Gyðingar í Evrópu óttast vaxandi andúð og hatur

Gyðingar í Evrópu eru ótta­slegnir vegna ódæð­anna í París í síð­asta mán­uði og Kaup­manna­höfn um síð­ustu helgi. Þeir segja andúð á gyð­ingum í mörgum Evr­ópu­löndum fara vax­andi og ótt­ast hið versta.

Gyðingar í mörgum Evr­ópu­löndum segj­ast um langt skeið hafa fundið fyrir vax­andi andúð í sinn garð. Þessi andúð birt­ist með ýmsu móti: veist sé að þeim á götum úti og hróp séu gerð að þeim, hnýtt sé í þá í versl­unum, þeir fái í auknum mæli alls kyns hót­anir á net­inu, harð­ari tónn en áður sé í greinum sem birt­ast í fjöl­miðlum og í umræðu­þáttum í útvarpi og sjón­varpi.

Þegar leitað er skýr­inga svara margir því til að fram­koma Ísraela gagn­vart Palest­ínu­mönnum sé ein helsta orsökin. Þótt margir gyð­ingar vilji kannski ekki bein­línis taka undir þessar skýr­ingar segja þeir að hót­unum í sinn garð hafi fjölgað mjög eftir átökin á Gasa síð­ast­liðið sumar. Þar gengu Ísraelar mjög hart fram gegn Palest­ínu­mönnum og þegar átök­unum lauk, eftir 50 daga, lágu rúm­lega 2100 Palest­ínu­menn í valnum (72 Ísraelar féllu) og bær­inn Beit Hanoun nyrst á Gasa strönd var nán­ast rústir einar eftir árásir Ísraela.

Þótt gyð­ingar í Evrópu hafi vita­skuld ekki komið nærri þessum átökum og beri þar enga ábyrgð bitnar reiði fólks í mörgum löndum á þeim. Þessi andúð, eða hatur, hefur auk­ist jafnt og þétt á und­an­förnum árum og kostað manns­líf; í mars 2012 voru þrjú börn og kenn­ari myrt við skóla gyð­inga í Toulouse í Frakk­landi, í maí í fyrra lét­ust þrír þegar franskur maður hóf skyndi­lega skot­hríð á gyð­inga­safn­inu í Brussel og einn lést síðar af sárum sínum.

Árásin á mat­vöru­versl­un­ina í París er flestum í fersku minni eins og árásin á bæna­hús gyð­inga hér í Kaup­manna­höfn um síð­ustu helgi. Þótt sami maður og réðst á bæna­húsið hafi verið að verki við Krudttønden á Aust­ur­brú, er ekki beint hægt að tengja það til­ræði við gyð­inga­hatur, sama gildir um ódæð­is­verkin á rit­stjórn­ar­skrif­stofum Charlie Hebdo. Þar var það tján­ing­ar­frelsið sem vegið var að.

[caption id="attachment_16643" align="alignnone" width="1024"] Frá sam­stöðu­fundi í kjöl­far hryðju­verka­árásanna í París.[/caption]

Alls staðar sama sagan


Fjöl­menn­ustu sam­tök gyð­inga í Evrópu, European Jewish Association, segja sömu sög­una blasa við hvert sem landið sé. Gyðingar séu alls staðar skot­spónn og þeir ótt­ist um líf sitt. Samtökin hafa lengi barist fyrir því að gyð­ingar njóti auk­innar verndar og gæslu, til dæmis við sam­komu- og bæna­hús, skóla og aðra staði þar sem gyð­ingar koma saman.

Frá samstöðufundi í kjölfar hryðjuverkaárásanna í París.
Frá sam­stöðu­fundi í kjöl­far hryðju­verka­árásanna í París.

Talsmenn sam­tak­anna segja yfir­völd í flestum löndum hafi lítið gert með við­var­anir en eftir atburði síð­ustu vikna muni það von­andi breyt­ast. „Við erum Danir þótt við séum jafn­framt gyð­ingar,“ sagði Dan Ros­en­berg Asmussen, for­maður sam­taka gyð­inga í Danmörku í við­tali, „við eigum sama rétt og aðrir borg­arar á því að öryggis okkar sé gætt.“ Lög­reglan segir að örygg­is­gæsla við sam­komu­staði og bæna­hús gyð­inga hafi verið aukin eftir hryðju­verkin í París en gyð­ingar segj­ast ekki hafa séð þess nein merki.

„Þið eigið að koma heim“


Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, lét þessi orð falla eftir atburði síð­ustu helgar hér í höf­uð­borg Dan­merkur. Danskur gyð­ingur sagði að ef þessi orð hefðu verið látin falla við aðrar aðstæður hefðu þau „nán­ast verið eins og mis­heppn­aður brand­ari.“ „Við erum Danir og eigum heima í Danmörku.“

Orð Net­anyahu ber að skoða í ljósi þess að hann stendur í kosn­inga­bar­áttu og vil styrkja ímynd sína sem hinn ábyrgi lands­faðir. En þetta „heima“ hvað er það og hvernig er það? Svarið við þess­ari spurn­ingu fer eftir því hver er spurður. Á síð­asta ári fluttu til dæmis helm­ingi fleiri frá Ísrael til Dan­merkur en frá Danmörku til Ísraels. Þá vaknar spurn­ingin hvernig standi á því?

Svarið er oft­ast á þá leið að lífið í Ísrael sé ekki neinn dans á rósum. Lífs­kjörin allt önnur og lélegri en víð­ast hvar í Evrópu, ekki síst sam­an­borið við Norð­ur­löndin. Einn sem við var rætt í dönskum fjöl­miðli sagði að hann gæti ekki þolað fram­komu Ísraela gagn­vart Palest­ínu­mönnum á sama tíma og Ísraelar kvört­uðu undan fram­komu og við­móti ann­arra gagn­vart þeim. „Maður veit aldrei hvað mætir manni á næsta götu­horni,“ sagði einn sem flutti frá Ísrael til Dan­merkur fyrir skömmu.

Við erum sjálfir mestu rasistarnir


„Ísraelar segja margar þjóðir ras­ista, sjálfir erum við mestu ras­ist­arnir,“ sagði annar gyð­ingur í sam­tali við danskan net­miðil

„Ég þoli ekki þetta tal um að allir séu á móti okkur Ísra­els­mönnum,“ sagði annar. „Við erum léleg fyr­ir­mynd, troðum á Palest­ínu­mönnum og það veit allur heim­ur­inn. Árlega flytja mun fleiri frá Ísrael til Dan­merkur en frá Danmörku til Ísraels og sömu sögu er að segja um mörg önnur lönd.“

Formaður sam­taka gyð­inga í Danmörku sagði það umhugs­un­ar­efni og áhyggju­efni að æ fleiri þjóðir snú­ist nú gegn Ísrael á alþjóða­vett­vangi og spurði: „Er það ekki Ísraelum sjálfum að kenna að svo margir hata þá og fyr­ir­líta, hafa þeir haldið rétt á spil­unum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár