Líkamsvirðing er lykillinn að velgengni

Að hækka lágt sjálfs­á­lit og auka lík­ams­virð­ingu kvenna gæti verið lyk­ill­inn að jafn­rétti kynj­anna og vel­gengni nútíma­sam­fé­laga. Þetta full­yrðir nýleg rann­sókn á vegum Bristol háskól­ans í Bret­landi. Hún hefur orðið til þess að her­ferðin á vegum Jan­frétt­is­ráðs Breska rík­is­ins og ann­arra styrkt­ar­að­ila sem nefn­ist „Be real“ hefur verið hrint að stað til að sporna við þró­un­inni.

Nið­ur­stöður 25 rann­sókna sem skoð­uðu sam­hengi lík­ams­virð­ingar og vel­gengni, sér­stak­lega hjá konum og ung­lings­stúlkum, sýndu að konur eyða óeðli­lega miklum tíma í að sinna útliti sínu, sem síðan tekur orku og tíma frá öðrum athöfnum. Gengið er svo langt að full­yrða að konur myndu fylla fleiri stjórn­un­ar­störf og vera meira áber­andi í sam­fé­lag­inu ef við myndum hafa raun­veru­legri og fjöl­breyti­legri staðalí­myndir.

[quote font="0" align="right"]Áhyggjur af útliti, stærð, þyngd, lögun, og því að vera nógu aðlað­andi hel­tekur margar konur og stúlkur, allt frá 5 ára aldri til rúm­lega sjö­tugs.[/quote]

Áhyggjur af útliti, stærð, þyngd, lögun, og því að vera nógu aðlað­andi hel­tekur margar konur og stúlkur, allt frá 5 ára aldri til rúm­lega sjö­tugs. Léleg sjálfs­mynd og áhyggjur af hold­ar­fari (sem oft eru látnar ósagðar en eiga heima í hug­ar­heimi kvenna, en líka stúlkna og drengja) eru meira áber­andi í dag en fyrir þrjá­tíu árum, þrátt fyrir aukna umræðu í fjöl­miðlum um einmitt þessi mál.

Rann­sóknir sýna að almenn óánægja með sjálfs­mynd og hræðslan um að vera of feit (þó það eigi sér ekki stað í raun­veru­leik­anum) hefur áhrif á náms­ár­angur ung­lings­stúlkna. Það leiðir ekki til falls en hefur áhrif á sjálfs­á­lit sem minnkar vel­gengni í námi. Ung­lings­stúlkur sem eru óánægðar með lík­ama sinn taka t.d. minna þátt í skól­anum:


Á liðnum árum hafa verið auknar áherslur á að auka aðgengi kvenna á fjöl­mörgum sviðum og hefur náms­þátt­taka kvenna aldrei verið hærri. Stúlkur sjá menntun sem lyk­il­inn að fram­tíð­ar­mögu­leikum, en þær hafa mögu­lega þegar misst af tæki­færum, jafn­vel áður en þær hefja fram­halds­nám. Þær hafa verið skot­mark feg­urð­ar­iðn­að­ar­ins frá barns­aldri, sem matar þær með útlits­kröfum, pakkað inn sem flest allt skemmti­efni sem er aðgengi­legt ungum stúlkum í dag.

[quote font="0" align="right"]Skila­boðin eru skýr: útlitið er það sem tryggir þér örugga fram­tíð. Þessar áherslur hafa skapað óör­ugga ein­stak­linga, sem eyða gríð­ar­legum tíma í útlitstengdar hugs­anir sem valda van­líðan.[/quote]

Skila­boðin eru skýr: útlitið er það sem tryggir þér örugga fram­tíð. Þessar áherslur hafa skapað óör­ugga ein­stak­linga, sem eyða gríð­ar­legum tíma í útlitstengdar hugs­anir sem valda van­líðan. Það jafn­framt dregur úr vits­muna­legri frammi­stöðu þeirra og gæti útskýrt hvers vegna margar konur efast um eigin getu. Það má því velta því fyrir sér hvaða efna­hags­legi ávinn­ingur tap­ast þegar mögu­leikar kvenna eru ekki full­nýttir og hverju þær myndu áorka ef allur tím­inn færi ekki í sjálf­skoðun og gagn­grýni.

Fegðurðarstaðallinn hár


Rannsókn Orbach á sjö­unda ára­tugnum sýnir að konur telja að útlit þeirra eigi stærstan þátt í vellíðan og mögu­legri vel­gengni á lífs­leið­inni. „Fegurð“ er aðgöngu­miði til að falla inn í hóp­inn og ganga vel í líf­inu. Heilum iðn­aði er varið í að vernda óraun­veru­lega staðalí­mynd, þar sem módel eru fótó­sjoppuð og myndum er breytt áður en þau ná til neyt­and­ans. Og skiptir þar engu máli hvort átt er við kenn­ara, lækna, verk­fræð­ina eða heima­vinn­andi hús­mæður, allar eyða þær miklum tíma í að hugsa og finna að útliti sínu.

[quote font="0" align="right"]Það sem hefur líka breyst er að nú gilda staðalí­myndir ekki ein­göngu fyrir konur en líka fyrir karl­menn og unga drengi.[/quote]

Þessi rann­sókn var unnin fyrir tíma félags­legra fjöl­miðla eins og tumblr, Facebook, Instagram, og þeirra fjölda tíma­rita og tón­list­ar­mynd­banda sem við sjáum í dag. Það sem hefur líka breyst er að nú gilda staðalí­myndir ekki ein­göngu fyrir konur en líka fyrir karl­menn og unga drengi. Rann­sóknir í Danmörku sýna að danskir ung­lingar hafa auknar áhyggjur af útliti sínu og því að falla ekki inn í hóp­inn. Fleiri börn og ung­lingar þjást af kvíða og þung­lyndi í dag en áður og tvö­falt fleiri stelpur en strákar.

Áhyggj­urnar stafa af mis­mun­andi toga en það sem sér­fræð­ing­arnir eru sam­mála um er að full­komnun er nýja normið í dag. Allt þarf að vera óvenju­legt, það er „extra-ordin­ary,“ og það setur mikla pressu á ung­linga, ekki síst útlits­lega séð. Það sem vekur líka athygli er að það er mikil áhersla á útlit kyn­færa, en Marianne Lomholt, sem rekur hjálp­ar­línu fyrir ung­linga telur að það megi rekja til auknar klám­væð­ingar.

„Það er athuga­vert að heyra að hár­leysi og lögun kyn­færa skiptir ung­linga svo miklu máli. Ástæðan er klár áhrif klám­iðn­að­ar­ins. Við vitum frá ótal­mörgum rann­sóknum að nán­ast allir ung­lingar horfa á klám, og þar er lík­am­inn sýndur á mjög sér­stakan og ónátt­úru­legan hátt. Meðal ann­ars eru allir lík­ams­hlutar rak­aðir hjá klám­mynda­leik­urum og kyn­færi karla eru yfir­leitt stærri en með­al­talið.“

[quote font="0" align="right"]Á ung­lings­ár­unum skiptir máli að falla inn í hóp­inn og því eru spurn­ingar um lík­amann og kyn­líf eðli­legar. Hins vegar má spyrja sig hvað svo óraun­veru­legar fyr­ir­myndir gera fyrir sjálfs­á­lit barna og ung­linga þegar til lengri tíma er litið?[/quote]

Á ung­lings­ár­unum skiptir máli að falla inn í hóp­inn og því eru spurn­ingar um lík­amann og kyn­líf eðli­legar. Hins vegar má spyrja sig hvað svo óraun­veru­legar fyr­ir­myndir gera fyrir sjálfs­á­lit barna og ung­linga þegar til lengri tíma er litið? Konur hafa upp­lifað það á eigin skinni í ára­tugi og nið­ur­stöð­urnar eru ekk­ert til að hrópa húrra fyrir. Samkvæmt tölum frá Bret­landi er fjórð­ungur sam­fé­lag­ins í megrun á hverjum tíma, stelpur byrja í sinni fyrstu megrun að með­al­tali þegar þær eru 8 ára gamlar og fimmti hver karl­maður um tví­tugt hefur reynt að taka bæti­efni til þess að „massa sig“ upp. Í Banda­ríkj­unum sjást svip­aðar tölur þegar horft er til ung­lingstelpna og skýr tengsl milli lágs sjálfs­á­lits og áhættu­sæknar hegð­unar.

Kvenleiðtogar verða að líta vel út


Útlits­kröf­urnar virð­ast skipta minna máli þegar karl­menn ná árangri á ákveðnu starfs­sviði en þær gera fyrir konur. Útlits­kröf­urnar og full­komn­un­ar­áráttan heldur áfram fyrir konur, út allt lífið. Og því hærra sem þær ná, hvort sem er í stjórn­sýslu eða til dæmis sem yfir­menn stór­fyr­ir­tækja, því meiri verða kröf­urnar.

Tökum Hillary Clinton sem dæmi. Útlit hennar er til umræðu reglu­lega, allt frá hári og buxna­drögtum, til þess hvernig hún lítur út þegar hún grætur eða er reið. Í bók­inni sinni „Living History“ hefur hún sjálf minnst á hversu fár­an­legt það sé að hárið á henni sé á milli tann­ana á fólki og hafa buxna­dragt­irnar vakið athygli, meðal ann­ars fyrir að vera lit­ríkar.

[caption id="attachment_25686" align="alignnone" width="508"] Klæða­burður Hillary Clinton hefur víða orðið að umfjöll­un­ar­efni.[/caption]

Hillary Clinton er stjórn­mála­maður og getur því verið gagn­grýnd á þeim grund­velli og það er hægt að velta því fyrir sér hversu mikið útlitið skiptir máli þegar talað er um karl­kyns stjórn­mála­menn. Nýlega benti Think Progress á kynja­mis­réttið í frétta­flutn­ingi, þar sem fjallað var um hina „exo­tísku og fal­legu Tulsi Gabbard“ sem er demókrati frá Hawai og hefur beitt sér fyrir utan­rík­is­málum í Banda­ríkj­unum. Samkvæmt rann­sókn frá 2013 hefur óeðli­leg umfjöllun um útlit stjórn­mála­kvenna nei­kvæð áhrif á mögu­leika þeirra til kjörs, hvort sem umfjöll­unin er jákvæð eða nei­kvæð.

Háir hælar eru reglu­lega myndefni fyrir greinar sem fjalla um konur í stjórn­un­ar­stöðum. Margar konur sem ná langt í einka­geir­anum eru reglu­lega gagn­grýndar fyrir útlit sitt. Þær þykja ýmist of kyn­þokka­fullar eða ekki nóg, sýna of mikið af brjósta­skor­unni, eða ekki nóg, þær mega ekki vera of feitar og verða að vera kven­legar. Nýlega var fram­kvæmd­ar­stjóri Yahoo, Marissa Mayer gagn­rýnd fyrir að stilla sér upp eins og ljós­mynda­fyr­ir­sæta í opnu í Vogue.

[quote font="0" align="right"]Gæti verið að margar konur ein­fald­lega treysti sér ekki í þann frum­skóg sem konur þurfa að fara í gegnum þegar þær sækj­ast eftir stjórn­un­ar­stöðum og þeirri útlits­gagn­rýni sem þær verða fyrir?[/quote]

Kven­leið­tog­inn á sem sagt að vera aðlað­andi en verður gagn­rýnd ef hún er það um of. Útlitið hjá konum á að gefa í skyn að þær hafi valdið. Það er ekki nóg að hafa hæfi­leik­ana. En er krafan eins hjá karl­mönnum sem eru stjórn­endur?

Gæti verið að margar konur ein­fald­lega treysti sér ekki í þann frum­skóg sem konur þurfa að fara í gegnum þegar þær sækj­ast eftir stjórn­un­ar­stöðum og þeirri útlits­gagn­rýni sem þær verða fyrir? Gæti verið að ef útlits­kröf­urnar væru í sam­ræmi við fjöl­breyti­leikan sem við lifum í, að fleiri konur gætu ein­beitt sér að því sem skiptir máli? Eða er það krafan um hið full­komna útlit sem heldur aftur af konum á þeim fjöl­mörgu sviðum í atvinnu­líf­inu þar sem vantar konur í dag? Í Banda­ríkj­unum eru til að mynda færri konur sem stjórna fyr­ir­tækjum en menn sem heita John, og það sama má segja um karl­menn sem heita Peter í Ástralíu, þeir eru fleiri sem kom­ast upp met­orða­stig­ann en allar kon­urnar til sam­ans.

Sjálfsöryggi og velgengni haldast í hendur


Í Bret­landi hefur „Be Real“ átak­inu, eða „vertu raun­veru­leg(ur),“ verið hrint af stað til að reyna að sporna við lík­ams­hatri. Mark­miðið er að auka sjálfs­ör­yggi kvenna og karla með heil­brigðum staðalí­myndum og fá fólk til að líða vel í eigin kroppi. Fram­takið er á þremur sviðum.

„Raun­veru­leg menntun“ á að hjálpa börnum og ung­lingum að fá góða sjálfs­mynd frá byrjun, skora á for­eldra til að vera góðar fyr­ir­myndir og hjálpa ungu fólki að styðja hvort annað til að fá aukna lík­ams­virð­ingu.

„Raun­veru­leg heilsa“ á að ein­blína á heilsu umfram útlit og þyngd. Með því að virkja heilsu­rækt­ar­iðn­að­inn og heil­brigð­is­geir­ann þannig að lang­tíma lausnir fyrir góðri heilsu séu teknar fram fyrir skyndi­lausnir.

„Raun­veru­leg fjöl­breytni“ hvetur fjöl­miðla, aug­lýsendur og fyr­ir­tæki til þess að sýna hvernig við raun­veru­lega lítum út. Sýna fjöl­breyti­leik­ann í stærð, lögun, kyn­þætti, aldri og getu sem heim­ur­inn er gerður úr í stað­inn fyrir að stuðla að óheil­brigðri og óæski­legri útlits­dýrkun.

Snyrti­vöru­fram­leið­and­inn Dove sem er aðili að átak­inu, hefur hafið sína eigin her­ferð sem nefn­ist „Choose Beauti­ful“ eða „Veldu fal­legt.“ Her­ferðin hvetur fólk, og þá konur sér­stak­lega, til þess að sjá það fal­lega í okkur öllum.

Í einni til­raun­inni voru þáttak­endur beðnir um að velja dyr inn í versl­un­ar­mið­stöð. Yfir ann­ari hurð­inni stóð „Falleg(ur)“ og yfir hinni stóð „í með­al­lagi.“ Nið­ur­stöð­urnar komu ekki á óvart en margar konur þorðu ekki að ganga í gegnum dyrnar med fal­lega merk­inu.

Dove vill benda á að maður getur valið að vera fal­leg og fal­legur á hverjum degi, allt eftir því hvað maður sjálfur telur vera fal­legt. En við þurfum fyrst að byrja á því að losa okkur undan viðjum staðalí­mynd­anna. Eins og með­fylgj­andi mynd­skeið sýnir, erum við oft okkar versti gagn­rýn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár