Lægra hlutfall 17 ára tekur bílpróf

Viðhorf til öku­prófs hjá ung­mennum eru að breyt­ast. Ástæð­urnar eru marg­þættar en sam­kvæmt rann­sóknum er ungt fólk var­kár­ara í umferð­inni en áður og upp­lýst­ara.

Viðhorf til bílprófs hefur breyst síðan í kringum aldamótin og ekki þykir lengur jafn eftirsóknarvert að taka prófið 17 ára.
Viðhorf til bíl­prófs hefur breyst síðan í kringum alda­mótin og ekki þykir lengur jafn eft­ir­sókn­ar­vert að taka prófið 17 ára. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Spenn­andi hefur þótt að taka og fá öku­próf í gegnum tíð­ina og þótti eng­inn maður með mönnum nema taka bíl­próf. Bílaeign þjóð­ar­innar hefur verið með þeim hærri miðað við höfða­tölu sé hún borin saman við aðrar þjóðir. Árið 2016 voru 240.490 fólks­bílar skráðir á land­inu, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Þó ber að hafa í huga að bif­reiðar á núm­erum, þ.e.a.s. þær sem eru í notkun, eru eilítið færri.

En nú virð­ist sem tím­arnir séu að breyt­ast og ung­ling­arnir með, því þeir eru hægt og rólega að fresta því að taka öku­próf þrátt fyrir að þeim standi það til boða 17 ára gömlum. Færri 17 ára ung­lingar tóku öku­próf á síð­asta ári en árið þar á undan, 72,1 pró­sent árið 2017 og 73,1 pró­sent 2016 og mun­aði einu pró­senti. Þróunin hefur verið með þessu móti síð­ustu ár en flestir 17 ára ung­lingar tóku bíl­próf árið 1997 eða 87 pró­sent.

Ástæð­urnar geta verið margar og erfitt reyn­ist að draga ályktun án þess að hafa ákveð­inn fyr­ir­vara á. Samkvæmt Sam­göngu­stofu má líta svo á að breyt­ingin sé aðal­lega fólgin í að algeng­ara er að fresta prófi og það tekið síðar. Þessi fjórð­ungur ung­linga sem taka ekki próf við 17 ára ald­ur­inn gera það síðar á lífs­leið­inni, þó lang­flestir fyrir tví­tugt en þá eru um 90 pró­sent komnir með öku­rétt­indi.

Ekki sama spenna og áður

Samkvæmt tölum Sam­göngu­stofu tóku 5.344 manns öku­próf á síð­asta ári. 543 fleiri tóku öku­próf árið 2017 en fimm árum áður. Gera má ráð fyrir því að um 12 pró­sent þess­ara prófa séu þó vegna ann­arra ástæðna en til öfl­unar fyrsta öku­skír­teinis. Þetta kemur fram í svari Sam­göngu­stofu við fyr­ir­spurn Kjarnans og segir jafn­framt í svar­inu að ástæður gætu meðal ann­ars verið end­ur­tekn­ingar öku­prófa vegna svipt­inga, útskipt­ing erlends öku­skír­teinis o.s.frv. Einnig rokki tölur þeirra sem taka bíl­próf eftir stærð árganga.

Kolbrún G. Þor­steins­dóttir, full­trúi í öryggis- og fræðslu­deild Sam­vinnu­stofu, seg­ist sjá merki þess að við­horf til bíl­prófs­ins og akstur sé að breyt­ast hjá ungu fólki. Hún segir að eng­inn vafi sé í hennar huga að minni spenna sé fyrir öku­skír­tein­inu en í kringum alda­mótin síð­ustu þegar lang­flestir tóku bíl­próf.

Starfs­menn öryggis- og fræðslu­deildar fara í marga fram­halds­skóla á ári hverju með for­varnir og þrátt fyrir að hafa ekki skoðað þetta vís­inda­lega þá spyrja þau alltaf hvort krakk­arnir ætli að taka bíl­próf. Alltaf séu ein­hverjir sem ætla sér hrein­lega ekki að taka það, séu ekki einu sinni farnir að hugsa um það. Það kosti mikið og finn­ist mörgum gott að taka strætó. Hún segir að þetta sé ekki einu sinni í umræð­unni og að þau taki ein­ungis prófið ef þau geta, þ.e. hafi efni á því og áhuga.

Bílprófið kostnaðarsamt

Við öku­nám á Íslandi er farið eftir námskrá sem Sam­göngu­stofa setur en allt slíkt nám á Íslandi fer fram á vegum lög­giltra öku­kenn­ara. Til þess að hefja námið þarf nem­andi að fara í öku­skóla 1 og þar á eftir í æfinga­leyfi. Við taka öku­skólar 2 og 3 en lág­marks­tímar í námi skulu vera 25 bók­legir og 17 verk­legir. Eftir þetta ferli er hægt að taka bók­legt og verk­legt próf til þess að fá bráða­birgða­öku­skír­teini sem gildir í 3 ár.

Mikill kostn­aður fylgir því að taka bíl­próf. Kostn­aður við að fá almenn öku­rétt­indi er að lág­marki 220 þús­und krónur og bendir Kolbrún á að ferlið geti tekið allt að tveimur árum. Hún segir að lang­flestir taki enn bíl­prófið en að ung­lingar virð­ist bera meiri virð­ingu fyrir ferl­inu og séu yfir höfuð upp­lýst­ari en áður.

Slysum fækkar hjá ungu fólki

Árið 2009 var öku­skóli 3 gerður að skyldu en honum var komið á fót vegna þeirrar stað­reyndar að ekki hafði verið hægt að veita verð­andi öku­mönnum alla þá fræðslu sem þeir þurftu á að halda. Kolbrún segir að slysum hafi fækkað í ald­urs­hópnum 17 til 25 ára í kjöl­farið. Mikið for­varn­ar­starf hafi verið unnið sem sé að skila sér færri slysum og segir hún að ástæða sé til að hrósa ungum öku­mönnum í dag.

Í þessu sam­hengi er áhuga­vert að stærstur hluti þeirra sem taka strætó eru á aldr­inum 18 til 24 ára sam­kvæmt Gallup-könnun sem birt var í maí á síð­asta ári. Í henni kemur einnig fram að 53 pró­sent þessa ald­urs­hóps eru mjög eða frekar jákvæð gagn­vart strætó sem var í kringum heild­ar­með­al­tal.

Þannig að með breyttum tímum, upp­lýst­ari ung­mennum og auknum kröfum í öku­námi hefur áherslan því eilítið skipt um tón. Hugs­an­lega má einnig rekja minnk­andi áhuga ung­menna á öku­prófi til umhverf­is­vit­undar og umræðum um ann­ars konar sam­göngur en einka­bíl­inn en tím­inn einn mun leiða í ljós hvort þetta hafi í för með sér minni einka­bíla­notkun, enda miklar breyt­ingar á almenn­ings­sam­göngum fyr­ir­hug­aðar.

Frétta­skýr­ingin birt­ist fyrst í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár