May vill boða til kosninga í Bretlandi

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, vill boða til snemm­bú­inna þing­kosn­inga í Bret­landi. Hún þarf sam­þykki frá stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum til þess að fá til­lögu sína í gegn.

Theresa May vill boða til þingkosninga til þess að tryggja umboð sitt í Brexit-viðræðunum. Hún tók við sem forsætisráðherra Bretlands síðasta sumar, eftir að David Cameron sagði af sér.
Theresa May vill boða til þing­kosn­inga til þess að tryggja umboð sitt í Brexit-við­ræð­unum. Hún tók við sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands síð­asta sumar, eftir að David Cameron sagði af sér. Mynd: EPA

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, vill boða til þing­kosn­inga í Bret­landi. Kosn­ing­arnar eiga að fara fram þann 8. júní næst­kom­andi. 

[links]Þetta til­kynnti May rétt í þessu á blaða­manna­fundi. Hún sagði að eftir að Bretar ákváðu að ganga út úr Evr­ópu­sam­band­inu í júní í fyrra hafi þjóðin þurft stöð­ug­leika og sterka leið­toga. Það hafi hennar rík­is­stjórn veitt frá því að hún tók við síð­ast­liðið haust.

Hún hafi áður sagt að ekki ætti að boða til kosn­inga fyrr en á hefð­bundnum tíma, árið 2020, en nú hafi hún kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að eina leiðin til að tryggja stöð­ug­leika sé að boða til kosn­inga.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir séu mót­fallnir áformum Íhalds­flokks­ins um Brexit, og til að mynda hafi Verka­manna­flokk­ur­inn hótað að greiða atkvæði gegn útgöngu­samn­ingi úr Evr­ópu­sam­band­inu. Hún sé ekki reiðu­búin til að leyfa and­stæð­ingum sínum að setja Brexit samn­inga­við­ræð­urnar í upp­nám, og því þurfi að halda kosn­ingar.

[adspot]

May mun því flytja til­lögu um kosn­ing­arnar í breska þing­inu á morgun. Þingið þarf að sam­þykkja til­lög­una til þess að af kosn­ing­unum verði. Til þess að af því verði þurfa stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn að greiða atkvæði með til­lög­unni, þar sem tvo þriðju hluta atkvæða þarf til þess að til­lagan verði sam­þykkt.

Með til­lög­unni má segja að May sé að skora stjórn­ar­and­stöð­una á hólm. Hún sagði að stjórn­ar­and­staðan ætti að sam­þykkja til­lögu hennar og leyfa bresku þjóð­inni að ákveða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár