25 prósent landsmanna ánægð með nýju ríkisstjórnina

Samtals eru 25,3 pró­sent lands­manna ánægðir með rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, sem mynduð var fyrr í þessum mán­uði. Rúmur fjórð­ungur, eða 27,7 pró­sent aðspurðra, seg­ist í með­al­lagi ánægður með rík­is­stjórn­ina en 47 pró­sent lands­manna eru óánægðir. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu á við­horfi til rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar.

Þar kemur einnig fram að karlar eru mun ánægð­ari með rík­is­stjórn­ina en konur og tekju­hærri ánægð­ari en tekju­lægri. Athygli vekur að rík­is­stjórnin nýtur mik­illar hylli hjá kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Við­reisnar (77-79 pró­sent þeirra eru ánægðir) en lít­ils stuðn­ings hjá kjós­endum Bjartrar fram­tíðar (31 pró­sent segj­ast ánægðir). Af kjós­endum ann­arra flokka eru kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins ánægð­astir með rík­is­stjórn­ina, eða 13 pró­ent. Innan við eitt pró­sent kjós­enda Pírata, Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna eru ánægðir með stjórn­ina.

Könnun Maskínu fór fram 21-23. jan­úar. Svar­endur í könn­un­inni voru 810 og komu úr pan­el­hóp sem svarar spurn­ingum á net­inu. Hópurinn er dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá. Svar­endur eru af báðum kynjum, alls staðar af land­inu og á aldr­inum 18-75 ára.

Flokk­arnir þrír sem mynda nýju rík­is­stjórn­ina eru með minnsta mögu­lega meiri­hluta á þingi, 32 þing­menn. Þeir fengu sam­tals 46,7 pró­sent greiddra atkvæða í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár