Framsóknarflokkurinn að minnsta kosti mjúk útgáfa af popúlistaflokki

Algjör­lega ný for­ysta hjá Fram­sókn­ar­flokknum, sem komst til valda eftir hrunið á Íslandi, leiddi til þess að flokk­ur­inn færð­ist hratt í átt að popúl­isma. Óhjá­kvæmi­legt er að flokka Framsókn að minnsta kosti með mýkri útgáfum popúlista­flokka í Evrópu. Þetta segir Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, í nýrri fræði­grein sinni „Populism in Iceland: Has the Progressive Party tur­ned pop­u­list?“ sem birt­ist í tíma­rit­inu Stjórn­mál og stjórn­sýsla í dag.

Í grein­inni kemur fram að ekki er sam­hljómur um það í fræð­unum hver skil­grein­ingin á popúl­isma er, en Eiríkur tekur fram tíu ein­kenni sem popúl­ískir stjórn­mála­flokkar í Evrópu hafa nú til dags.

Flokk­arnir eru á móti inn­flytj­endum og elítum. Þeir eru fullir efa­semda um Evr­ópu­sam­run­ann, þar eru siða­predik­arar sem aðhyll­ast vernd­un­ar­stefnu í efna­hags­málum, tala fyrir lögum og reglu og eru á móti fjöl­menn­ing­ar­þróun í Evrópu. Þeir vilji heldur höfða til til­finn­inga en raka, geri grein­ar­mun á „okkur“ og „hinum“ og treysti á sterka leið­toga sem séu gæddir per­sónu­töfrum og tali í ein­földum lausnum á flóknum málum sem íþyngi almenn­ingi.

Eiríkur til­tekur í grein sinni dæmi um öll þessi tíu ein­kenni innan Fram­sókn­ar­flokks­ins á und­an­förnum árum. Þrátt fyrir það segir hann að flokk­ur­inn sé ekki að öllu leyti pop­ul­ískur og í raun meiri þjóð­ern­is­flokkur en popúlista­flokkur. Það sé þó óhjá­kvæmi­legt að flokka Fram­sókn­ar­flokk­inn að minnsta kosti með mýkri útgáfum af popúlista­flokkum í Evrópu. Hann sé lík­lega lík­astur norska Fram­sókn­ar­flokknum í þessum efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár