Þórólfur: Algjört lykilatriði að sem flestir fari í bólusetningu

Enn er ekki komin dag­setn­ing á hvenær bólu­efni gegn COVID-19 kemur til lands­ins og hversu mikið magn kemur í fyrstu send­ingum. Sótt­varna­læknir segir að bólu­setn­ing verði ekki skylda og verði gjald­frjáls.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Við þjá­umst öll saman í þeim upp­lýs­inga­skorti,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir um stöðu á leyf­is­veit­ingum evr­ópsku lyfja­stofn­unar á bólu­efn­unum sem nú er beðið eftir. „En það er algjört lyk­il­at­riði að sem flestir fari í bólu­setn­ingu,“ sagði hann á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Bólu­setja þurfi að minnsta kosti 60-70 pró­sent þjóð­ar­innar, til að bæla far­ald­ur­inn almenni­lega niður. „Ef við náum því hlut­falli þá munum við enn geta fengið litlar hóp­sýk­ingar. Þannig að það er algjör­lega lyk­il­at­riði að sem flestir taki þátt og við munum auð­vitað leggja áherslu á það. En það er erfitt að ræða um það á þess­ari stundu þegar við vitum ekki allar nið­ur­stöður á rann­sóknum á bólu­efn­unum.“

Þórólfur sagði að helgin hefði verið nokkuð góð hvað nýgrein­ingar á COVID-19 varðar. Aðeins sjö greindust inn­an­lands í gær og allir voru þeir ein­stak­lingar í sótt­kví. „Þróunin er jákvæð en það er rétt að minna á að það voru færri sýni tekin um helg­ina en dag­ana á undan,“ sagði hann að tölur næstu daga myndu skýra betur stöðu far­ald­urs­ins.

[adspot]

„Það er held ég ljóst að þó að þró­unin sé jákvæð þarf lítið að ger­ast svo að við fáum aft­ur­kipp,“ var­aði hann við. „Ég vil þannig áfram hvetja alla sem finna fyrir minnstu ein­kennum að fara í sýna­töku – það er þunga­miðjan í því að sjá hvað er að ger­ast í far­aldr­inum.“

Rað­grein­ingar á veiru­sýnum síð­ustu daga sýna að franska veiran svo­kall­aða, sem kom hingað til lands með frönskum ferða­mönnum í ágúst, er enn sá stofn sem er að grein­ast helst þessa dag­ana. „Við héldum á tíma­bili að hann væri að deyja út en hann virð­ist aftur hafa náð sér á strik,“ sagði Þórólfur.

[links]Núver­andi tak­mark­anir á sam­komum og starf­semi gilda til og með mið­viku­dags og mun sótt­varna­læknir senda heil­brigð­is­ráð­herra nýjar til­lögur í dag eða á morgun sem þá munu taka gildi á fimmtu­dag, fari ráð­herra að hans ráð­legg­ingum. Hann sagði að taka þyrfti marga þætti til greina þegar ákvörðun um tak­mark­anir er tekin. Nýgengi smita inn­an­lands og hversu margir eru að grein­ast utan sótt­kvíar eru t.d. atriði sem taka þarf til greina. Þá verður einnig að taka til­lit til ástands­ins á sjúkra­hús­unum og hvaða stefnu far­ald­ur­inn er að taka erlendis.

„Það er þó í mínum huga ljóst að við þurfum að fara mjög hægt í allar til­slak­anir,“ sagði Þórólfur sem vildi ekki fjalla um mögu­legar til­lögur á þessum tíma­punkti. „Við verðum að virða áfram allar sótt­varna­reglur – við þurfum að vera til­búin að halda lág­stemmda aðventu, jól og ára­mót í ár. Þar sem við þurfum að vera að til­búin að hitta aðeins okkar nán­asta fólk og virða ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir. Það eru þessi atriði sem hafa skilað okkur góðum árangri og við þurfum áfram að við­hafa til að við­halda árangri.“

Hvað varðar sam­komur helg­ar­innar, þar sem sumir komu saman til að skera út laufa­brauð og baka, svo dæmi séu tekin, sagði Þórólfur að allir yrði að fara var­lega og halda sig innan „sinnar búbblu“ – þ.e. ekki stofna til margra sam­koma með fólki úr ólíkum áttum.

Styttist í bóluefni en biðin ekki á enda

Enn er ekki ljóst hvenær bólu­efni mun koma hingað til lands og hversu mikið magn við munum fá í fyrstu. „Við erum enn að und­ir­búa komu þess og hvernig staðið verður að bólu­setn­ingu þegar þar að kemur. Við Vitum ekki hvenær það kemur eða hversu mikið við fáum í hverri send­ingu. Þetta skýrist vænt­an­lega þegar lengra líður á mán­uð­inn.“

Hann sagð­ist ekki sjá ástæðu til að bólu­setja fólk sem hefur fengið COVID-19. Hins vegar þurfi það fólk ekki að ótt­ast að bólu­setn­ingin myndi valda frek­ari auka­verk­unum. Spurður hvort að fólk sem grunar að það hafi fengið sjúk­dóm­inn ætti að fara í mótefna­mæl­ingu áður en að bólu­setn­ingu kemur segir Þórólfur það koma sterk­lega til greina. Það sé þó undir hverjum og einum komið.

Þórólfur ítrek­aði að bólu­setn­ing verður ekki skylda og að hún verði gjald­frjáls.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár