á að lægsta fylgi sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur nokkru sinni fengið í alþing­is­kosn­ingum var árið 2007 þegar hann fékk 11,7 pró­sent atkvæða.

Með minna fylgi en árið 2009

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nán­ast án und­an­tekn­inga verið stærsti flokkur lands­ins. Um ára­tuga­skeið var fylgi flokks­ins oft­ast yfir 35 pró­sent. Árið 1999, þegar Davíð Oddsson leiddi Sjálf­stæð­is­flokk­inn og rík­is­stjórn lands­ins, fékk flokk­ur­inn 40,7 pró­sent fylgi og í síð­ustu kosn­ing­unum fyrir hrun, árið 2007, fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, undir for­ystu Geirs H. Haarde, 36,6 pró­sent atkvæða.

Eftir hrun hefur flokk­ur­inn hins vegar þurft að takast á við gjör­breyttan veru­leika. Hann fékk sína verstu kosn­ingu í sögu sinni árið 2009 þegar Bjarni Bene­dikts­son leiddi hann í fyrsta sinn í gegnum slíkar. Þá fékk Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 23,7 pró­sent atkvæða og ell­efu þús­und atkvæðum færri en Sam­fylk­ingin.


Nið­ur­staðan vorið 2013 varð aðeins skárri, 26,7 pró­sent atkvæða og flokk­ur­inn varð aftur stærstur í land­inu. Þetta var samt sem áður næst versta útkoma Sjálf­stæð­is­flokks­ins í alþing­is­kosn­ingum í rúm­lega 30 ár. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk minna fylgi í þessum tveimur kosn­ingum, 2009 og 2013, en hann fékk árið 1987 þegar klofn­ings­fram­boðið Borg­ara­flokk­ur­inn fékk tæp­lega ell­efu pró­sent fylgi.

Fylgi flokks­ins hefur oft­ast nær mælst tölu­vert undir kjör­fylgi það sem af er því kjör­tíma­bili sem nú stendur yfir. Lægst mæld­ist það hjá MMR 21,2 pró­sent í könnun sem var birt 2. júní síð­ast­lið­inn. Það er raunar lægsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Í könn­un­inni sem var birt í dag eykst fylgið lit­il­lega en er enn langt frá því sem Sjálf­stæð­is­menn telja ásætt­an­legt. Nú mælist fylgið 23,3 pró­sent.

Í nið­ur­broti á fylgi við flokka eftir aldri og tekjum, sem MMR birti í lok maí síð­ast­lið­ins kom í ljós ákveðið mynstur í kjós­enda­hópi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna tveggja. Þeir njóta mun meiri stuðn­ings hjá eldra og tekju­hærra fólki en því sem er yngra og tekju­lægra.

Stöðugir Píratar standast árásir


Píratar, sem eru með þrjá þing­menn, halda áfram að vera sá flokkur sem lang­flestir Íslend­ingar gætu hugsað sér að kjósa. Auknar vin­sældir flokks­ins á und­an­förnum mán­uðum eru raunar alveg ótrú­legar. Píratar fengu 5,1 pró­sent atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum og rétt skriðu yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn sem þarf til að fá menn inn á þing. Framan af kjör­tíma­bil­inu óx fylgi við flokk­inn nokkuð jafnt og þétt og í jan­úar 2015 mæld­ist það 12,8 pró­sent og hafði aldrei mælst hærra. Það átti þó eftir að breyt­ast.

Eftir að hafa tekið risa­stökk í könnun í mars (fylgið mæld­ist þá 23,9 pró­sent) hefur flokk­ur­inn nú mælst með yfir 30 pró­sent fylgi í fjórum könn­unum MMR í röð. Kannanir Frétta­blaðs­ins og Gallup sýna einnig svip­aðar nið­ur­stöður. Í nýj­ustu könnun MMR mæl­ast Píratar með 32,4 pró­sent fylgi sem þýðir að þeir yrðu langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins ef kosið yrði nú.

Samhliða auknum vin­sældum hefur gagn­rýni póli­tískra and­stæð­inga á Pírata þyngst mikið. Þeim hefur meðal ann­ars verið legið á hálsi að mæta illa á nefnd­ar­fundi og fyrir að hafa enga stefnu í lyk­il­málum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði síð­ast í við­tali við DV í morgun að það væri mikið áhyggju­efni fyrir sam­fé­lagið allt ef bylt­ing­ar­flokkur eins og Píratar „með mjög óljósar hug­myndir um lýð­ræði og flokkar sem vilja umbylta grunn­stoðum sam­fé­lags­ins nái áhrifum“. Þessi gagn­rýni virð­ist þó ekk­ert bitna á fylgi Pírata. Að minnsta kosti enn sem komið er.

[caption id="attachment_22786" align="alignnone" width="642"] Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að und­an­förnu og margir þakka ekki síst honum fylg­is­aukn­ingu Pírata hér á landi.[/caption]

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að undanförnu og margir þakka ekki síst honum fylgisaukningu Pírata hér á landi.
Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að und­an­förnu og margir þakka ekki síst honum fylg­is­aukn­ingu Pírata hér á landi.

 

Björt framtíð hrapaði eftir að Jón Gnarr afneitaði flokknum


Það eiga fleiri stjórn­mála­flokkar við til­vist­ar­kreppu að etja en stjórn­ar­flokk­arnir. Nýja­brumið og fersk­leik­inn sem Björt fram­tíð hafði hefur horfið mjög snögg­lega á und­an­förnum mán­uðum. Flokk­ur­inn mæld­ist með tæp­lega 22 pró­sent fylgi í fyrra­haust en það sem af er árinu 2015 hefur fylgi hans verið í frjálsu falli. Nú mælist það 6,8 pró­sent, sem er undir kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum (Björt fram­tíð fékk þá 8,2 pró­sent atkvæða).

Hvað valdi þessum fylg­is­flótta hjá flokki sem er í stjórn­ar­and­stöðu er erfitt að full­yrða um. Það er hins vegar stað­reynd að fylgið hefur dreg­ist mjög skarpt saman eftir að Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrrum stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar og náinn sam­starfs­maður Jóns Gnarr í gegnum árin, hætti í des­em­ber og eftir að Jón Gnarr opin­ber­aði að hann væri ekki í Bjartri fram­tíð í mars, en Jón var í fimmta sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar. Jón, sem leiddi Besta flokk­inn til sig­urs í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í Reykja­vík árið 2010, sagði þá í stöðu­upp­færslu á Facebook: „Björt fram­tíð er ekki Besti flokk­ur­inn þótt margir haldi því fram í ein­hverjum póli­tískum til­gangi að ég held. Ég er ekki með­limur í neinum stjórn­mála­flokki núna, svo ég viti. Ég er ekki með­limur í Bjartri fram­tíð. Ég fylgi engum sér­stökum flokki að málum frekar en öðrum. Ég er heldur ekki á móti neinum flokki.“

Með brott­hvarfi Heiðu Krist­ínar og afneitun Jóns rofn­aði mjög hin sterka teng­ing Bjartrar fram­tíðar við Besta flokk­inn, sem naut fádæma vin­sælda á meðan hann var til. Per­sónu­fylgi Guð­mundar Stein­gríms­sonar, for­manns flokks­ins, virð­ist líka vera lítið. Í nýlegri könnun MMR sögð­ust ein­ungis fjögur pró­sent aðspurðra telja hann vera fæddan leið­toga.

[caption id="attachment_9292" align="alignnone" width="640"] Jón Gnarr var gríð­ar­lega vin­sæll borg­ar­stjóri í Reykja­vík og Besti flokkur hans fékk 34,7 pró­sent atkvæða í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2010. Margir tengdir því fram­boði tóku síðar þátt í að stofna stjórn­mála­flokk­inn Bjarta fram­tíð sem naut framan af tölu­verðs fylgis í könn­unum. Svo virð­ist sem fylgið hafi dalað eftir því sem Besta flokks teng­ingin hefur dofnað.[/caption]

Jón Gnarr var gríðarlega vinsæll borgarstjóri í Reykjavík og Besti flokkur hans fékk 34,7 prósent atkvæða í sveitastjórnarkosningunum 2010. Margir tengdir því framboði tóku síðar þátt í að stofna stjórnmálaflokkinn Bjarta framtíð sem naut framan af töluverðs fylgis í könnunum. Svo virðist sem fylgið hafi dalað eftir því sem Besta flokks tengingin hefur dofnað.
Jón Gnarr var gríð­ar­lega vin­sæll borg­ar­stjóri í Reykja­vík og Besti flokkur hans fékk 34,7 pró­sent atkvæða í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2010. Margir tengdir því fram­boði tóku síðar þátt í að stofna stjórn­mála­flokk­inn Bjarta fram­tíð sem naut framan af tölu­verðs fylgis í könn­unum. Svo virð­ist sem fylgið hafi dalað eftir því sem Besta flokks teng­ingin hefur dofnað.

 

Afar slæm staða Samfylkingar


Sá flokkur sem virð­ist í mestum vand­ræðum allra er Sam­fylk­ingin, flokkur sem átti að sam­eina vinstri­menn lands­ins og mynda annan turn í íslenskum stjórn­málum til mót­vægis við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Flokk­ur­inn fékk 26,8 pró­sent atkvæða þegar hann bauð fyrst fram árið 1999, 31 pró­sent í kosn­ing­unum 2003, 26,8 pró­sent árið 2007 og 29,8 pró­sent í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2009. Eftir þær kosn­ingar var Sam­fylk­ingin stærsti flokkur lands­ins og leiddi fyrstu hreinu vinstri­st­jórn­ina.

Flokk­ur­inn beið hins vegar afhroð í kosn­ing­unum í apríl 2013 og fékk ein­ungis 12,9 pró­sent atkvæða. Aldrei nokkru sinni í sögu íslenskra stjórn­mála hefur einn flokkur tapað jafn miklu fylgi á milli kosn­inga og Sam­fylk­ingin gerði á milli áranna 2009 og 2013.

Þrátt fyrir miklar óvin­sældir sitj­andi rík­is­stjórnar, skarpar víg­línur innan stjórn­mál­anna á kjör­tíma­bíl­inu og hörð­ustu vinnu­mark­aðs­deilur sem átt hafa sér stað á Íslandi í ára­tugi hefur jafn­að­ar­manna­flokkur lands­ins ekki náð að höfða til kjós­enda. Þvert á móti. Fylgið mælist nú 11,6 pró­sent, eða minna en í síð­ustu kosn­ingum.

Árni Páll Árnason, for­maður flokks­ins, mælist með mjög lítið per­sónu­fylgi í könn­unum og virð­ist ekki trekkja kjós­endur að flokknum. Í könnun MMR sem birt var í lok apríl sögðu til dæmis þrjú pró­sent aðspurðra að hann væri fæddur leið­togi. Engin stjórn­málafor­ingi mæld­ist lægri í þeim flokki. Sex pró­sent svar­enda taldi að Árni Páll skil­aði árangri.

Innan flokks virð­ast líka ýmsir hafa áhyggjur af því að Árni Páll sé ekki rétti mað­ur­inn til að rífa upp fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar. Framboð Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, þing­manns flokks­ins, til for­manns flokks­ins í mars síð­ast­liðnum var til marks um það. Árni Páll sigr­aði kosn­ing­arnar með einu atkvæði og sat mun veik­ari eftir.

Vinstri græn á sínum sögulega slóðum


Vinstri græn er á svip­uðum slóðum í fylgi og flokk­ur­inn hefur að jafn­aði verið frá því að hann bauð fyrst fram árið 1999. Þá fékk hann 9,1 pró­sent atkvæða. Fjórum árum síðar fékk flokk­ur­inn 8,8 pró­sent og árið 2007 14,35 pró­sent.

Í kjöl­far bús­á­hald­ar­bylt­ing­ar­innar 2009 unnu Vinstri grænir sinn stærsta kosn­inga­sigur þegar flokk­ur­inn fékk 21,7 pró­sent atkvæða og fjórtán þing­menn kjörna. Sú mikla fylg­is­sveifla staldr­aði þó stutt við og í kosn­ing­unum 2013 var fylgið komið aftur niður í kunnu­lega stærð, 10,9 pró­sent.

Í dag mælist fylgið 10,5 pró­sent og hefur oft­ast verið á þeim slóðum á þessu kjör­tíma­bili sam­kvæmt mæl­ingum.

[caption id="attachment_5499" align="alignnone" width="1024"] Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, nýtur mik­ils per­sónu­fylgis. Það skilar sér hins vegar ekki til flokks hennar.[/caption]

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, nýtur mikils persónufylgis. Það skilar sér hins vegar ekki til flokks hennar.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, nýtur mik­ils per­sónu­fylgis. Það skilar sér hins vegar ekki til flokks hennar.

Per­sónu­fylgi leið­toga flokks­ins, Katrínar Jak­obs­dóttur, er hins vegar mjög mikið og ljóst virð­ist að margir kjós­endur gætu hugsað sér að kjósa hana en ekki flokk hennar. Rit­höf­und­ur­inn Jón Kalman Stef­áns­son skrif­aði grein sem birt­ist á Kjarn­anum í byrjun maí­mán­aðar þar sem hann kall­aði eftir því að vinstri- og jafn­að­ar­menn fylki sér á bak­við Katrínu Jak­obs­dóttir sem leið­toga nýs sam­eig­in­legs fram­boðs í anda R-list­ans. „Ef hún hefur áhuga á að hrifsa sam­fé­lagið úr járn­klóm hags­muna, nýfrjáls­hyggju og lýð­skrumara, þá verður hún að stíga fram og sam­eina vinstri– og miðju­menn að baki sér. Og aðrir for­ystu­menn eiga að víkja. Þeir eiga að taka hags­muni þjóðar fram yfir per­sónu­legan metnað og verða ridd­arar í sveit Katrínar Jak­obs­dóttur. Hennar tími er ein­fald­lega runn­inn upp. Hvort sem henni líkar betur eða verr,“ sagði Jón Kalman í grein­inni.

Áhuga­vert verður að sjá hvort stöðugt slök staða Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar og Vinstri grænna sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum muni leiða til ein­hvers­konar sam­starfs flokk­anna um fram­boð fyrir næstu kosn­ingar, sem fara fram eftir tæp tvö ár. Sam­an­lagt fylgi flokk­anna þriggja í dag er að minnsta kosti ekk­ert til að hrópa húrra yfir, eða 28,9 pró­sent. Það er umtals­vert lægra en fylgi Pírata og minna en Sam­fylk­ingin fékk ein og sér í kosn­ing­unum 2009. Það er líka minna en sam­eig­in­legt fylgi stjórn­ar­flokk­anna tveggja, sem saman eru með 33,3 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár