Guðlaugur Þór Þórðarson stígur til hliðar

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir kemur inn í fram­varða­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins og verður næsti rit­ari hans.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur ákveðið að stíga til hliðar sem rit­ari flokks­ins. Þetta til­kynnti Guð­laugur Þór í kvöld­fréttum RÚV rétt í þessu. Ákvörðun Guðlaugs Þórs kemur í kjöl­far þess að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, fyrrum for­maður Heimdallar, til­kynnti skyndi­lega í dag að hún ætl­aði að bjóða sig fram gegn Guðlaugi Þór í þriðja valda­mesta emb­ætti flokks­ins. Hún er 24 ára lög­fræði­nemi.

Guð­laugur Þór sagð­ist hafa tekið ákvörð­un­ina með hags­muni flokks­ins að leið­ar­ljósi. Þegar öfl­ugt mór­fram­boð frá ungum flokks­manni þá vilji hann stíga til hliðar og veita henni tæki­færi til að koma inn í fram­varða­sveit­ina. Áslaug Arna verður því ein í fram­boði til emb­ættis rit­ara þegar kosið verður á morgun.

Áslaug Arna sagði að ákvörðun Guðlaugs Þórs hafði komið flatt upp á sig en fagn­aði því að þau væri sam­mála um að það þyrfti að breyta ein­hverju. "Ég er ánægð með að við séum sam­mála um að við þurfum að breyta ein­hverju".

Ungir sjálf­stæð­is­menn hafa sann­ar­lega látið fyrir sér finna á lands­fundi flokks­ins um helg­ina. Alls hlutu níu af hverjum tíu til­lögum þeirra braut­ar­gengi í mál­efna­nefndum á lands­fundi flokks­ins og munu því verða aðal­til­lögur nefnd­anna þegar kosið verður um þær á morgun. Ungir sjálf­stæð­is­menn sendu í gær frá sér lista með um 80 breyt­ing­ar­til­lögum á álykt­un­ar­drögum sem mál­efnda­nefndir flokks­ins höfðu útbúið í aðdrag­anda lands­fundar, sem nú stendur yfir. Auk þess fjöl­menntu ung­liðar á fund­inn til að styðja við til­lög­urnar. Alls var búist við um 300 ungum ein­stak­lingum og að met­þátt­taka yrðu á meðal ungs fólks.

89 prósent tillagna hlutu brautargengi

Til­lög­urnar sem ungu flokks­menn­irnir lögðu fram voru af ýmsum toga. Þeir lögðu til dæmis til að sýslu­menn taki alfarið yfir hjóna­vígslur, að Rík­is­út­varpið verði lagt niður, að kosn­inga­aldur verði lækk­aður í 16 ár og að sér­stök áhersla verði lög á mál­efni trans- og inter­sex­fólks. Auk þess köll­uðu þeir eftir breyttum áherslum í hús­næð­is­málum og telja að fram­tíð­ar­lausn í gjald­miðla­málum felist í öðrum gjald­miðli en krón­unni.

Í nýrri til­kynn­ingu, sem send var í dag, greina full­trúar ungra sjálf­stæð­is­manna frá því að 89 pró­sent til­lagna þeirra hafi hlotið braut­ar­gengi í nefndum og munu því verða aðal­til­lögur nefnd­anna fyrir fund­inum á morgun.

„Tillögur ungra fólu meðal ann­ars í sér aðskilnað ríkis og kirkju, afnám refsi­stefnu í fíkni­efna­málum og litið verði á fíkn sem heil­brigð­is­mál ekki lög­gæslu­vanda, lægri kosn­inga­aldur, bætt skattaum­hverfi fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki, stað­göngu­mæðrun, lög­fest­ingu NPA, net­frelsi, að losa land­bún­að­inn við fjár­stuðn­ing rík­is­ins, afnám lág­marks­út­svars, að tekið sé til gagnerrar end­ur­skoð­unar hvernig tekið er á kyn­ferð­is­brota­málum og að ekki ætti að leggja almannafé í stór­iðju sem ekki skilar arð­semi fyrr en eftir langan tíma. Fjöldi ann­arra mála ungra sjálf­stæð­is­manna fóru í gegn.

Þá fengu ungir sjálf­stæð­is­menn sam­þykkt ýmsar úrbætur í mál­efnum hinseg­ins fólks. Þar má nefna að blóð­gjafar verði metnir á for­sendum heilsu­fars óháð kyn­hneigð, mann­rétt­indi trans og inter­sex fólks, jöfn rétt­indi sam­kyn­heigðra for­eldra og að ekki yrði talað um konur og karla þar sem það úti­lokar hið þriðja kyn“.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst með minna fylgi í aðdrag­anda lands­fundar en hann gerir nú, en sam­kvæmt síð­ustu könnun er fylgi flokks­ins 21,4 pró­sent. Í könnun sem MMR gerði í lok maí komi í ljós að 12,5 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 29 ára studdi flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár