Mest fjölgar í Siðmennt

Hlut­falls­lega fjölg­aði mest í Siðmennt á árinu eða um 23,3%. Enn heldur áfram að fækka í þjóð­kirkj­unni en mest fækk­aði þó hlut­falls­lega í zuism.

Frá 1. des­em­ber á síð­asta ári fjölg­aði í Siðmennt um 655 manns eða um 23,3 pró­sent. Þetta er mesta fjölgun í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lag á árinu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Þjóðskrá.

[links]Á vef­síðu félags­ins kemur fram að Siðmennt – félag sið­rænna húman­ista á Íslandi hafi verið stofnað árið 1990 í kringum borg­ara­lega ferm­ingu. Félagið hafi síðan þró­ast fljótt í að vera full­gilt húmanískt félag með aðild að alþjóða­sam­tökum húman­ista (IHEU). „Félagið er ver­ald­legt lífs­skoð­un­ar­fé­lag og hefur að við­fangs­efni þau við­horf og lífs­gildi sem eru per­sónu­lega mik­il­væg og náin hverjum ein­stak­lingi í leit að til­gangi og ham­ingju í líf­inu,“ segir á síðu félags­ins.

Aukning var einnig í kaþ­ólsku kirkj­unni um 620 manns sem er fjölgun um 4,4 pró­sent. Skrán­ingar í kaþ­ólsku kirkj­una hafa nærri fjór­fald­ast á síð­ustu 20 árum og í dag eru rúm­lega 14 þús­und manns skráðir í kirkj­una.

Heldur áfram að fækka í þjóðkirkjunni – Mest hlutfallsleg fækkun þó í zuism

Alls hefur skráðum í þjóð­kirkj­una fækkað um 1.518 manns á sama tíma­bili. Nú eru 231.154 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una, sam­kvæmt Þjóðskrá. Þá kemur jafn­framt fram að fækkun hafi orðið í 22 trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum og að mest hlut­falls­leg fækkun hafi verið í zuism eða um 23 pró­sent.

Þá fjölgi í ótil­greindum skrán­ingum og þeim sem standa utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lögum. Alls voru 26.023 ein­stak­lingar skráðir utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn og fjölg­aði þeim um 1.260 frá 1. des­em­ber árinu áður eða um 5,1 pró­sent. Alls eru 7,2 pró­sent lands­manna utan trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Alls eru 52.060 ein­stak­lingar sem eru búsettir hér á landi með ótil­greinda skrán­ingu og hefur þeim fjölgað um 5.748 frá 1. des­em­ber 2018 eða um 12,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár