Ætlar ekki að taka þátt í sjónvarpskappræðum

For­sæt­is­ráð­herr­ann ætlar að halda spil­unum mjög nærri sér í kosn­inga­bar­átt­unni í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna í Bret­landi. Engar sjón­varp­s­kapp­ræður munu fara fram.

Kosið verður til þings í Bretlandi í júní svo tryggja megi umboð stjórnvalda í Brexit-viðræðunum. Það fara hins vegar engar kappræður fram í kosningabaráttunni.
Kosið verður til þings í Bret­landi í júní svo tryggja megi umboð stjórn­valda í Brexit-við­ræð­unum. Það fara hins vegar engar kapp­ræður fram í kosn­inga­bar­átt­unni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og for­maður Íhalds­flokks­ins, lýsti því yfir í dag að hún hygð­ist ekki taka þátt í sjón­varp­s­kapp­ræðum í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna sem hún hefur lagt til að yrðu boð­aðar.

[links]Þrátt fyrir að hafa ítrekað lýst því yfir að engar þing­kosn­ingar yrðu boð­aðar í kjöl­far Brexit-atkvæða­greiðsl­unnar fyrr en kjör­tíma­bilið væri liðið árið 2020, þá óskaði May eftir því að breska þingið myndi greiða atkvæði með til­lögu hennar um að boðað yrði til kosn­inga 8. júní næst­kom­andi.

Þingið greiðir atkvæði um til­lög­una í dag og þurfa tveir þriðju­hlutar þing­heims að sam­þykkja hana svo kosn­ing­arnar verði haldnar. Jeremy Corbyn, leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar og Verka­manna­flokks­ins, hefur sagst ætla að styðja þessa til­lögu.

„Við ætlum ekki að halda neinar sjón­varp­s­kapp­ræður,“ sagði May í útvarps­við­tali í morgun. „Ég vil kosn­inga­bar­áttu þar sem stjórn­mála­menn­irnir ræða augliti til auglitis við kjós­endur. Það er eitt­hvað sem ég hef alltaf trúað að sé best, og það er það sem ég trúi enn, og það er það sem ég ætla að gera í þess­ari kosn­inga­bar­áttu.“

Í við­tal­inu í morg­un­þætt­inum Today á BBC 4 var May einnig spurð um hvað hafi valdið því að hún skipti um skoðun á snemm­búnum kosn­ingum. Hún hafn­aði því að kosn­ing­arnar yrðu haldnar svo snemma til þess að gera mála­miðl­anir auð­veld­ari í Brexit-við­ræð­unum, eins og hún hefur sjálf gefið óbeint í skyn.

[adspot]

Einu skýr­ing­arnar sem May hefur gefið fyrir því að kosn­ing­arnar séu haldnar svo snemma og með svo skömmum fyr­ir­vara eru að þær gætu treyst umboð stjórn­valda til þess að leiða við­ræð­urnar í þá átt sem ákveðin hefur verið. Þær muni leiða af sér stöð­ug­leika til lengri tíma.

Íhalds­flokk­ur­inn undir stjórn Theresu May hefur und­an­farið mælst stærstur á lands­vísu í Bret­landi með nokkrum mun. Íhalds­menn mæl­ast með um 40-45 pró­sent stuðn­ing miðað við um 25 pró­sent stuðn­ing við Verka­manna­flokk­inn undir stjórn Jeremy Corbyn.

Séu leið­togar þess­ara tveggja stærstu flokka bornir saman og spurt hver yrði betri for­sæt­is­ráð­herra hefur May haft afger­andi yfir­burði gegn Corbyn.

Síðustu þing­kosn­ingar voru haldnar í Bret­landi árið 2015 þegar Íhalds­flokk­ur­inn fékk 36,9 pró­sent atkvæða með David Cameron í for­ystu. Ed Milli­band leiddi þá Verka­manna­flokk­inn sem hlaut 30,4 pró­sent.

May var­ast það segja ekki of mikið um Brexit-við­ræð­urnar sem geta nú haf­ist form­lega eftir að hún sendi form­lega beiðni um að Bretar fengju að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu í lok síð­asta mán­aðar. Hún hefur gengið svo langt að segja að á meðan kosn­inga­bar­átt­unni stendur muni hún ekki veita neinar nýjar upp­lýs­ingar um gang við­ræð­anna.

Vef­miðlar í Bret­landi hafa keppst við að benda á hlut­verk fjöl­miðla þegar kemur að kosn­ingum; kosn­ingar séu tæki­færi fyrir almenn­ing til þess að kynn­ast fram­bjóð­endum og grann­skoða þá kosti sem séu í boði svo hægt sé að taka upp­lýsta afstöðu í kjör­klef­anum. „Þess vegna hreinsa dag­blöð og sjón­varps­stöðvar dag­skrá sína og eyða svo miklum tíma í kosn­ingar,“ skrifar Andrew Sparrow, stjórn­mála­frétta­rit­ari The Guardian í pistli sínum á vefnum. „Kannski erum við bara að eyða tím­anum okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár