Einungis 14 prósent landsmanna ánægð með núverandi útfærslu kvótakerfisins

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru þeir einu sem eru ánægð­ari með núver­andi útfærslu kvóta­kerf­is­ins en óánægð­ari. Hjá öllum öðrum flokkum er and­staðan við kerfið miklu meiri en stuðn­ingur við það.

Alls segj­ast 66 pró­sent lands­manna, tveir af hverjum þremur, vera óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi. Þar af segj­ast 38 pró­sent vera mjög óánægð með hana.

Tæpur fimmt­ungur, 19 pró­sent aðspurðra, seg­ist ekki hafa sterka skoðun á útfærsl­unni en ein­ungis 14 pró­sent eru ánægð með hana.

Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Öldu - félag um sjálf­bærni og lýð­ræði, dag­anna 8. til 14. júlí síð­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun sem 945 manns svör­uðu. Úrtakið voru Íslend­ingar á aldr­inum 18 ára og eldri og voru valdir handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR, sem telur lið­lega 18 þús­und manns sem valdir voru með með til­vilj­un­ar­úr­taki úr þjóð­skrá.

Spurn­ingin sem þátt­tak­endur voru fengnir til að svara var eft­ir­far­andi: Hversu ánægð(ur) eða (óánægður) ertu með núver­andi útfærslu á kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi?

Sjálfstæðismenn einu sem eru ánægðir

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru þeir einu sem eru ánægð­ari með útfærslu kvóta­kerf­is­ins en óánægð­ari. Alls segj­ast 42 pró­sent þeirra vera ánægðir með hana en 25 pró­sent eru óánægð.

[adspot]Innan hinna tveggja stjórn­ar­flokk­anna er meiri­hluti kjós­enda þeirra ósáttur með það kerfi sem er við lýði. Hjá Framsókn segj­ast 46 pró­sent kjós­enda flokks­ins vera óánægð með það en 23 pró­sent ánægð. Innan raða Vinstri grænna mælist and­staðan 75 pró­sent en ell­efu pró­sent eru ánægð með kerfið.

And­staðan við núver­andi útfærslu kvóta­kerfis í sjáv­ar­út­vegi er mikil á meðal allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka. Mest er hún hjá kjós­endum Sós­í­alista­flokks­ins (94 pró­sent) og kjós­endum Píratar (93 pró­sent). Kjós­endur Sam­fylk­ingar fylgja þar á eftir (88 pró­sent), svo Flokks fólks­ins (79 pró­sent) og Við­reisnar (78 pró­sent). Hjá and­stöðu­flokk­unum er óánægjan minnst hjá kjós­endum Mið­flokks, en mælist samt sem áður 71 pró­sent.

Unga fólkið óánægðast

Munur er á óánægju milli ald­urs­hópa. Hún mælist mest hjá ungi fólki, innan ald­urs­hóps­ins 18-29 ára, þar sem 74 pró­sent aðspurðra sögð­ust óánægð með núver­andi útfærslu kvóta­kerf­is­ins og ein­ungis átta pró­sent sögð­ust ánægð.

Ekki er mikil munur á and­stöð­unni eftir búsetu, en 69 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er óánægð með kerfið og 62 pró­sent þeirra sem búa á utan þess. Óánægjan eykst með hærra mennt­un­ar­stigi en er minnst hjá þeim sem hafa hæstar tekjur.

Mest ánægja með núver­andi útfærslu kvóta­kerf­is­ins mælist í hópi stjórn­enda og æðstu emb­ætt­is­manna, en 25 pró­sent þeirra segj­ast ánægðir með núver­andi útfærslu kerf­is­ins.

Samherjar með sterka stöðu

Mikil sam­þjöppun hefur orðið innan kvóta­kerf­is­ins á und­an­förnum árum. Miðað við síð­asta birta lista Fiski­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­ar­vinnslan, ásamt dótt­ur­fé­lögum, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 7,7 pró­sent hans. Miðað við það sem var greitt fyrir afla­heim­ildir Bergs ætti virði þess kvóta að vera um 92 millj­arðar króna. Afla­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar eru bók­færðar á um 30 millj­arða króna. Tveir stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Samherji og Kjálka­nes.

[links]Næst stærsta fyr­ir­tækið á list­anum yfir þær útgerðir sem erum með mestu afla­hlut­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu er einmitt Samherji.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­sent. ­Út­­­gerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­sent kvót­ans. Sam­an­lagt heldur Samherji því á níu pró­sent úthlut­aðra veiði­heim­ilda.

Gjögur, sem er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,3 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum, sem er 27,5 millj­arða króna virði.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­sent. ­Út­­­gerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­sent kvót­ans.

Sam­an­lagt virði þessa kvóta sem Samherji heldur á, miðað við síð­ustu gerðu við­skipti með afla­heim­ildir, er um 107,6 millj­arðar króna.

Þessir aðilar: Síld­ar­vinnslan, Samherji og Gjögur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mögu­legt að séu tengdir, halda því sam­tals á 19 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Mark­aðsvirði hans er um 227 millj­arðar króna.

Nokkrar blokkir fyrirferðamiklar

Brim, sem er skráð á markað, er sú útgerð sem heldur beint á mestum kvóta, eða 10,41 pró­sent hans. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 43,97 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,57 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, for­stjóra Brims.

Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,43 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög halda því á 15,51 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Mark­aðsvirði hans er um 184,1 millj­arðar króna miðað við síð­ustu við­skipti með kvóta.

Kaup­­­­fé­lag Skag­­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,51 pró­­­­sent heild­­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­­sent í Vinnslu­­­­stöð­inni í Vest­­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­sent heild­­­­ar­afla­hlut­­­­deild. Þá á Vinnslu­stöðin 48 pró­sent hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­manna­eyj­um, sem heldur á 0,8 pró­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­­ías Cecils­­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,27 pró­­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­­ar­kvóti þess­­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­sent, og er því undir 12 pró­­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­­greindir með öðrum hætti.

Mark­aðsvirði þess kvóta, miðað við síð­ustu gerðu við­skipti, er um 132,4 millj­arðar króna.

Þessar þrjár blokkir, sú sem hverf­ist í kringum Samherja, sú sem hverf­ist í kringum Brim og sú sem hverf­ist í kringum útgerð Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, heldur því sam­tals á 45,6 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Sam­an­lagt mark­aðsvirði hans er um 544,8 millj­arðar króna.

Alls er 67,4 pró­sent alls úthlut­aðs afla í höndum 15 útgerða sem margar hverjar tengj­ast inn­byrðis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár